Alþýðublaðið - 03.12.1961, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 03.12.1961, Blaðsíða 2
j Bíts^jórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjóri: ; CJörgvin GuSmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími 14 906. — Aðsetur: Alþýóuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu i <i—10. — Áskriftargjald kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef- | andi: Alþýðufiokkurinn. — Framkvæmdastjóri Sverrir Kjartansson. Efnahagsundrið í ÍSLENDINGAR eiga í vændum fyrstu fimm ára : f fiamkvæmdaáætlun sína og þar með fyrstu skipu- i lögðu tilraun ríkisvaidsins til að stýra fjárfestingu i <ag uppbyggingu í landinu og hafa fasta yfirstjórn \ þeirra mála. Þegar jafnaðarmenn fyrst lögðu fram < feugmyndina um slíka áætlunargerð og yfirstjórn ] fjárfestingar, þótti það róttækur sósíalismi. Nú í Ihiefur þetta atriði, eins og mörg önnur í hugmynda í ikerfi jafnaðarstefnunnar, unnið stuðning flestra ] ftokka víða um lönd. ] í Frakklandi byrjaði slík áætlunargerð þegar : 1946 og hefur Jean Monnet verið faðir þeirrar \ skipulagningar. Vinna nú um 140 manns að þess- j um málum, en leitað er til 3000 manns í röðum j verkalýðs og atvihnuvega til ráða. Þjóðarfram- ] leiðsla Frakka hefur aukizt að jafnaði um 4,5% ! árlega og á að aukast um 5,5% eftir næstu fimm \ ára áætlun. Þjóðnýttar iðngreinar í Frakklandi = erú kol, gas, járnbrautir, raforka, flug og flugvéla * smíði, skipasmíði, vopnaframleiðsla, tóbak og salt, f ásamt stórum hlutum bíla-, olíu- og áburðariðnað ' arins. I *í Bretlandi er nú verið að stofna áætlunarráð og ! er ætlunin að gera fimm ára áætlanir um uppbygg ! ingu framleiðslunnar, sem hefur verið hægari en : í öðrum löndum. Brezk stjórnarvöld hafa mikil S áhrif á skipulag fjárfestingar og beina nýjum fyr- ! irtækjum til héraða, sem mest þurfa þeirra, veita * þeim skattahlunnindi o. s- frv. Reynsla Frakka ■ hefur sannfært Breta um, að þeir verði að gera ; áætlanir fram í tímann. ! Á Ítalíu er verið að setja upp stjórnarnefnd, sem á að samhæfa áætlanir efnahagslífsins og tryggja að þeim áætlunum sé fylgt. Ríkikrekstur er mjög ' mikill á Ítalíu, og eru um 50% alls iðnaðar í land- - ínu þjóðnýtt. ! í Þýzkalandi heitir svo, að frelsi efnahagslífsins - ríki í almætti, en það þýðir sannarlega ekki, að ! rikisvaldið sé þar afskiptalaust. Með sköttum, : lánum, áhrifum á utanríkisverzlun og fleiri með- ■ ul-um hefur efnahagsráðuneyti Erhards haft nána ! stjórn á efnahagslífinu. Á Norðurlöndum hefur lengi verið unnið eftir ' áætlunum um uppbyggingu efnahagslífsins og er ■ þar talin sjálfsögð stefna. Ekkert þeirra landa, ' sem hér hafa verið nefnd, hefur ströng „höft<£ eða emhættismenn með nefið ofan í öllum hlutum. ■ Hius vegar hefur tekizt að tryggja náið og gott ' samstarf ríkisvaldsins við atvinnuvegi og verka- * lýð, og þannig á grundvelli áætlana tekizt að skapa ■ þáð efnahagsundur, sem gerzt hefur í Vestur- E i rópu hin síðustu ár. £ ' 3. des. 1961 — Alþýðublaðið ÓHmWMUMUMMHMMHM Sfefán Jónsson, námssfjóri: ATHYGLISVERÐ KVIKMYND FYRIR BÖRN í BÆJARBÍÓI í HAFNARFIRÐI KVIKMYNDIN Risaeðlan, sem sýnd er í Bæjarbíói í OHafnarfirði um þessar mundir, er mjög merkileg og lágætlega vel .leikin. í myndinni er reynt, með ævintýralegum söguþræði og vísindalegTÍ nókvæmni, að bregða ljósi yfin sköpun arsögu jarð.arinnar. — Eru börnin, sem leika í mynd- inni, látin fara í töfrabáti út á elfu tímans, ekiii fram á við til þess ókomna, held ur aftur í frumöld jarðar og mannkyns, og heim- sækja börnin í þessu ferða lagi hin ýmsu jarðsögutíma Ibil og kynnast þar furðu- legum lífaháttum í hálfsköp uðunv heimi. Öll er myndin afburða vel leikin, baeði af börnun um sjálfum og hinum vél- rænu eftirlíkin^m af risa- dýrum jarðsögunnar. Allir eru drengirnir, sem leika í myndinni, geðþekkir og fal legir, en ógleymanlegur verður þó öllum einn dreng urinn, Jirka litli, sem aldrei fær sig fullþreyttan á rann sóknunum og fer því marg ar annsóknarferðir á „eig in ábyrgð“ og lendir í hin- um ótrúlegustu ævintýrum. Hef ég aldrei séð eins glöggt og vekjandi dregin fram í dagsljósið sérkenni gáfaðra, frumlegra drengja, sem loga af fóðleiksþrlá og löngun til ævintýra, eins og í þessari mynd. Eru slík ir drengir oft misskildir og kallaðir ódælir. Frú Hulda Runólfsdóttir rekur efni myndarinn.ar og útskýrir hana jafnóðum, og er það ómetanlegt til skiln ingsauka fyrir börnin. Er þetta frábærlepa vel gert Ihjá frú Huidu, eins og vænta mátti. Ég tel .að mynd þessi eigi erindi til íbarna á öllum aldri, en fyrir börn á skóla aldri, sem eitthvað hafa um þetta efni, sem myndin kynnir, lesið og lært, er mjög margt af myndinni að læra. Tel ég að myndin auki fróðleiksþrá 'barnanna og veki skilning þeirra á hinni dularfullu og að nokkru leyt óskráðu mynd- unarsögu jarðar og mann- kyns. Ágæt veið í fyrrinótt ÁGÆT síldveiði var í fyrrinótt, og í gærmorgun höfðu 10 bátar komið til Akraness með 5—6 þús. tunnur. Haraldur var afla- hæstur þessara báta með 11— 1200 tunnur, Heimaskagi næst ur með 900 tunnur og Skírnir með 850 tunnur. Hinir bátarn- ir voru með allt niður í 200 tunnur. f gær var komin bræla og rok á miðunum og óvíst hvort bátarnir færu út, en fyr- ir hádegi var enginn Akranes- bátur farinn. Keflavíkurbátar öfluðu all- sæmilega og um hádegi voru 7—8 bátar komnir til Kefla- víkur með sæmilegan afla, 300 —700 tunnur hver, Árni Geir var með mestan afla, 700 tunn ur. Reykjavíkurbátar munu einnig hafa aflað sæmilega. Er blaðinu kunnugt um, að Guð- mundur Þórðarson hafi fengið 500—600 tunnur. Álftanes * ■ ■ Framhald af 16. síðu. áður, — hávaðinn yrði ó- þolandi. Skarkalinn bærist vel yfir sundið. Og það er víst ekki á næst- unni, sem við fáum hljóðlaus- ar flugvélar. Mér virðist ekkert vandamál leysast með flugvallarbygg- ingu á Álftanesi. FUJ-félagar Málfundur um folla MÁLFUNDUR verður haldinn annað kvöld, mánudag, kl. 8,30 í Burst. Umræðuefni; Tollar. Frummælandi Orlygur Geirs- son og Ingólfur Ingólfsson. Félagar í málfundahópnum og aðrir FUJ-félagar eru hvatt ir til að fjölmenna stundvís- lega. Bingó í Keflavík FUJ í Keflavík hefur Bingó i Ungmennafélagshúsinu í kvöldl kl. 9. Meðal vinninga er ferð til Kaupmannahafnar og heim aftur í'yrir tvo. Auk þess ýmsir aðrir glæsilegiir vinn-i ingar. _,_J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.