Alþýðublaðið - 03.12.1961, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 03.12.1961, Blaðsíða 13
V.S.V. skrifar um fjórar nýjar bækur Boris Pasternak Tilraun til sjálfsævisögu og ljóð. Geir Kristjánsson þyddi. Útgefandi; Helgafell. RÚSSNESKA skáldið Boris Pasternak, komst á allra var- ir, þegar honum voru veitt Nóbelsverðlaunin og bók hans Zivago læknir“ kom út á Vesturlöndum. Honum var meinað að taka á móti verð- laununum, mestu heiðurs- verðlaunum, sem nokkru skáldi geta hlotnast — og skáldsaga hans um rússneska lækninn kom ekki út í Sov- étríkjunum. Það var heldur ekki nóg með þetta, því að um sama leyti hófust ofsókn- ir gegn honum heima fyrir. Hann var fordæmdur opin- berlega. Mitt í þessum ógn- um lézt hann, en ekki slotaði hríðinni með þyí. Vinkona hans og dóttir hennar urðu fyrir ofsóknum, voru dæmd ar í fangelsi og sitja þar, eftir því sem bezt verður vit- að. ‘ Það er þvf ekki að undra þó að maður lesi sjálfsævi- sögu hans af mikilli forvitni. En fljótlega verður maður fyrir vonbrigðum. Bókin heitir: Tilraun til sjálfsævi- sögu .... og hún er ekki annað en tilraun, aðeins drep ið á nokkur atriði í lífsferli Pasternaks og ákaflega ein- hliða atriði, því að öll fjallar bókin um skáldskap hans og kynni hans af skáldum og listamönnum. Þetta skýrist fyrir manni, þegar höfundur inn segir frá því, að þessi saga sé skrifuð fyrir Rússa með það fyrir augum, að hún Boris Pasternak komi framan við úrval úr ljóðum skáldsins, sem í ráði sé að gefa út. Hvorugt hefur hins vegar verið gefið úl í Rússlandi. Höfundurinn skrif ar allt af með það fyrir aug- um, að hægt sé að gefa það út, að það móðgi ekki vald- hafana, að það sleppi í gegn Guðrún Jacobsen Píiagrímsför til lækninga- lindarinnar í Lourdes. Útgcfandi; Leiftur. GUÐRÚN JACOBSEN, frú í Hafnarfirði hefur sent frá sér lilla bók, sem hún nefnir Pílagrímsför til lækningalind arinnar í Lourdes. Guðrún mun áður hafa ritað eina eða tvær bækur, en þeim hef ég ekki kynnzt. Þessi bók er eins og góð blaðagrein. Við höf- um áður lesið mikið um lækningarnar á þessum stað, en fáar sagnir hef ég lesið um þær eins hlýjar og sak- leysislegar og þessa. Guðrún fór með dauðvona móður sína til Lourdes. Móðir henn- ar var þreytt, fátæk kona, sem hafði fórnað öllu fyrir börn sín. Nú bar hún erfiðan sjúkdóm og Guðrún vildi gera síðustu tilraun til að hjálpa henni, að manni skilst ekki aðeins líkamlega heldur ekki síður andlega. Gamla konan hafði aldrei farið til útlanda, en hin dugmikla dóttir hennar brauzt í því að komast út með hana, gekk fyrir hvers manns dyr og mætti alls staðar hjálpfýsi og góðri fyrirgreiðslu. Guð- rún segir ferðasöguna og hef ur glöggt auga fyrir því, sem fyrir ber á leiðinni og í Lour des. Hún hefur viðkvæmt hjarta og fær tár í augun er hún sér eymd fólks, gleðst yfir trúnaðartrausti kramar- fólksins — og sést ekki fyrir til hjálpar, þegar hennar er þörf, en við hvert fótmál er þörf líknar og hjálpar. Það er heiðríkja yfir þessari bók. Hún segir sögu lækninga- undranna og hún lýsir fólki og atburðum. Manni skilst að hvorki Guðrúnu né móð- ur hennar hafi orðið að trú sinni. Þó reis móðirin úr rekkju og komst heim, en fá- ir töldu henni lífs von með- an þær mæðgurnar dvöldu við lækningalindirnar. Guð- rún bregður upp mörgum myndum af samferðafólkinu og allar eru þessar lýsingar hugþekkar og eftirminnileg- ar. Jóhannes Hólabiskup Gunn arsson ritar formála fyrir bókinni og í henni er fjöldi mynda. ’ VSV. um einokuðu ríkisritskoðun- ina. Hvernig sem á því stend ur, hefur honum þó ekki tek izt að sigla fyrir skerin að fullu. Pasternak er mikil, heið og lær listamannssál og fagur- keri. Það er eins og honum sé ekki á vitund, að til sé annars konar líf, hröslulegra, erfiðara, harðara og misk- unnarlausara en líf fagur- kera og listamanna. Þetta sést bezt á því, að hann get- ur þess aðeins sem von- brigða, að eitt sinn þurfti hann að eiga heima í næsta nágrenni við vændiskonur og bellara. Eg held meira að segja, að það sé ekki hægt að skilja orð hans öðru vísi en þannig, að þarna hafi verið fátæklingahverfi á næstu grösum. Og Pasternak bók- slaflega kveinkar sér. Hann er særður. Hann fyllist ekki réttlátri reiði, hann stekkur ekki fram í heilögum eld- móði og hefur baráttu fyrir þvf að reisa þetta fólk á hnén. Nei, hann hryllir við, hann ekur sér af óværð. Það er mikil saga á milli línanna í þessari bók. Past- ernak er andvígur Sovétskipu laginu, eða er ef til vill rétt- ara að segja, að hann sé and- vígur afleiðingum þess: fjöldadýrkuninni, einstefnu- akstrinum í menningu, list- um og bókmenntum. Hann telur, að verið sé að færa mannssálina í fjölra — og það hryggir hann, en reitir hann ekki til reiði og upp- reisnar, svo að séð verði. — Nokkrir andans jötnar, lista- menn og fagurkerar, sem höfðu gengið kommúnisman- um á hönd f góðri trú, frömdu sjálfsmorð. Og það er eins og Pasternak áliti að þeir hafi með sjálfsmorðinu gerzt hetjur. Það er eins og hann dái þá. Og í þeim orð- um er eins og felist ómur af sjálfsátökunum. Hann þrauk aði, þoldi — og þagði. En þe:-r frömdu sjálfsmorð. Hann þoldi pínslirnar, en þeir sviftu sig lífi. Hann seg- ir það berum orðum, að það sé miklu stórfenglegra að svipta sig lífi en þola pínslir. Er sjálfsfyrirlitning og sjálfs ásökun raunverulega í þess- um orðum? Pasthrnnk ,,.. ég hef nú nýlokið stærsta og þýðingarmesta ritverki mínu, þvf eina ritverki, sem ég ekki skammast mín fyrir og sem ég tek fulla ábyrgð á. Það er skáldsagan „Zivago læknir“ og kvæðin, sem fylgja henni.“ Og hann lýkur þessari ,,til raun“ sinni til sjálfsævisögu með þessum orðum: „Æviágripi mínu lýkur hér. Að halda lengra væri ó- hemju örðugt. Ef ég héldi Frh. á 14. síðu. ELÍNBORG LÁRUSDÖTTIR Elinborg Lárusdótt r Eiríkur vegna hesta sinna, Bjarna sonar hans, Sigríðar dóttur séra Jóns Sigfússonar í Saurbæ í Eyjafirði, sem orð lögð hafði verið fyrir fegurð og gáfur, og ennfremur ann- ars fólks, sem uppi var á þeim tíma. Elínborg er mikil og góð spunakona. Þráðurinn rennur Framliald á 14. síðu. SHAKLETON Harðfengi og hetjulund, lirakningaför Shakletons til Suðurskautsins. Eftir Alfred I-ansing. Útgefandi Skuggsjá. MIKIÐ hefur verið skrifað um hrakninga Sir Ernest Shakletons og félaga hans árið 1915 og 1916 í Suður-íshafinu Hann hafði undirbúið ferð sína eins vel og frekast var kostur og þekking þe rra tíma náði til. Skip hans Endurance — Þolgæði, hafði verið byggt í Noregi og var vandað mjög til þess. Ætlun Shakletons var sú að fara fyrstur manna yfir auðnir Suðurskautsllandsins enda var hann hugrakkur og metnaðargjarn. Hann hafði valið sér sveit úrvalsmanna viðsvegar að, en eng'nn þeirra bar gæfu til að komast á ákvörðunarstað. Skipið festist í ís 27 október 1915 og hafði þá verið í för um það bil eitt ár. Skipverjar ailir, 28 að tölu urðu að yfirgefa skipið og skðmmu síðar sökk það. Þá var Snakleton með menn sína Fran<hald á 14. síðu. Endurance í ísnum SIR ERNEST Dag skal að kveldi lofa. Útgefandi Norðri. ELINBORG Lárusdóttir skáldkona varð 70 ára um daginn. Þann dag kom út 23. bók hennar. Sú fyrsta, Sögur, kom út 1935, þegar hún var 45 ára. Hún vaknaði seint, en hún hefur líka ver- ið starfandi síðan. í fyrra kom út skáldsagan Sól í há- degisstað. Það var upphaf ættarsögu. Nú kom framhald ið, annað bindið: Dag skal að kveldi lofa. Elinborg virðist hafa í hyggju bókaflokk und ir samheitinu: Horfnar kyn- slóðir. Ef til vill er von á framhaldi. Að minnsta kosti benda ýmis sólarmerki til þess, að skáldkonan hafi ekki lokið við efnið. Maður hefur og grun um, að enn sé hægt að segja góða sögu. Nú þegar þetta er orðin ein veiga mesta ættarsagan, sem við eigum, ef til viU að undan- skiiinni Sögu Borgarættar- innar. Það er sagt, að efnið, sem EHnborg reifar sé sannsögu- legt og hefur einn ritdómar- anna, Þorsteinn Jónsson skýrt svo frá, að skáldkon- an segi sögu Eiríks Bjarna- sonar í Djúpadal í Skaga- firði, sem kallaður var Mera AlþýðublaðíS — 3. des. 1961 J3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.