Alþýðublaðið - 28.12.1961, Síða 2

Alþýðublaðið - 28.12.1961, Síða 2
*Hstíórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjórl: Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasíml 14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu t—10. — Áskriftargjald kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef- andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri Sverrir Kjartansson. i Örrustan um Atlantshafið MEÐAL jólabókanna, sem voru að þessu sinni margar og fjölbreyttar, var ein, sem fjallaði um Orrustuna um Atlantshafið og var gefin út af ísa fold. Slík bók á vissulega erilndi til Íslendinga, sem lifa á eylandi í miðju þessu örlagahafi, og upplifðu þessa orrustu við bæjardyrnar. Ef til vill má segja um margar orrustur, að þær hafi ráðið úrslitum í síðustu styrjöld. Þó mun það ekki fullyrt um neina eins oft og orrustuna um Atlants hafið, enda augljóst, að hefðu bandamenn tapað íhenni, var styrjöldin einnig töpuð. Án þess að hafa opnað siglingaleið milli Bretlands og Ameríku var úhugsandi að brjóta veldi nazista á bak aftur. Hefðu hinir þýzku landkrabbar eins og Hitler skilið þetta fyrr, og til dæmis átt eins marga kafbáta 1939 og Sovétríkin eiga í dag, hefði farið öðru vísi en fór. Lærdómur þessarar orrustu fyrir íslendinga er augljós. Við höfum búið og búum enn við þá sömu aðstöðu og Bretar, að við getum ekki lifað án þess að siglingar til lands okkar séu greiðar og röfni ekki. Það væri) hægt að svelta ísland með því einu að stöðva olíuflutninga hingað til lands í nokkra mánuði. Af þess,u er augljóst, hversu gíf urlegra hagsmuna íslendingar eiga sjálfir að gæta I 'á Atlantshafi, og hversu sjálfsagt mál það er, að þeir hafil náið samstarf við þær þjóðir, sem tryggt hafa og tryggja í dag friðsamlegar siglingar um hafið. Með því að kynnast orrustunni um Atlantshaf ið geta íslendingar einnig áttað sig á höfuðatrið um hinnar hernaðarlegu þýðilngar landsins. Sú þýð ing er svo mikil, að ísland mundi aldrei látið af skiptalaust í styrjöld, og þess vegna er óraunhæf fásinna að tala um hlutlaust ísland. Stundum er haldið fram, að brjótist ný heims styrjöld út, muni hún hefjast á kjarnorkuárásum stórveldanna hvort á annað, og sennilega ljúka eft :ir að allt hefur verið lagt í rúst. Kunnugustu menn eru þó þeirrar skoðunar, að líklegra sé að átök ! hefjist á gamla mátann og geti síðar ef til viíll orð ið kjarnorkustyrjöld. Þess vegna búa stórveldin sig einnig undir styrjöld með „eldri vopnum“ og þess vegna er bæði í austri og vestri viðbúnaður til nýrra átaka um siglingaleiðir hafsins. Því gæti farið svo — því miður — að orrustan um Atlants hafið yrði endurtekin með öllum þeim hörmung um, sem henni fylgdu fyrir Islendinga og aðrar þjóð ir. Góð bók um orrustuna um Atlantshafjð fjallar því ekki aðeins um liðna tíð, heldur um sögu, sem getur endurtekilð sig. , Auglýsingasíml blaðsins er 14906 28. des. 1961 — Alþýðublaðið HANNES Á H ORNINU ■'jJsT Hvað er undirrótin að óeirðunum á Þor láksmessu. •fe Gamlárskvöld er fram undan. Lögreglan réði ekki við lýðinn. ýV Kom alveg á óvart. ÞAÐ HEFUR lcngi verið siður margra Reykvíkinga að íara í verzlanir á Þorláksmessu. Þá haía hjón farið í bæ'nn, eins og það er kallað og verzlað nokkuð, keypt jólagjafir, sem ekki Var búið að kaupa, jólafrésskraut og ýmsa smámuni. Mannfjöldinn i miðbænum hefur þá alltaf verið mikill og alla le'ð inn allan Laugaveg, lögreglan stjórnaði umferðinnj af röggsemi og festu og fólk haft fullan skjlning á því að einnig því bar að hl ðra til og stefna að bví að kvöldið gæti ver ið ánægjulegt fyrir alla. ÞANNIG HEFUR það og verið í fjölda mörg undanfarin ár. En nú brá út af. Fólk varð að flýja heim á Þorláksmessukvöld vegna óláta í bænum. Piltur kom að mál, við mig kl. um 10 um kvöldið og sagði: „Það er allt vit laust niðri í bæ og lögreglan ræður ekk; við neitt. Ég fór bara heim.“ Maður sagði við rnig: ,,Ég fór kl. 9 í bæinn með konu VETRARLISTI HAGKAUP KOMINN ÚT VETRARLISTI HAGKAUP er nú kominn út og verður send- ur hverjum sem þess óskar. — Hafa Hagkaup nú aflað sér sam banda við verksmiðjur hér og erlendis um kaup á útsölu- vörum frá þeim. — Eru vörur þessar nú væntanlegar og eiga viðskiptavinir liinnar íslenzku póstverzlunar nú kost á að panta þessar vörur á lægra verði en almennt tíðkast í verzl u»um. Og til þess að geta orðið þess ara kjarakaupa aðnjótandi þurfa menn ekki annars við en gerst fastir áskrifendur að auka verðlistablöðum, sem „Hag- kaup“ gefur út, og kosta aðeins tíu krónur á ári. Þar verður til kynnt um þessar útsöluvörur hverju sinni, og einnig verður þar skýrt frá verðbreytingum, sem kunna að verða á þeim vÖrum, sem skráðar hafa verið Framhald á 11. síðu |m:nni, en þá voru svo mikil | skrílslæti í Austurstræti að við I snérum v.ð og fórum heim.“ i HVAÐ VELDUR ÞVÍ, að skríislætin blossuðu upp nú, ' fyrst það hefur ekki verið siður að halda slíku uppi síðastliðin Þorláksmessukvöld? Ég efast ekki um að lögreglan hefur velt þessu fyrir sér. Enda er nauðsyn íegt að kornast að niðurstöðu um það og taka fyr r kverkarnar á ósómanum. Skríll sprengdi kín- verja inni í búðum, henti þeim í mannfjölda, gerði aðsúg að lög. regluþjónum sem voru að skyldustörfum og kastaði jafnvel kínverjum framan í þá. SVO VIRÐIST að kínverjarn ir séu undirrótin. Þó heyrð; ég ekki betur í jólavikunn; en að lögregia.n bannaði kinverja, leggði blátt bann við því, að þeir væru seld r og þeim kastað. Það á að framfylgja öllu slíku til hins ítrasta. Það ætt; að vera hægur vandi, að komast fyrir það, hver íramleiðir þessa hættulegu bannvöru og hverjir selja hana. Síðan á að kenna þeim, sem gera þetta, að hlýða. MENN ÓTTAST að fyrst allt í einu blossuðu upp skrílslæti á Þorláksmessu, þá munj keyra um þverbak á Gamlárskvöld. Rétt er að vera v;ð öllu búinn I gamla daga bar mjög á óeirðum og vandræðum þessi kvöld, en ástandið hefur farið mjög batn- andi síðastlið nn áratug. Fyrrum urðu mörg slys af þessum völd- um og föt fólks eyðilögð. Undan farið hefur ekki borið á slíku. Á nú aftur að sækja í sama horfið?, Það væri illa farið. RÉTT ER að rannsaka til full3 nú þegar, hverjir það eru er framleiða kínverjana, sem virð- ast vera hættulegri en margur hyggur. Og síðan að koma í veg fyrir dreyfingu þeirra. Gamla- árskvöld er framundan. Hannes á liorninu 12000 vinningar á ári \ 30 krónur miðinn KjðrgaiSur 4»augaveg 59. &!!■ konar karlmaimaf*ina5 < ar. — Afgreiðmn föt eftlif máll eðs eftlr otLm«rt •tBttnm fjrir»*r» Hítíma Húseigendur . Miðstöðvarkatlar Smíðum svalar og stiga handrig. Viðgerðir og upp setning á olíukynditækjum, (heimilistækjum og margs kon sr vélaviðgerðir. Ýmiss konar 1 nýsmíði. Liátið fagmenn annast verk ;ið. Vélsmiðjan SIRKILL. Hringbraut 121 í húsi Vikur- í félagsins, áður Flókagötu 6. | Símar 24912 og 34449.' ! þérhafið áqöðavon iMiismi HAPPDRÆTTI HABKÚLANS j Auglýsin; Að gefríu tllefni skal vakin athygli á því, að bannað er, samkvæmt lögreglusamþykkt Reykja víkur, að sprengja svokallaða kínverja, púðurkerl ingar og aðrar þess háttar snrengjur á almanna færi, enda er framleiðsla þeirra og sala óheimil hér í umúæminu. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 27. desember 1961. SIGURJÓN SIGURÐSSON.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.