Alþýðublaðið - 08.04.1962, Page 2
| tttstjórar: Glsll J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — ASstoöarritstjórl:
■Biörgvin GuSmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími
Í.4 906. — ASsetur: AlþýSuhúsiS. — Prentsmiðja AlþýðublaSsins, Hverfisgötu
t—10. — Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuSi. í lausasölu kr. 3.00 eint. Útgef-
andi: Aipýöuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeír Jóhannesson.
Öngþveiti í lóöamium
iönaðarins í Reykjavík
'BORGARSTJÓRN Reykjavíkur hefur nú sam-
þykkt að skipuleggja iðnaðar'hverfi við Grensás-
veg. Það er ekki seinna vænna, að meirihluti borg
arstjómar rumski í þessu máli. Fyrir síðustu borg
arstjórnarkosningar lagði Alþýðuflokkurinn mikla
éherzlu á það, að sem fyrst yrði bætt úr aðkallandi
lóðaþörf iðnfyrirtækja Reykjavíkur. Sjálfstæðis-
. flokkurinn hefur þó ekkert aðhafzt í þessu nauð-
synjamáli allt kjörtímabilið en rumskar nú rétt
fyrir kosningar eins og reyndar í fleiri málum. í
(kosningastefnuskrá Alþýðuflokksins fyrir síðustu
Niæjarstjórnarkosningar sagði svo m. a. um þetta
; latriði:
„Stuðlað verði af fremsta megni að vexti og
viðgangi heilbrigðs iðnaðar í bænum og kostað
kapps um að bæta úr húsnæðis- og lóðaþörf
I þeirra iðnfyrirtækja, sem nú eru starfandi og
leggja grundvöll að nýjum með því að skipu-
■ leggja sérstök verksmiðjuhverfi á hentugum
stöðum í bæjarlandinu“.
Sannleikurinn er sá, að lóðamál iðnaðarins í
1 Reykjavík eru komin í hreint öngþveiti og er sleif-
1 arlag borgarstjórnar í því efni búið að valda iðnað
! inum stórtjóni. Fjölmörg fyrirtæki hafa orðið að
f flýja úr borginni með starfsemi sína vegna þess að
• engin leið hefur verið fyrir þessi fyrirtæki að fá
■ lóðir undir starfsemi sína. Það er alltaf gefið sama
svarið, þegar fyrirtæki sækir um lóð: Það er ekki
■ búið að ákveða skipulagið á þessu svæði og þess
• vegna ekki unnt að úthluta þar lóðum. En það ein-
fcennilega er, að alltaf fá einhverjir gæðingar í-
fkaldsins samt lóðir á hinum óskipulögðu svæðum!
Það er vissulega nokkuð hart þegar gróin reyk-
• vísk iðnfyrirtæki verða flýja með starfsemi sína
úr höfuðborgmni vegna þess að yfirvæld borgarinn
ér hafa ekki komið þyí í verk að skipuleggja þau
svæði sem helzt koma til greina undir verksmiðj-
ur. En þannig hefur þetta verið. Ekki aðeins e’n- ,
staklingar verða að flýja út úr borginni til þess að j
fá lóðir undir íbúðarhús sín heldur einnig fyrir- \
láekin. Væntanlega verður áætlun borgarstjórnar í
nú um verksmiðjuhverfi við Grensásveg meira en
kosningaloforð.
I Auglýsingasími
< Alþýöublaðsirts
£
! h er 14906
’ %: , ; : -
hádegisverður á hálftíma
Hér á eftir fcr mat-
seðill vikunnar:
Sunnudagur 8/4
Aspargussúpa
eða
Steikt fiskflök
m/cocktailsósu kr. 30
eða Omelett m/sveppum kr.30
eða
Lambasmásteik m/grænmeti kr. 40
Mánudagur 9/4 Tómatsúpa eða Soðinn fiskur m/smjöri kr. 30
eða Ommelett m/baeon kr. 30
eða Gullash m/kartöflumús kr. 40
Þriðjudagur 10/4.
Baunasúpa
og
Steikt fiskiflök
m/sítrónusósu kr. 30
eða
Omelett
m/skinku kr. 30
eða
Saltkjöt og baunir kr. 40
Miðvikudagur 11/4
Grænmetissúpa
eða
Soðinn fiskur .
m/smjöri kr. 30
eða
Egg Beary kr. 30
eða
Kryddsoðinn bauti
m/grænmeti kr. 40.
Fimmtudagur 12/4
Kjötsúpa
eða
Steiktur fiskur Nenweré kr. 30
eða
Omelett
m/grænmeti kr. 30
eða
íslenzkt lambakjöt
og kjötsúpa kr. 40
ATH.: að þjónustu-
gjald og söluskattur er
innifalið í verðinu.
*
Glaumbær
v Fríkirkjuvegi 7. Sími: 22643 og 19330
2 8. apríl 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ