Alþýðublaðið - 11.04.1962, Side 1
wwwimwwmmwwwmmwwwmwwmmwwwwwm
HVORKI meira né minna en 116 nemendur í Mýrarhúsa-
skóla á Seltjarnarnesi hafa gengið í Skíðalandsgöngunni <1 km.)
Eru það um 431/2% jiemenda skólans. í gær var gefið að nokkru
frí í skólanum svo Inemendurnir gætu gengið. Var þessi mynd
tekin við það tækifæri á Melshúsatúni, en þar gengu krakkarn-
ir 4 hringi. Voru þetta börn á aldrinum 7—11 ára.
43. árg. — MiSvikudagur 11. apríl 1962 — 85. tbl.
KARLSEFNI
Verkfallsbrjóturinn Karlsefni
verður að taka ákvörðun I dag,
í síðasta lagi, hvort liann reynir
að sigla með aflann. Útgerð tog-
arans sótti um leyfi í fyrradag til
að selja aflann í Bretlandi, en ís-
lenzk yfirvöld neituðu. ,
Selji Karlsefni aflann samt er-
lendis vofir yfir honum alit að
hálfrar milljón króna sekt vegna
brots á útflutningslöggjöfinni.
Ekki er ólíklegt, að FÍB gerði
einnig einhverjar ráðstafanir gagn
vart útgerðinni, þar sem um samn
ingsbrot er að ræða.
Jón Sigurðsson, formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, skýrði
blaðinu svo frá í gær, að Alþjóða-
samband flutningaverkamanna
hefði skýrt sér svo frá í gærdag,
að það hefði gert allar ráðstáf-
anir til að Karlsefni geti ekki
landað neins staðar í höfnum á
yfirráðasvæði þess. Ennfremur
hefur ASÍ gert ráðstafanir í ísi.
höfnum.
Sigii Karlsefni ekki á erlendan
markað, getur hann, ef tii viii ver
ið 2—3 daga til viðbótar á veið-
um, en hlýtur þá að halda til
hafnar.
í FRAMHAEÐI af viðræðum,
átt liafa sér stað milli ríkisstjórn
arinnar og Alþýðusambands ís-
lands um kaup og kjaramál, hefur
ríkisstjórnin ritað ASÍ svohljóð
andi bréf:
í tilefni af bréfi Alþýðusambands
ísjands frá 6. þ.m. vill ríkisstjóruin
rifja upp aðalatriði þess, sem frarn
liefur komið af hennar hálfu í við
ræðum á milli hennar og Alþjðu
sambandsins á undanföri' im má'i
uðum.
Af tillögum Alþýðusambandsins
taldi ríkisstjórnin, að hugmyndin
um styttingu vinnutímans án skerö
ingar heildarlauna væri hin eina
sem leitt gæti til rannverukgra
kjarabóta. Með hagkvæmari vinnu
brögðum á að vera hægt að fram
leiða jafnmikið og nú á styttri
tíma og ná þannig kjurabólnm.
Þetta mál er nú í athugun nefnda
sem Alþingi hefur kosið í því
skyni. Hins vegar benti ríkisstjó n
in á það, að tillögur Alþýðusatn
bandsins um að ná kjarabótum
með lækkunum á verði nauðsynja
vöru væru ekki raunhæfar. Hér
á landi hefur verið gengið lengra
en í nokkru landi öðru í þá átt að
halda niðri verði nauðsynjavöru
með afnámi tolla, niðurgreiðslum
og lágum flutningsgjöldum, og er
fckki framkvæmanlegt að ha'tUa
enn lengra á þeirri braut.
í viðræðunum benti ríkisstjórn-n
á það, að almennar laanahækkanir
mega ekki vera meiri en sem svar
ar aukningu framleiðslu á mann
og verðhækkun útflutningsafurða,
ef verðbólga á ekki að hljótast af.
hað jafnvægi er nú hefur náðst i
íslenzku efnahagslífi, bæ'ir skil-
jM’ðin fyrir framleiðsluaukningu
en samt er ekki hægt að gera ráð
Blaðið hefur hlerað
AÐ þessi sjö hafi orðið efst í
prófkosningu Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík:[
Geir Hallgrímsson, Auður
Auðuns, Gróa Pétursdóttir,
Gísli Halldórsson, Guðjón
Sigurðsson, Gunnar Helga
son og Birgir ísl. Gunn-
arsson.
fyrir, að aukning framleiðslu á
mann geti orðið meiri eii 2-3% á
ári að meðaltali næstu árin. Verð |
útflutningsafurða hefur undanfar
ið ár farið liækkandi, en er þó að i
meðaltali enn ckki orðið eins hátt!
og það var í árslok 1959. Sú 4% |
almenna launahæli kun,4sem gengur j
í gildi þann 1. júní n.k., er því j
eins há og nokkur tök ^ru á- Þessi
launahækkun getur að jnestu leyti1
orðið til kjarabóta, en sérhver al
menn launaliækkun uinfram hana
lilýtur að leiða til verðbólgu, scm
er launþegum jafn skaðleg og hún
er þjóöfélaginu öllu.
Öðru máli gegnir um lavnahækk
anir einstagra starfshóoa. ef þær
leiða ekki til almennrar hækkunar
verði liækkuð, svo framarlega sem
að hún teldi, að athuga bæri sér
staklega liækkun á launu'ti þeirra
verkamanna, sem lægst eru laun
aðir. í svari því, er mið;t-,órn A1
þýðusambandsin1- flutti fíkisstjórn
inni, taldi hún þetta mál ekki vera
í sinum verkahring, heldur í verka
hring cinstakra verkalýðsfélaga.
Ríkisstjórnin vill liér með ítreka,
að liún telur, að með liagkvæmari
vinnubrögðum sé hægt að fram
leið'a jafnmikið og nú er gert á
Framh. á 5. síðu.
RAMBOÐSIIST ■!
SAMÞYK
1 [ Framboðslisíi Alþýðuflokksins við borgarstjórnarkosningarnar ! !
j; í Reykjavík í vor var samþykktur einróma á sameiginlegum |!
j; fundi flokksfélaganna í Reykjavík í gærkvöldi svo og í fulltrúa !!
;[ ráði Alþýðuflokksins í Reykjavík. Var listinn samþykktur ó- j!
; [ breyttur eins og uppstillinganefnd og Fulltrúaráð hafði geugið !!
!! frá honum. Mun Alþýðuflokkurinn vera fyrstur allra flokkanna !!
J! til þess að samþykkja lista sinn enda er óeining nú mikil í Iiinum !!
;! flokkunum, einkum þó lijá kommúnistum. Framboðslisti Alþýðu $
;! flokksins verður birtur í lieild í blaðinu á morgun. S