Alþýðublaðið - 11.04.1962, Síða 16
FLO.KKURÍNN
V5%fr%,%%%%%VI»’V%'%'%%%%%%'%V%%'%%%%%V%%%%'%%%%%%%%%%%%i%%1 %%%■%%%%%%%%%%%%%%%%%(%%%%%%%%%%%%%%%,WWWWWWV1
> Kvenfélag Alþýðuflokks-
ins í Reykjavík hafði
\
: skemmtun fyrir eidra fólk
; J sl. mánudagskvöld í Iðnó.
; Það var í 10. sinn, sem fé-
> lagið efnir til slíkrar
skemmtunar og sóttu liana
um 250 manns.
Margt fór fram til
skemmtunar m. a. kveðskap
ur, söngur, gamanvísur og
ný, íslenzk kvikmynd eftir
Osvald Knudsen sýnd.
Kaffiveitingar voru og á-
gætt meölæti. Eldra fólkið
var mjög ánægt með
skemmtunina og félaginu
þakklátt.
Myndin er frá skemmt-
uninni.
18 MEÐ -
12 Á MÓTI
ÍSLENZKT SJÓNVARP Maut
meirihluta á Alþingi í fyrsta sinn
£ gærdag. Kom til atkvæða í
•eðri deiid breytingartiilaga frá
Benedikt Gröndal, sem gerði ráð
fyrir fyrstu fjárútvegun til sjón-
varpsins, og var hún samþykkt
með 18 atkv. gegn 12.
Til umræðu var frumvarp um
að framlengja bráðabirgðaákvæði
I skemmtanaskattslögunum. Sam-
kvæmt því ákvæði, sem gilt hefur
um langt árabil, rennur ágóði af
Viðtækjaeinkasölu ríkisins til
Þjóðleikhússins og Sinfóníuhljóm
sveitarinnar.
Þegar þetta ákvæði var sam-
þykkt J957, flutti Benedikt
breytingatillögu þess efnis, að á-j
góði Viötækjaeinkasölunnar af
innflutningi sjónvarpstækja skyldi:
renna til undirbúnings og reksturs
íslenzks sjónvarps. Þá var sú til-l
Iaga kolfelld í neðri deild.
Nú flutti Benedikt aftur sömu
tillögu og óskaði eftir nafnakalli
við atkvæðagrciðslu um hana. Fór
svo, að 18 sögðu já, 12 sögðu nei,
3 greiddu ekki atkvæði og 7 voru
fjarverandi. Á móti tillögunni
voru flestir Sjálfstæðismenn,
nokkrir íhaldssömustu Framsókn
armenn og Hannibal Valdimars-
son. Með tillögunni voru Alþýðu-
flokksmenn, flestir Framsóknar-
og Alþýðubandalagsmenn og
nokkrir Sjálfstæðismenn. Ráð-
herrar skiptust með tillögunni og
móti eða sátu hjá.
í framsögu fyrir málinu sagði
Benedikt, að það mundi í engu
Framhald á 11. síðu.
Sagði Guðsteinn jafnframt, að
þetta fýrirkomulag væri það sem
hlyti að koma fyrr eða seinna.
Ld© (
R
ALÞINGI afgreiddi í gær sam-
tals 19 ný lagafrumvörp, og voru
fundir allan daginn, en fram á
kvöld í neðri deild. Meðal þess-
ara nýju laga, eru stórir bálkar
um veigamikil atriði, sem þingið
hefur fjallað um lengi og höfðu
verið vandlega undirbúnir utan
þings.
Meðal hinna nýju frumvarpa,
voru lög um verkamannabústaði,
Hæstarétt, samvinnubanka, , at-
vinnubótasjóð, ríkisborgararétt,
lijúkrunarskóla, læknaskipun,
iðnaðarbanka og margt fleira.
SPILAÐ í
FIRÐINUM
Alþýðuflokksfélögin í Ilafnar-
firði hafa spilakvöld í Alþýðu-
liúsinu kl. 8,30 annað kvöld.
Góð kvöldverðlaun verða veitt
og spilað áfram um heildarverð-
launin. Félagar, fjölmennið og
takið með ykkur gesti.
Reykt síldar-
“k flutt út
HAFINN er útflutningur á veg-
unt Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar
á nýrri íslenzkri útflutningsvöru.
Það er reykt síldarflök, sem síð-
Eyjafjörður
og- Öxnadals-
heiði ófær
Öxnadalsheiði varð ófær í gær.
Mikið hefur snjóað fyrir norðan
■ndanfarna daga, og eru nú allir
vegir að verða ófærir í Eyjafirði.
I gær var fært til Ólafsfjarðar
Og végurinn yfir Kerlingaskarð til
Stykkishólms var einnig fær. Þá
var fært í gær yfir Bröttubrekku.
an eru hraðfryst. Framleiðslan fer
til Skotlands.
Langjökull er nú á leið til Bret
lands með fyrsta farminn. Fram-
leiðsla þessi er gerð samkvæmt
samningi Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar og National Fishouring Co.
í Aberdeen í Skotlandi, sem er
mjög stórt fyrirtæki.
Sérfræðingur frá því hefur
verið í Hafnarfirði til að leið-
beina um framleiðsluna. Sölu-
horfur fyrir reyktu síldarflökin og
síldarflök, sem Bretar kalla
„kippers" teljast mjög góðar eins
og nú liorfir.
SKRÍFSTOFU BISKUPS höfðu
alls borizt gjafir að upphæð
566.217,75 krónur vegna sjó-
slysasöfnunarinnar sl. fimmtu-
dag.
IMUHtUMtUMMMMMUMW
GLERID
SELT
FRIÐRIK Sigurbjörnsson,
framkvæmdastjóri íslenzk-
Erlenda, og fimm' menn
aðrir áhangandi Verzlunar-
ráði íslands hafa samið við
Framkvæmdabanka ís-
lands um kaup á Glervöru-
vcrksmiðjunni við Elliðaár-
vog.
Fyrir viku féll ToIIvöru-
geymslan h.f. frá kaupum á
verksmiöjunni, en ýmsir
hafa haft hug á að kaupa
hana. Hinir nýju eigendur
munu nota glerverksmiðj-
una fyrir vöruskemmu.
MWWtMWMWWWWWMWM
EINS og kunnugt er, hefur
Magnús Z. Sigurðsson á leigu 3
frystihús á Suðurnesjum. AUt frá
því að vertíðin hófst, hefur hol-
lenzkt frystiskip komið til Kefla-
víkur og sótt allan þann fisk, sem
frystihúsin hafa hverju sinui. —
Hefur síðan verið gert upp við
frystihúsin viku eftir að fiskurinn
hefur verið tekinn.
Frystihúsin, sem Magnús hef-
ur á leigu, eru Snæfell í Kefla-
vík, Miðnes í Saridgerði og Hrað-
frystihús Grindavíkur, en eigandi
þess er Guðsteinn Einarsson.
Alþýðublaðið ræddi í gær við
Guðstein, og spurði hann hvern-
ig hefði gengið með söluna á
fiskinum. Sagði hann, að allt
hefði staðið heima, sem Magnús
hefði lofað um fiskkaupin og
annað, og kvaðst hann vera mjög
ánægður með viðskiptin. Sagði
hann, að allt, sem frystihúsið
hefði framleitt, hefði verið selt
jafnóðum.
Þá sagði Guðsteinn, að ávallt
hefði verið gert upp fyrir fiskinn
viku eftir að liann liefur verið
fluttur úr landi og væri það til
mikils hægræðis fyrir frystihúsin
og gerði reksturinn á alian hátt
hagstæðari og betri.