Alþýðublaðið - 19.05.1962, Page 2
Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — AtSstoóarritstjóri:
Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími
14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Aiþýðublaðsins, Hverfisgötu
8—10. — Áskriftargjald Kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef-
andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson.
' . • v v' ' , ■ ‘ ■■" . '
Brynjólfur / Rostock
ALÞÝÐUBLAÐIÐ birti í fyrra greinar um
tengsl íslenzkra kommúnista við yfirvöld Austur-
Þýzkalands. Var þar skýrt frá starfsemi þeirri, sem
fram fer í sambandi við háskólann í Greifswald og
athyglisverðum fyrirlestri, sem Brynjólfur Bjama
son flutti þar. Upplýsti Brynjólfur þar meðal ann-
ars, að það hefði frá upphafi verið ætlun Kommún
ista að beita sams konar „sameiningarstefnu“ gagn
vart Framsókn og beitt var á sínum tíma við Al-
þýðuflokkinn, er Héðinn klauf hann.
Þá var skýrt frá því, að fjöldi íslezkra kommún
ista hefði farið til Austur-Þýzkalands í sambandi
við Eystrasaltsvikuna, og hefði verið haldið sér-
stakt námskeið fyrir þá í kommúnistískum fræð-
uin, áróðri og undirróðursstarfsemi.
Allt þetta hafði verið vandlega undirbúið af sjálf
um Brynjólfi Bjarnasyni í sömu ferð og hann flutti
áðurnefndan fyrirlestur í Greifswald.
Hinn 11. janúar 1960 átti Brynjólfur í Rostock
íijarlegar viðræður við háttsetta embættismenn í
utanríkisdeild (Abteilung Aussenpolitik imd Inter
nationalen Verbindungen des KZ der SED) mið-
stjórnar austur-þýzka kommúnistaflokksins. Var
rætt um víðtækan stuðning Austur-Þjóðverja við
kommúnista á íslandi, sérstaklega ef tækist að
koma varnarliðinu á brott frá landinu. Auk þess
var samið um víðtæka hjálp við þjálfun á áróðurs-
og skipulagsmönnum fyrir íslenzka flokkinn og
voru áðurnefnd námskeið höfuðþáttur í þeirri á-
ætlun. Skyldi þessi sérþjálfun meðai annars fara
fram í verkalýðsskólanum í Bernau og sjálfum
flokksskólum SED.
Nú hefur Morgunblaðinu tekizt að komast yfir
skýrslur, þar sem segir nánar frá þessum námskeið
um fyrir íslenzka kommúnista, sem fram hafa far
ið algerlega á kostnað austur-þýzkra yfirvalda.
Blaðið setur léttúðugan áróðurssvip á frásögn sína
með því að birta grófar skopteikningar af drykkju
skap hinna íslenzku nemenda. Þó er málið of alvar-
legs eðlis til að veita því slíka meðferð.
íslendingar verða að íhuga eftirfarandi hiið á
þéssu máli: Hér á Jandi starfar stór stjórnmála-
flokkur, sem er svo gersamlega á valdi erlendra
afla, að hann sendir til annarra landa HEILA
HÓPA af ungum íslendingum til að láta þjálía þá
ájsérstökum námskeiðum fyrir íslendinga, þar sem
þeim eru kenndar aðferðir til að ná völdum hér
heima. Og jafnframt er samið um stórfelldan er-
léndan styrk, sem á að koma til framkvæmda, þeg
ar varnarliðið fer frá íslandi!!
G-etur íslenzkt alþýðufólk stutt þessa menn leng
oir?
í
2 19- maí 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
kvensokkar
sokkarnir, sem ætíð hafa verið seldir
með ÍSABELLA vörumerkinu.
Þessir sokkar eiga meiri vinsældum að fagna um allt land en nokkur
önnur sokkategund.
Þórður Sveinsson & Có. h.f.
Sími 18-700.
HANNES
Á HORNINU
fc Þegar litið er yfir liðna
tíð.
★ Og skyggnst er um
bekki í dag.
★ Rýtingsstungan í þjóðfé
lagið.
Ifc Lömun samtakamáttar-
ins.
| fc Stjórnarskrá fólksins.
TRYGGVI PÉTURSSON banka
| fulltrúi sagði í viðtali hér í blað-
Iinu fyrir nokkru, að hann teldi það
tvímælalaust dóminn um Alþýðu
flokkinn og starf hans að sjá ár-
angurinn þegar litið væri yfir upp
skeruna hina síðustu áratugi. Hann
bætti því við, að ef til vill þætti
ýmsum nokkuð seint hafa gengið,
■ en árangurinn af starfinu væri
mikill og glæsiiegur þegar litið
væri yfir leiðina, sem farin hefði
verið.
ÞETTA ER mergurinn málsins.
Alþýðuflokkurinn hefur gjör
breytt þjóðfélaginu til hagsbóta
fyrir alla launþega. Að vísu er það
ekki rétt, að þakka honum einum
allt, en hann hefur rutt brautina,
það er ekki hægt að komast hjá
því að játa það. Hann hóf barátt-
una, hann stjórnaði henni, hann
sveigði smátt og smátt aðra flokka
til þess að ganga inn á sjónarmið
sín — og hann hefur borið gæfu
til að geta lialdið um stjórnartaum
ana við framkvæmd ýmsra þeirra
mála, sem hann þegar í upphafi
bar fyrst og fremst fram.
SIGUR MÁLEFNANNA er aðal-
atriðið, en ekki kosningatölur á
kjördegi. Þetta hefur ekki alltaf
farið saman hjá Alþýðuflokknum,
langt í frá. Það hefur starfað a£
glapsýn kjósenda, sem að vísu er,
að ýmsu leyti eðlileg, þó að ekki
sé hægt að fallast. á það, að hún
sýni framsýni eða þroska.
ÉG HELD að enginn flokkur eigl
sér eins glæsilega málefnalega
sögu og Alþýðuflokkurinn. Hann
hefur starfað og liáð sína baráttu
á mestu byltingatímum, sem yfir
þjóðirnar hafa gengið. Kommún
isminn ruddi sér til rúrps um öll
lönd og sprengdi og splundraði
samtökum fólksins, leiddi margar
út í styrjaldir og þær ógnir,'sem
þeim fylgja. Við fórum ekki var
hluta af því.
KOMMÚNÍSMINN SUNDRAÐI
tvisvar sinnum samtökum íslenzks
alþýðufólks og Sjálfstæðisflokkur
inn blés í glæöurnar og studdi þá
iðju af öllum mætti í misskilinni
andúð á alþýðufélögunum. Þann
draug glímir nú Sjálfstæðisflokkur
inn við meir en Alþýðuflokkurinn.
Þvl ber sízt að fagna, en tjón þjóð
félagsins í heild er orðið gífurlegt
vegna þessara ævintýra. Ef það
hefði ekki komið til, þá væri hér
starfandi samvirkt og öflugt þjóð
félag' og þegnarnir byggju við
styrkan fjárhag þess og öryggi
sjálfs sín.
ÞAÐ VERÐUR að setja traust
Framh. á 15. síðu
/