Alþýðublaðið - 15.06.1962, Qupperneq 1
Fimmtugasta kvöldið
EINS og við sög’ðum frá í gær, var fimmtugasta sýningin á
My Fair Lady í fyrrakvöld. Við brugðum okkur bak við tjöld-
in af því tilefni og tókum fjölda mynda. Ilér er ein: Vala Krist
jánsson í búningsherbergi býr sig undir að halda inn sviðið
í gerfi Eliza Doolittle. í baksýn Anna Guðmundsdóttir. —
P. S. Við sýnum ykkur fleiri tjaldabaksmyndir í OPNU á morg
un.
en Gurio
til íslands
DAVID BEN GURION, forsætis-
ráðherra ísraels, kemur í opinbera
heimsókn til Reykjavíkur í byrjun
september n.k.
Forsætisráðherrann keraur hing
að 2. september og verður liér í
boði forsætisráðherra í tvo daga.
Blaðið fékk þessar upplýsiiigar
lijá ræðismanni ísraels hér á landi,
Sigurgeiri Sigurjónssyni. Hann
sagði, að ekki hefði verið ákveðið
ennþá hvernig heimsóknini yrði
hagað í einstökmn atriðum.
llingað kemur forsætisráðlierr-
ann frá Norðurlöndum. í frétt frá
NTB í gær segir, að Ben Gurion
komi í heimsókn til Svíþjóðar og
Noregs í ágúst.
í fréttinni segir, að Ben Gurion
komi í heimsókn til Svíþjóðar á-
samt konu sinni hinn 21. ágúst cg
verði þar til 27. ágúst.
Samkvæmt þessari frétt mun
Ben Gurion lieimsækja önnur
Norðurlönd Verða þau hjónin senni
lega í Noregi dagana 28. til 31. á-
gúst.
'Sigurgeir Sigurjónsson ræðis-
MÖNNUIVI: 27.4 MILLJÓNBR.
TEKJUR íslendinga af erlendum
ferðamönnum námu árið 1961 27.4
milljónum króna. Það komu hingað
til lands 13.516 útlendingar sl. ár.
þar af 10.899 með flugvélum en
2.617 með skipum.
Af útlendingum, sem komu hing
að til lands sl. ár voru Danir og
Bandaríkjamenn langf jölmenn-
astir eða hinir fyrrnefndu 3.685,
en hinir síðarnefndu 3.700. Með
Dönum eru taldir Færeyingar,
þar eð í skýrslum útlendingaeftir-
litsins er ekki greint á milli þcirra.
Verulegur hluti Bandaríkjamanna
hefur komið hingað vegna dvaíar
varnarliðsins liér og nokkuð af
Dönunum vegna starfsemi þeirra
á Grænlandi. Bretar, sem hingað
komu sl. ár voru 1.705 talsins, —
Þjóðverjar 1494, Svíar 736 og
Norðmenn 633.
Sem fyrr segir komu flestir út-
Ic.i.umgar til iands mcð
flugvélum. Frá 1950 hefur tala út-
lendinga, sem ferðazt hafa til ís-
lands með flugvélum verið sem
hér segir:
1950: 2649 1957: 6507
1951: 2084 1958: 7326
1952: 2459 1959: 9021
1953: 4866 1956: 6527
1954: 4622 1960: 9912
1955: 6636 1961: 10899
Árið 1961 fóru 7658 íslendingar
með flugvélum til útlanda og 2637
með skipum. — Upplýsingar þess-
ar eru úr Fjármálatíðindum.
Duldar tekjur
743 milljónir
DULDAR gjaldeyristekjur
bankanna námu 743 millj. kr.
sl. ár. Skiptast þær sem hér
segir: (í millj. kr.)
Umboðslaun 47,8 erlend
skip 22.1, íslenzk skip 25.1,
tryggingabætur og björgun-
arlaun 18.4, tekjur innlendra
flugfélaga 48,0 fiugþjónusta
25.7, erlend flugfélög og
Keflavíkurviðskipti 86,0
sendiráð 21.9, ferðamenn
27,4, fríhöfn í Keflavík 7.6,
varlarliðið og verktakar
þess 367.1 og ýmislegt 45.8.
Duldar greiðslur bankanna
námu 896.2 millj. kr. 1961.
- É. ll ItÍIÉ i.l 1»