Alþýðublaðið - 15.06.1962, Page 11
Sendibill 1202 Stationblll 1202 FELICIA Sportbíll OKTAVIA Fólksblll
ShbdiI ®
TRAUST BODYSTÁL - ORKUMIKLAR 0®
VIÐURKENNDAR VÉLAR- HENTUGAR
ISLENZKUM AÐSTÆÐUM - LÁGT VERd
POSTSENDUM UPPLÝSINGAR
TÉKKNESKA BIFREIDAUMBODI0
IAUGAVEGI 17« . SÍMI 57881
Undanúrslit
Framhald af 10. síðii.
harka í leikinn, svo að lá við slags-
málum og varð dómarínn að vísa
tveimur leikmönnum út af vellin-
um.
Fyrri hálfleik Tékka og Júgó-
slava lauk með jafntefli 0:0, en
Tékkar náðu yfirhöndinni í seinni
hálfleiknum.
Það verða því Brasilía og Júgó-
slavía, sem keppa um heimsmeist-
aratitilinn á sunnudaginn kemur.
Á sunnudaginn munu einnig Chile
og Júgóslavía keppa um 3. verð-
launin, bronzið.
Nýtt heimsmet
i 200 m.
hlaupi
París, 14. júní
(NTB—AFP)
Á frjálsíþróttamóti hér í kvöld
setti Michel Jazy nýtt heimsmet í
2000 m. hlaupi. Tími hans var
5.01,6 mín.
Osló, 14. júní (NTB)
Stein Haugen kastaði kringlu
55,40 m. á móti hér í kvöld.
í Helsingfors sigraði Valkama í
langstökki í gærkvöldi, hann stökk
7,50 m. Á sama móti hljóp Asiala
110 m. grind á 14,6 sek.
Járnsmiðir
Viljum bæta við okkur mönnum í járnsmíði og vél-
virkjun.
Vélsmiðjan Járn h.f.
Sími 35555.
Vantar laghenta menn
til uppsetninga á girðinganeti nú þegar.
Vélsmíðjan Járn h.f.
Sími 35555.
Járnsmiðir
Járnsmiðir og menn vanir járniðnaðarvinnu óskast til
breytinga á togaranum ísborgu í flutningaskip.
Vélsmiðjan Járn h.f.
Sími 35555.
VÉLBÁTUR
31 smál. með nýuppgerðri 170 ha. Budda-dieselaflvél,
dragnótaspili, dragnótaútbúnaði o. fl. af veiðarfærum, allt
í góðu standi, er til sölu. — Nánari upplýsingar veita þeir
Björn Ólafs og Vilhjálmur Lúðvíksson, lögfræðingar.
M Ö T P T R
utan um Eldlntsbókina eru
nú fáanlegar lrjá flestuni!
bók$öium og mörgum . kaup-
félögum úti um Iand. — í
Keykjavík og llafnarfiröi
fást þær i bókabúðútn: .
Landsbanki íslands
Reykjavík.
ELDHÚSBÓKIN
Freyjugötu 14
Aðstoðarmaður
óskast á Rannsóknastofu Fiskifélags fslands.
Gæti orðið um framtíðaratvinnu að ræða.
Upplýsingar á Rannsóknastofu Fiskifélags íslands, Skúla-
götu 4, 2. hæð frá mánudeginum 18. júní.
Gerum við
Krana
og klósett-kassa
Vatnsveita
Reykjavíkur
Sími 13134 og 35122.
Akurnesingar ganga af leikvelli í hléinu. Ríkharður fremstur.
Tékkar unnu
Framhald af 10. síðn.
andi. — Eitt þessara marka bar að
með þeim hætti, að markvörður-
inn spyrnti frá marki yfir á víta-
teig Akurnesinga, þar tók einn
framherji Tékkanna við honum og
bætti því við sem þurfti til þess að
hann hafnaði óverjandi í markinu.
Tvær spyrnur — mark — fátítt.
Mjög lögðust Akurnesingar í
vörn er leið á þennan hálfleik. —
Einn eða tveir menn frammi. Var
því mark mótherjanna sjaldan í
mikilli hættu. Sóknarþunga Tékk-
anna í heild í leiknum má marka
m. a. af því að alls fengu þeir 12
hornspyrnur en Akurnesingar að-
eins eina.
Einhver breyting var á liði Tékk
anna, frá fyrsta leiknum, en að
því er tók til getu leikmannanna,
næsta lítil. Eins og þá var hvert
rúm skipað hinum færasta leik-
manni, sem kunni örugg skil á
listum og leyndardómum knatt-
spyrnunnar.
í liði Akurnesinga bar mest á
gömlu kempunum, Jóni Leóssyni,
Þórði Jónssyni scm var snarpasti
leikmaður liðsins, og Ingvarl,
Helga Hannessyni, Boga Sigurða-
syni og Helga Dan, sem varði mark
ið af kappi þó erfitt væri. AuR
þessarra Sofus Teitsson, sem lék
í síðari hálfleik. En sá, sem vaktj
þó mesta athygli, var Ríkharður
Jónsson, sem nú lék aftur mef>
sínu gamla og góða liði og hefur
gert undanfarið í íslandsmótinu.
En þetta var fyrsti leikur hans, á
Laugardalsvellinum sl. tvö ár. En
hann hefur ekki gengið heill til
skógar undanfarið, svo sem kunn-
ugt er, en fengið það mikla bót að
hann telur sig leikfæran að nýju,
Sannarlega var honum vel fagn-
að, og enn sem fyrr munaði um
hann og að því er tók til leikni,
knattmeðferðar og sendingu var
hann í fremstu röð. Hann átti vissu
lega sinn mikla þátt í þeim tilþrif-
um, sem Akurnesingar sýndu, i.
þessum leik, þrátt fyrir ósigurinn.
Áhorfendur voru margir og mun,
þátttaka Ríkharðs m. a. hafa áifc
sinn þátt í því. Magnús Pétursson
dæmdi leikinn af festu og ná-
kvæmni. EB-
TEKKA
Keppa á Laugardalsvelli í kvöld kl. 8,30. — Dómari: Hannes Þ. Sigurðsson.
Verð aðgöngumiða: Stúkusæti kr. 50,00. — Stæði kr. 35.00 — Barnamiðar kr. 10,00.
Tekst íslandsmeisturunum að sigra Tékkneska Olympíuliðið?
Víkingur,
ALÞÝÐUSLAÐIÐ — 15,-tjúní 1962 %%