Alþýðublaðið - 15.06.1962, Page 16

Alþýðublaðið - 15.06.1962, Page 16
TVISTOFSI TVIST er háskalegur dans — eftir þessum myndum að dæma. Þið þekkið kannski kv'enmanninn: Jane Mans field, sem nú er stödd í Róm. Fyrir nokkrum kvöldum brá húu sér í næturklúbb — sem ekki er í frásögur færandi. Hinsvegar er það í frásögur færandi, að leikkonan „tvist aði” af slíku offorsi að spjar- irnar rifnuðu utan af henni. Á stærri myndinni forðar hún sér á brjóstahaldaranum einuin saman liið efra. Á þeirri minni er ballið að byrja, ef svo mætti að orði komast. HUWmUUUHMHMHHWW Veiöihunda * vantar hús A FUNDI borgarráðs 8. júní sl. var lögð fram beiðni frá veiðimála- stjóra um land undir hundabú. Biaðið átti í gær tal við Svein Sótt til Grænlands JÖHANNES Snorrason flaug til Meistaravíkur á Grænlandi í gær á CJoudmaster-flugvélinni Ský- faxa og sótti danska konu i barns- nauð. Flugferðin gekk að óskum og konan var flutt beint á Landspít- alann, er hingað kom laust fyrir klukkan 23,00 í gærkvöldi. Einarsson veiðimálastjóra til að fá nánari fregnir af þessu. Skýrði hann frá því, að sótt hefði verið um lóð vestan undir Úlfarsfelli I Mosfellssveit undir hundabú. Á vegum veiðimálaskrifstofunn- ar væru nú milli 50 og 60 hundar, sem geymdir væru við ófullnægj- andi skilyrði uppi við Rauðavatn. Þessir hundar væru þjálfaðir veiðihundar og alveg ómissandi veiðimönnum við minkaveiðar, og kæmu einnig að miklu gagni við refaveiðar. Veiðistjóri sagði ennfremur, að hér í Reykjavík, væri fjölmargir menn, sem stunduðu refa- og minkaveiðar í sumarleyfum sin- um og flestum tómstundum, og yrði þeim vel ágengt við veiðarn- ar mcð hjálp hundanna. Gönguferð SAMTÖK hernámsandstæðinga" hyggjast enn leggja land undir fót í sumar. Frá þessu segir í fréttalilkynn- ingu, sem blaðinu barst í gær. í þetta skipti verður gengið úr Hvalfirði til Reykjavíkur — í tveimur áföngum. ENGIR SAMN- INGAFUNDIR NÚ er liðnir rúmir þrír mánuðir síðan togaraverkfallið skall á Verk fallið kom til framkvæmda 10. marz sl. en togararnir höfðu ekki allir stöðvazt fyrr en nokkru eftir inánaðamótin marz-apríl, að undan teknum togaranum Karlsefni. Eng ir samningafundir liafa verið haldn ir nú um lengri tíma, og engir ver- iu hoðaðir. 43. árg. — Föstudagur 15. júní 1962 — 134. tbl. Brann ofan af 11 manns SLÖKKVILIÐIÐ á Hvolsvelli var kallað út klukkan rúmlega átta á miövikudagskvöldiö að bæn um Bala í Þykkvabænum. Þegar þetta gerðist var vindur hvass á norðaustan og brann bærinn til kaldra kola á hálfri klukkustund án þess að neitt yrði að gert. Húsið á Bala var forskalað timb urhús með torfeinangrun og brann það alveg til grunna. í fyrrasumar bafði vátrygging hússins verið hækkuð samkvæmt nýju mati, er þá fór fram. Bali var tveggja hæða hús og var búið á báðum hæðum. Innbú mun hafa verið tiltölulega lágt vátryggt. í þessum bruna misstu ellefu manns heimili sitt. Á Bala bjuggu tvær fjölskyldur, Jón Árnason og kor.a hans, Svava Árnadóttir, og börn þeirra sjö að tölu. Faðir Svövu, Árni Sæmunds son og kona hans Margrét Lofts- dóttir bjuggu á efri hæð hússins. Nokkru af innanstokksmunum á neðri hæðinni var bjargað en engu af efri hæðinni. Talið er að kviknað hafi út frá rafmagni. í þann mund er bærinn á Bala var að brenna varð hluti af Þykkvabænum rafmagnslaus vegna þess að öryggi hafi farið í spenni- stöð skammt frá Bala. Styrkir það þann grun að kviknað hafi í út frá rafmagni. Heimilisfólkið á Bala dvelst nú hjá nágrönnum sínum. Enn óráðið hvert Mennta- skólinn leitar Menntaskólinn í Reykjavík á nú við mikla húsnæðisörðuglcika að etja eins og kunnugt er. Núverandi húsnæði skólans er fyrir löngu orð ið allt of lítið, fyrir liinn stóra nemendahóp sem stundar nám í skólanum. Fyrirhugað hafði verið að byggja til bráðabirgða nokkur kennsluhús í olíuportinu gamla, skammt fyrir ofan skólann. Nú mun hins vegar horfið frá því ráði. Kom ið hefur til mála að næsta vetur j verði nokkrum bekkjum kennt íj Þrúðvangi við Laufásveg, en það hús er nú í eigu Framkvæmda- banka íslands. Til skamms tíma var Þrúðvang- ur eign Tónlistarfélagsins og jafn framt var Tónlistarskólinn þar til húsa. Tónlistarfélagið hefur nú eignast nýtt hús og mun Tónlistar skólinn einnig verða þar til húsa. Húsnæði það, sem Tónlistarskól- inn verður í, mun ekki alveg tilbúið til notkunar, en vonir standa til að úr því rætist innan skamms. Auk þess, sem Þrúðvangur hefur áður verið notaður sem skólahús, er hann mjög stutt frá Menntaskói anum, og er því mjög sennilegt að nokkrum bekkjum verði kennt þar næsta vetur. Þó svo að þarna fáist liúsnæði til kennslu er hér að sjálfsögðu um al gjöra bráðabirgða lausn að ræða. Morgunblaðið flutti þá frétt í gærmorgun, að það hefði verið á- kveðið að Menntaskólinn fengi Þrúðvang til afnota næsta vetur. í gær var hvergi unnt að fá þessa frétt staðfesta. Það eina, sem blaðið fékk staðfest, var að Þrúð vangur væri meðal þeirra staða, sem til greina hefðu komið, sem viðbótarhúsnæði fyrir Menntaskól ann og að Framkvæmdabankinn mundi fús til viðræðna uin leigu á húsinu. SÞ-fundi aflýst NEW YORK, 14. júní (NTB-Reut- ter) Aflýsa varð fundi á allsherjar þingri SÞ í morgun þar eð of fáir höfðu skráð sie á mælendaskrá. Umræðuefnið var vandamál Suð- ur-Rliodesíu. Blaðið hefur hlerað AÐ til vandræða horfi vegna „stjórnarkreppunnar” í Kópa vogi. Bærinn er í rauninni bæjarstjóralaus, þar sem Hulda bæjarstjóri er veik og staðgengill enginn. Viðræður Framsóknar ogr Alþýðubanda lagsmanna um myndun starfs hæfs bæjarstjórnarmeiri- hluta enduðu með „algeru ósamkomulagi”

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.