Alþýðublaðið - 23.06.1962, Page 15
C> 0 c>
að stytta okkur stundir við.
Hreinsaðu nú byssuna og gættu
hennar vel. Þið þarfnist bæði
hvildar".
Bond gekk upp stigana, opn-
aði herbergi sitt og þegar hann
var kominn inn læsti hann vand
lega á eft.ir sér. í gegn um
gluggatjöldin barst tunglskinið
í herbergið. Hann kveikti á nátt
lampanum hinu megin í her-
bergið og fékk sér steypibað.
Hann hugsaði um það hvað laug
ardagurinn 14. hefði verið miklu
atburðaríkari, en föstudaginn 13.
Hann burstaði í sér tennurnar
til að ná óbragði dagsins úr
munninum. Síðan slökkti hann
ljósið og fór aftur inn í svefnher
bergið.
Bond dró aðra gardínuna frá
og opnaði gluggana upp á gátt
og stóð og horfði út. Það var dá
samlegt að láta svalan nætur-
gustinn leika um nakinn lík-
amann. Hann leitt á úr sitt.
Klukkan var tvö.
Hann geispaði og dró glugga-
t.iöldin aftur fyrir. Hann beygði
sig niður til áð slökkva á nátt-
lampanum. Allt í einu stirðnaði
hann upp og hjarta lians tók
kipp. Hann hafði heyrt óstyrk-
an hlátur úr liinum enda her-
bergisins. Stúlkurödd sagði:
Veslings, Bond. Þú hlýtur að
vera þreyttur, komdu í rúmið.
20. kafli.
SVART Á BLEIKU.
Bond snéri sér eldsnöggt við.
Hann leit á rúmið, en sá ekki
glóru, af því að hann hafði ver-
ið að glápa á tunglið. Hann
kveikti aftur á fölbleiku ljósinu
við rúmið. Það var langur lík-
ami undir rekkjuvoðunum.
Brúnt hár flóði um koddann.
Það sást í fingurgóma, sem héldu
sænginni yfir andlitið. Brjóstin
gnæfðu upp eins og snævi þakt-
ir hólar.
Bond liló lítið eitt sem snöggv
ast. Hann beygði sig fram og tog
aði í hárið. Mótmæla skrækur
heyrðist undan sænginni. Bond
settist á rúmstokkinn. Eftir
augnabliksþögn var annað sæng
urhornið fært varlega til hliðar
og eitt blátt auga skoðaði hann.
„Þú lítur ósæmilega út“, heyrð
ist muldrað undir sænginni.
„En hvað um þig? Hvernig
komstu hingað?“
„Ég gekk bara niður tvo stiga.
VI
[) FRÁ SOVÉT
Ég bý hérna nefnilega líka“.
Röddin var djúp og ertnislega.
Hún hafði næsjum -engan mál-
hreim.
„Jæja, ég ætla að koma mér
í rúmið".
Nú færðist sængin niður að
höku, og stúlka reis upp við
dogg. Hún roðnaði. „Ó, nei. Það
máttu ekki“.
„Þetta er þó mitt rúm. Og þú
moira að segja sagðir mér að
koma“.
Stúlkan var ótrúlega lagleg.
Bond skoðaði andlit hennar ná-
kvæmlega. Hún hélt áfram að
roðna“.
„Ég sagði si svona, til þess að
láta vita af mér“.
„Einmitt það. Gaman að hitta
sig. Ég heiti James Bond“.
„Og ég heiti Tatiana Roman
ove.” í mið a-inu í Tatiana og
fyrra a-inu í Romanova dró hún
seiminn. „Vinir mínir kalla mig
Taniu“.
Það var þögn og þau horfðu
hvort á annað. Stúlkan var for-
vitnisleg á svip og eins og henni
liði betur. Hann var kaldur og
rólegur.
Hún varð fyrri til að rjúfa
þögnina. „Þú ert alveg eins og
myndirnar af þér“, hún roðnaði
aftur. „Þú verður að fara í eitt
hvað. Þetta æsir mig“.
„Þú æsir mig alveg jafn mik
ið. Þetta er eðlið. Það mundi
lagast ef ég kæmi upp í til þín.
Heyrðu annars, í hverju ertu?“
Hún dró snægina aðeins neð
ar, þannig að sást í mjóan flau
elisborða, sem hún var með um
hálsinn. „Þessu“, sagði hún.
Borid leit í stríðnisleg bláu augu
hcnnar. Það var eins og bau
spyrðu, hvort þetta væri ekki
rióg. Hann fann að hann var að
missa stjórn á sér.
„Tættu nú, Tania. Hvar eru
fötin þin? Komstu kannske
svona niður í lyftunni?"
„Nei, nei. Það hefði verið ó-
sæmilegt. Fötin eru undir rúm
inu“.
„Jæja. ef þú heldur að þú kom
ist út héðan án . . . ",
Bond hætti í miðri setningu.
Hann stóð upp af rúminu og fór
að klæða sig í blá silki náttjakk
ann, sem hann svaf vanalega í,
í stað náttfata.
„Það sem þú lætur liggja að
finnst mér mjög ósæmilegt“.
„Já, finnst þér það ekki”,
sagði Bond hæðnislega. Hann
kom aftur að rúminu og dró stól
að því. Hann brosti til hennar.
„Ég skal segja þér eitt, Þú ert
einhver fallegasta kona í heimi“.
Stúlkan roðnaði aftur og leit
á hann, alvarleg á svip.
„Ertu að segja satt?. Mér
finnst ég vera of munnstór.
Er ég eins falleg eins og stúlk-
ur á vesturlöndum? Mér var
einu sinni sagt að ég væri lík
Gretu Garbo. Er það satt?“
„Enn þá fallegri, en hún“,
sagði Bond. „Það er bjartara yf
ir andliti þínu. Og þú ert ekk-
ert of munnstór. Hann er alveg
mátulegur. Fyrir mig að
minnsta kosti“.
„Hvað sagðirðu „bjartara yfir
andliti mínu?“ Hvað áttu við
með því?“
Bond átti við að sér fyndist
liún ekki líta út eins og rússnesk
ur njósnari. Hana vantaði kuld-
ann og nákvæmnina. Honum
virtist hún hjartaheit og fjörug.
Það skein eiginlega út úr augum
hennar. Hann leitaði eftir ein-
liverju til að segja. „Augun í þér
eru lífleg“, sagði hann án mik-
illar sannfæringar.
Tatiana varð alvarleg á svip.
„Það er einkennilegt“, sagði
hún. „Það er ekki svo mikið líf
og fjör í Rússlandi. Þetta hefur
enginn sagt við mig áður“.
Fjör? Henni varð hugsaði til
siðustu tveggja mánaða. Hvern-
ig gat það átt sér stað að hún
væri lífleg. Og samt, þá var
henni óneitanlega dálítið hlýtt
um hjartarætumar. Var hún laus
lát að eðlisfari, eða hvað? Eða
stóð þetta í einhverju sambandi
við þennan mann, sem hún hafði
aldrei séð áður.
Var þetta léttir vegna þess að
þetta hafði allt reynst mikið auð
veldara enn hana hafði dreymt
um? Hann gerði þetta svo auð
velt, — svo skemmtilegt, en þó
var þetta hættulegt. Mikið af-
skaplega var hann laglegur.
Hann var svo hreinlegur líka.
Mundi hann fyrirgefa henni þeg
ar þau kæmu til London og hún
segði honum alla sólarsöguna?
Segði honum að hún hefði ver-
ið send til þess að draga hann
á tálar. Hefði vitað herbergisnúm
erið og allt mögulegt? Honum
mundi sennilega standa nokkurn
veginn á sama. Honum yrði ekk
ert mein gert. En þetta var eina
leiðin til að komast til Englands.
„Lífleg augu“. Hvers vegna gat
það ekki staðizt? Það var dá-
samlcg tilfinning að vera ein
með þessum manni og eiga ekki
refsingu yfir höfði sér fyrir
bragðið. Þétta var alveg óskap-
lcga sp'cnnandi.
„Þú ert afskaplega laglegur”,
**>
*
sagði hún. í huga sér leitaði hún
eftir samanburði, sem gleddi
hann. „Þú ert eins og amerísk-
urkvikmyndaleikari".
Hún hrökk við, þegar hún sá
hvernig honum varð við þessa
gullhamra. „Guð almáttugur.
Það er nú held ég það versta
sem hægt er að segja um nokk-
urn mann“.
Hún flýtti sér að bæta úr þessu
broti sínu. Einkennilegt að þess-
ir gullhamrar skyldu ekki 'falla
honum í geð. Var nokkur mað-
ur til á vesturlöndum, sem ekki
vildi líta út eins og kvikmynda
leikari? „Ég var að skrökva",
sagði hún. „Ég hélt, að þú hefð-’
ir gaman af að heyra þetta. Þú
lítur alveg eins út og eftirlætis
söguhetjan mín. Hann er í bók
eftir Rússa, sem heitir Lemon-
tov. Ég segir þér frá honum ein
hvern tíma seinna“. Seinna? Nú
fannst Bond kominn tími til að
láta til skarar skríða.
„Heyrðu mig nú, Tania“. Hann
reyndi að horfa ekki á undur fag
urt andlitið ó koddanum. Hann
horfði á hökuna á henni.
„Nú skulum við hætta þessum
bjálfaskap og láta alvöruna ráða.
•Hvað gengur eiginlega á? Ætl-
arðu þér að fara með mér til
Englands?" hann horfði nú í
augu hennar. Þáð hefði hann
ekki átt að gera. Þau voru glennt
upp og ofur sakleysisleg.
„Auðvitað”.
Bond brá við það, hversu hrein
skilin hún var. Hann leit á hana
grunsamlega. „Ertu alveg ákveð
in í því?“ |
„Já“„ Nú var hún alvarleg ái
svip. Það var ekkert daður leng
ur í svip hennar.
„Þú ert ekki hrædd?“
Hann sá skugga líða yfir and-
lit hennar. En hann var ekki þájð
sem bann hélt, að hann vaéri.
Hún hafði munað eftir, að hurt
þurfti að leika hlutverk. Hún íjjjti
að vera hrædd við það, sem hún.
var að gera. Dauðskelkuð. Það
hafði hljómað svo einfalt að eiga
að leika, en nú var það erfitt.
En hvað þetta var einkennilegt;
Hún ákvað að fara bil beggja.
„Jú, ég er hrædd. En ekki svo
mjög nú orðið, Þú verndar mig.
Ég vissi, að þú mundir gera
það . . “
„Já, auðvitað geri ég það“.
Bond hugsaði til skyldfólks henn
ar í Rússlandi. Hann losaði sig
fljótlega við þá hugsun. Hvað
yar hann að gera? Reyna að telja
hana ofan af því að koma? Hann
lokaði huga sínum fyrir afleið-
ingunum, sem hann ímyndaði
sér. að allt þetta mundi hafa fyr
ir liana. „Þú þarft engar áhyggj
ur að hafa. Ég skal passa þig“.
Og nú var það spurningin, sem.
hann hafði verið að veigra sér
við. Hann fann til hlægilegrar
feimni. Stúlkan var á engan hátt
lík því, sem hann hafði búizt við.
Það eyðilagði allt að spyrja
spurningarinnar. En það varð að
gerast.
„Hvað um vélina?“
Já. Það var eins og hann hefði
gefið henni utan undir. Það vár
sársauki í augunum og hún virt
ist að því komin að tárast.
TIL HAMINGJU MEÐ OAGINN, SIR
NÝLEGA hélt Harry S. Truman fyrrum Bandaríkjaforseéi
upp 3 78 ára afmæli sítt, í Kansas City í Bandaríkjunum. Þang
-að voru m. a. boðnir nokkrir erlendir stúdentar, sem eru við
nám í Kansas háskóla.
Sá, sem þarna *r að óska Trutnan til hamingju, er íslenzk-
ur og heitir Viihjálmur Lúðvíksson. Hann er að nema efna-
verkfræði við Kansas háskóla. Vilhjálmur er sonur Lúðviks
A. Jóhannessonar og konu hans, og er héðan úr Reykjavík.
ALÞÝOUBLftÐID - 23. júní 1962
*