Alþýðublaðið - 25.07.1962, Page 5

Alþýðublaðið - 25.07.1962, Page 5
Godoy tekur 51 völd forseta lWWWWW*tWi%%WM%WWWWW%»W*WW» WWWWWWWWWMWWWWWWWWWWWWWW I ÞBR FYRSTU! Fyrstu erlendu skátarnir, er fara á landsmótið á Þingvöll- um, komu hingaö í grærmorg- un með leiguflugvél frá Nor- egi. í þessum hóp voru 86 norsk- ir skátar, 59 piltar og 27 stúlk ur. í gær skoðuðu norsku skátarnir sig um í bænum, en í dag fara þeir á Þingvöll og um Kaldadal til Borgarfjarðar og koma þá m. a. í Reykholt. Koma þeir aftur til Reykjavík- ur í kvöld. Á morgun fara þeir í kynnisferð um bæinn og ná- grennið og enda daginn með því að svamla í Sundlaug Vesturbæjar. Á föstudag ferð- ast þeir svo um sögustaði Njálu og er sú ferð farin sam- kvæmt þeirra eigin ósk. - Á laugardag verður svo haldið á landsmótið á Þingvöllum. Skátafélag Reykjavíkur sér um alla fyrirgreiðslu þessa hóps, áður en á Iandsmótið kemur. Norsku skátarnir munu þar til mótið hefst búa í Gagnfræða skóla Austurbæjar, en að mót- inu loknu fara þeir strax aft- ur til Noregs. jFararstjórar norsku skát-I anna eru Odd Hopp og Borg- hild Rönning. Odd Hopp er ís- Ienzkum skátum að góðu kunn- ur, því þetta er fimmta árið í röð, sem hann kemur hingað. Hér hefur hann haldið foringja námskeið og lijálpað til við að efla og þjálfa skátaforingja. Á morgun koma hingað tíu bandarískir skátar, sem einn- ig ætla á landsmótið. Alls munu verða skátar af að minnsta kosti ellefu þjóðern- um á landsmótinu. SÍLDiN OG SKAGASTRÖND Framhald af 16. síðu. þarna risi upp fimm þúsund maima bær. En þar eð síldin lét ækki sjá sig eftir að verksmiðjan vsr byggð búa nú ekki nema 640 manns á Skagaströnd. Núna eru allir sem vettliugi geta valdið að vinna í síldinni ög rr.eira að segja hefur verið sótt vinnu- afl út í sveitir. Um sextíu manns vinna í síldarverksmiðjunni og auk þess var verið að salta á tveim plönum í gærdag. Aðspurður sagði Ásmundúr allt hefði gengið vel í sumar að engar meiri háttar bilanir hef orðið á tækjum verksmiðjunni ..Það er alls ekki ósenn’Iegt, að eftir allt rísi 5 þúsund manna hær á Skagaströnd í framtíðinni, verði síldin nokkurn veginn árvi§s“, sagði Ásmundur að lokum. „En það er einmitt það sem við eigum allt okkar undir.“ VINNUDEILUR wwwwwwwwwwwwwwww HoIIandia, 24. júlí. NTB-AFP. Hollenzkur hermaður féll og annar særðist alvarlega í hörðum og löngum bardaga í gær milli 30 indónesískra fallhlífarhermanna og hollenzkra Iandgönguliða ná- lægt Merauke í hollenzku Nýju Guineu. Framhald af 1. síðn. félagsfundinum hefst allsherjar- 1 atikvæðagreiðsla um heimild til vinnustöðvunar. Þjónadeilan, þ. e. ákæra Félags gisti- og veitingahúsaeigenda um að vinhustöðvun þeirra sé ólög- leg, var tekin fyrir í Félagsdómi í morgun, og búizt er við úr- skurði síðar í vikunni. Þess má geta, að þjónar á veitingahúsum og hótelum úti á landi hafa ekki lagt niður vinnu. Þá gengur hinn nýi taxti tré- smiða í gildi nk. föstudag, en eins og kunnugt er auglýsti Meistara- félagið einnig texta, sem er eins | og sá gamli, — nema orlofi | sleppt. Er þar reiknað með að kaup í dagvinnu sé 26,69 á tím- ! ann, en hinn nýi taxti trésmiða hljóðar upp á 30.75 kr. á tímann. Verði ekki gengið að hinum nýja taxta trésmiðanna, leggja þeir nið ur vinnu hjá viðkomandi aðilum. WWWWWWWWWW%WWWWW(| Haag, 24. júlí. NTB-AFP. 3.800 tonna flotdokk J í sem fyrirtæki eitt í Osló þ hafði selt, sökk í dag á Norð p ursjó, er verið var að draga % hana áleiðis til Djeddah Js við Rauðahaf. Dokkin sökk 5 um 80 km. frá Terschelling í Hollandi. Vont veður var á, er leki komst að dokk- inni. Ekki tókst að koma dælum í gang og sökk hún skömmu síðar. wwwwwtwwww»wwwww Lhna, 24. júlí. NTB-Reuter. Herforingjaklíkan í Perú tók f dag í sínar hendur algjört lög- gjafar- og framkvæmdavald í Iand inu samkvæmt tilkynningu, sem gefin var út í morgun. Samkvæmt tilkynningunni tekur foringi klík- unnar, Richardo Perez Godoy, hershöfðlngi, í sínar hendur öll þau völd, sem samkvæmt stjórn- arskrá landsins eiga að vera í höndum forseta landsins. Verkfall það, sem APRA- flokkurinn, flokkur Haya de la Torre, sem fékk flest atkvæði við forsetakjörið og hershöfðingja- valdið hafði svo mikið á móti, fór algjörlega út um þúfur og komst lífið fljótlega aftur í sama horf. Mörg ríki latnesku Ameríku hafa farið að dæml Bandaríkjanna og slitið stjórnmálasambandi við Perú. Bandaríkjastjórn hefur þar að auki stöðvað efnahagsaðstoð við landið. Blöðin í Lima birtu i dag kröftug mótmæli.gegn afstöðu Bandaríkjastjórnar, sem félagið Perú-Bandaríkin í New York hef- ur sent Kennedy forseta. Félag þetta er fulltrúi allsterkra aðila, sem fest hafa fé í Perú. ÞAR varð okkur á í mess- unni. Og við biðjum alla aðila innilega afsökunar. Við birt- um rangan texta með mynd- inni hér efra í gær, og fullir iðrunar birtum við hana hér með aftur með rétta text- anum. Gjörið svo vel: Sl. mánudag kom hópur ísl- enzkra framhaldsskólanemenda til Reykjavíkur með flugvél Loftleiða frá New York. Á sl. hausti fór þessi liópur nem- enda sem eru á aldrinum 16 til 18 ára, til eins árs náms við menntaskóla í Bandaríkjunum á vegum hinnar merku stofnun ar, American Field Service, sem er af góðu kunn hér á landi. Íslenzka-ameríska félagið í Reykjavík hefur haft samvinnu við þessa stofnun sl. fimm ár og haft milligöngu um útvegun námsdvalar vestra fyrir náms- fólkið. í næsia mánuði munu 18 is- lenzkir framhaldsskólanemend- ur fara til Bandaríkjanna á vcg um American Field Service og Íslenzk-ameríska félagsins, og hafa þá samtals 72 íslenzkir nem endur hlotið þessa styrki, fvá því er þeir voru fyrst veittir árið 1957. (Ljósrn.: Pétur Thom sen.) WWW»WWWWWWWWWWWWWWWWWWW%tW WWWWWWWV.WVetVWWMWWWWWWWWWW, ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 25. júll 1962 5

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.