Alþýðublaðið - 21.08.1962, Qupperneq 2
■ttstjoiar: Gísli J. Asxpórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — ASstoBarritstjóri:
Hjörgvin GuOmundsson. — Simar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasíml
14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentcmiðja Alþýðubiaðsins, Hverfisgötu
•—10. — Askriftargj ald kr. 55.00 á mánuði. I lausasölu kr. .",00 eint. Útgeí-
andi: Alþýðuflokkurinn. -- Framkvæmdastlóri: Ásgeir Jóhannesson-
ÓVÆNT MYNDASÍÐA
HVER HEFÐI trúað því fyrir nokkrum árum
að Vísir ætti eftir að tárfell-a yfir því, að tekjuskipt
ing væri ekki nægilega mikil í þjóðfélagi okkar, og
Þjóðviljinn að birta heila síðu af myndum af heild
sölum og iðnrekendum í fullri sátt við þá?
Einhverjum kynni að finnast þetta efni í öfug-
mælavísu. En hvort tveggja hefur gerzt. Hvorugt
ivar þó tilkomið af góðu. Vísir tók hina óvæntu af-
stöðu til að klekkja á íslenzkum sjómönnum. Þjóð
viljinn birti myndir af heildsölunum með ánægju,
þegar það var til að hjálpa kommúnistaríkjunum í
. Austur-Evrópu.
Skyldi ekki einhverjum flokksmanni Þjóðvilja-
ritstjóranna úr alþýðustétt hafa brugið, þegar hann
sá heila síðu af myndum af heildsölum, iðnrekend-
um og höfuð atvinnurekendum bæjarins? Skyldi
ekki einhverjum hafa dottið í hug, að þessu hefði
hann sízt af öllu átt von á? En svona er það. Þegar
hagsmunir húsbændanna fyrir austan járntjald eru
annars vegar, gerir Þjóðviljinn allt, meira að segja
að taka brodda þjóðfélagsins í sátt.
Vonandi hafa broddarnir verið lukkulegir, er
þeir sáu myndirnar af sér í 'Þjóðviljanum. En eitt
bvað mirinir þetta á gamlar sagnir um menn. sem
seldu sál sína fyrir nokkra skildinga. Þegar komm
únistar komast til valda í einu þjóðfélagi, eru það
einmitt heildsalar, iðnrekendur og aðrir atvinnu-
rekendur, sem fyrst eru skornir niður við trog.
ÓFRIÐUR STÖÐVAÐUR
SAMKOMULAG hefur náðst milli Hollendinga
og Indónesa varðandi framtíð Vestur-Nýju
Guineu. Ilefur sáttasemjarastarf Sameinuðu þjóð-
anna enn einu sinni borið góðan árangur, og eru
þau ekki fá ,,smástríðin“, sem samtökunum hef-
ur tekizt að fyrirbyggja eða stöðva. Þetta frum-
stæða land verður um sinn undir eftirlitsstjórn SÞ,
síéan taka Indónesar við því, en eftir hæfilegan
tíma eiga íbúarir að segja til sjálfir um framtíð
sýia. Var óhugsandi annað en að hafa þarna all-
langan umþóttunartíma, því lífskjör eru lág og al-
þýðumenntun nær engin í landinu.
Sovétríkin höfðu gert mikið til að blása á elda
ófriðarins á Nýju Guineu. Þau höfðú sent Indónes
um ógrynni vopna og gert allt, sem þau gátu, til
að hindra lausn málsins. Það hefði sem sé þjónað
hágsmunum kommúnismans betur að hafa þarna
HVargra ára eða áratuga vopnaviðskipti, sem dæmi
um baráttu nýlenduþjóða. Lausri málsins mun
r4ynast hinum snauðu íbúum landsins mun hag-
stfeðara en það, sem kommúnistar vilja.
2 21. júlí 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Ölvaðir....
Framh. af 1G. síðu
og þar var m. a. utanbæjarmaður,
sem gerðist mjög drukkinn, þegar
líða tók á kvöldið. Varð að lokum
að fieygja honum út. Sá var ekki
ánægður með málalokin og , vildi
hann komast inn aftur.
Tókst honum að skríða vpp á
þak hússins, og þar fann liann gat
rétt við skorsteininn. Hann gat
troðið sér þar inn í ris hússins.
Eftir að dansleiknum lauk urðu
menn varir við liann, og tveir fóru
upp ,í risið gegnum smálúgu. Ut-
anbæjarmaðurinn neitaði þá aiveg
að koma niður, og varðist með
kjafti og klóm. Eftir mikla erfið-
leika og strit komu mennimir hon-
um niður og afhentu hann lögregl-
unni.
Frestun
afvopnunar
Genf, 20. ágúst. NTB.
Fulltrúar Bandaríkjanna og
Bretlands á afvopnunarráðstefn-
unni i Genf lögðu í dag til að ráð-
stefnunni verði frestað frá 1. stept.
og teknar upp að nýju 29. nóv.
Verði það gert til þess, að AIls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna
fái að fjalla um ágreiningsmátin
í sambandi við afvopnun.
Fulltrúi Indlands lagði +11, að
enn verði reynt að ná samkomu-
lagi um bann við tilraunum með
öll kjarnorkuvopn. Fulltrúinn
kvað nokkuð hafa miðað í sam-
komulagsátt meðal stórveldanna.
i WEN ELUR ER i l , ,
L
Pantið verðlista yfir hin marg-
víslegu VLC tæki.
VLC TÆKNI FYRIR IÐNAÐ og VERKSTÆÐI.
GUFUHREINSARI
Framleiðir blöndu af hreins-
unarefni og háþrýstigufu, sem
lircinsar vel og örugglega véla
hluti, hreyfla, verkstæðistæki,
gólf. frystihúsatæki, bátalestar,
sláturhús og m.m. fl.
HREYFANLEG
VÖKVALYFTA
Ómissandi alls staðar þar sem
lyfta þarf og flytja þunga hluti.
Auðveld að stjórna í þrengsl-
um. Stjórnað af einum manni.
3 gerðir: 1000, 1500 og 2500
kg-
Tilboð óskast án skuldbindingu. Bréfaskipti á dönsku, norsku,
sænsku, ensku og þýzku.
V. L0WENER
VESTERBROGADE 9B - K0BENHAVN V. - ÐANMARK
TELEGRAMADR.: STAALL0WENER - TELEX: 5585
HANNES
Á HORNINU
k Peningaskipti
löndum.
Norð-
k Rétt gengi í Danmörku
og í Noregi.
k En alls ekki í Svíþjóð.
★ Skeljasandurinn í
Nauthólsvík.
FERÐALANGUR SKRIFAR:
„Fyrir nokkru auglýstu bankarnir
að framvegis gætu íslendingar skift
íslenzkum peningum í bönkum á
Norðurlöndum og fengið gjaldeyri
fyrir. Fyrir nokkru fór ég til Dan-
merkur og kom við í Noregi og
Svlþjóð, og af því að ég var með
nokkur þúsund krónur í íslenzkum
scðlum til vara, lét ég skifta í öll
um þessum þremur löndum.
FYRST LÉT ÉG skipta í Kaup-
mannahöfn, fimm hundruð íslenzk-
um krónum, og fékk fyrir þær næst
um því sömu upphæð og gengið
sagði til um, en það hafði ég kynnt
mér áður. Einhverja- smávegis
próvisjón tók bankinn. Þá lét ég
skipta í Osló og það fór á sömu leið
ég fékk heldur meira út úr því,
enda er norska krónan dálítið lægri
en sú danska. Þetta reyndist mér
góður viðbætir við gjaldeyriseign
mína héðan að heiman.
ráðir, um þetta. Hins vegar sýnir
það ekki viðskiptafræði að haga sér
á þennan hátt. Ég vil loks geta þess
að ég hef heyrt um þetta framferði
Svíanna fyrr í sumar.“
EG SAT í bíl mínum langa stund
á bökkunum við Nauthólsvík og
horfði á tvær jarðýtur jafna úr stór
eflis skeljasandsbing, sem búið
var að setja í fjöruna. Mér fannst
þetta ævintýri líkast og fór aS
hugsa um það, hvort það borgaði
sig að gera þetta undir haustið og
ÞÁ FÓR ÉG til Gautaborgar og (veturinn. Það hefði verið sjálfsagt
hugðist skipta þar. Ég fór í Skandi , að gera það í vor fyrir sumarsói-
naviska bankann með fimm hundr j skinið, sem við bjuggumst við að
uð íslenzkar krónur og hélt sattjmundi koma. Var ekki rétt að
að segja, að ég mundi fá sem svar- ^fresta þessu þangað til næsta vor?
aði að ég greiddi gengismuninn að l
viðbættri svolítilli próvisjón eins
og í hinum löndunum, en sænsk
króna er nú skrásett og hefur verið i (
á kr. 8.35 íslenzkar. En mér brá
í brún þegar Svíinn tók tíu íslenzk
ar krónur fyrir hverja sænska. Ég j'T’U Ú
kvartaði nnrian hcssu við af-'•CÍ hægt Verður að Þek|a alla
una með þessum mjúka og fallega
EG HEF EKKI þckkingu á því,
en ég óttast að sjávargangur. skoll
|öllu þessi skeljasandsfjalli aftur
út í fjörð í haust og vetur. — Gam
,an verður fyrir Reykvíkinga að
: busla í Nauthólsvík næsta sumar
kvartaði undan þessu við af-
greiðslustúlkuna, en hún gat ekki
sinnt því og ég varð að sætta mig
við þetta.
sandi.
NÚ LANGAR MIG til þess að
fá að vita, hvort þetta séu eðlileg
bankaviðskipti. Geta sumir tekið
upp hjá sjálfum sér að okra á gjald
miðli? Eru ekki samningar milli
viðkomandi landa um slík peninga
skipti, það er að segja gengið á
gjaldmiðli, sem er á annað borð
gjaldgengur? Eru Svíar I raun og
veru að okra á okkur íslendingum?
Getur þú svarað þessu?“
MÉR SKILST, að verð Svíanna
sé óeðlilega hátt. Þess vegna hefur
bréfritarinn nokkuð til síns máls
þegar hann minnist á okkur. Hins
vegar eru engir samningar uip
þetta milli landa. Bankarnir eru
sjálfráðir, eða nokkurnveginn sjálf
Hannes á horninu.
R0KTO EKKI
í RÚföiNU!
Hússigsndafélag Reykiavtkur