Alþýðublaðið - 29.08.1962, Síða 10

Alþýðublaðið - 29.08.1962, Síða 10
'FRAM-VALUR I í Rvíkurmót- inu í kvöld Kitstjóri: ÖRN EIÐSSON Heiðraður fyrir 25 ára keppnistima „GUNNAR HUSEBY er einn af fcunnustu íþróttagörpum landsins á sviði frjólsíþrótta. Sem Evrópu- kneistari í kúluvarpi vakti hann á sínum tíma ótvíræða athygli á íslandi og íslenzkum íþróttum. Enn þann dag í dag ber Gunnar höfuð og herðar yfir keppinauta sína í kúluvarpinu. Á yngri árum lagði Gunnar stund á ýmiskonar íþróttir, m. a. knattspyrnu og Jteppti þá bæði í III., II. og I. fl. ©g var jafnvel varamaður í meist- éraflokki félags síns, K. R. Hann tók þátt í hástökki, sem ungur Órengur og varð „Drengjameist- ári“ í þeirri grein. Einnig var hann íneð í hlaupum. Eitt sinn þátttak- andi í boðhlaupssveit K.R. Má af þessu marka nokkuð, hversu al- liliða íþróttamaður Gunnar var að Úpplagi. Hins vegar var honum það Ijóst, að ef verulegur árangu íétti að nást, yrði maður að skorða áig við eina íþróttagrein, og hann Jpáldi kúluna til að glíma við, rr^&ð þ'eim árangri m. a. að hann varð Íívað eftir annað íslandsmeistari t þeirri grein. En hann lét það fkki nægja. Hann hætti ekki ýið fýrr en hann varð Evrópumeistari. Éátlaus þjálfun og þrautseigja skilaði honum í fremstu röð Svo mælti Jakob Hafstein nýlega á fundi með íþróttafréttamönnum, ér hann og Albert Guðmundsson, sfem báðir eru fyrrverandi for- menn ÍR, efndu til. Og Jakob bætti við. „Á EOP-mótinu í vor minntumst -við Albert Guðmunds- son, sem báðir vorum þar staddir, að á þessu ári væru 25 ár frá því, ao Gunnar Huseby heíði hafið liinn frækilega íþróttaferil sinn. yildum við, sem báðir höfum verið formenn í því félagi, sem á þessum árum hafði veitt félagi Gunnars hvað harðasta keppni og oftast bárizt um sigurinn við á hinum jáörgu íþróttamótum og í hinum ihismunandi íþróttagreinum, minn- ast afmælis þessa kappa sérstak- fcsga, sem svo oft hefir vérið voru fðlagi erfiður Ijár í þúfu, en jafn- ah sýnt liin dréngilegustu við- brögð í allri keppni. Þess vegna Köfum vér leyft okkur að biðja Breiðablik-lBH > Leikur milli - Hafnfirði,nga og Érciðabliks í Bikarkeþpní'nni fer fram í kvöld. Verður leikurinn háð iK’ í Hafnarfirði og hefst kl. 7.3Q e.h iþróttablaðamenn að koma hingað og minnast þessa afmælis með okkur og þakka Gunnari hið mik- ilsverða framlag hans til ísl, í- jþrótta á umliðnum árum, jafn- framt því sem honum eru færðar hugheilar framtíðaróskir um gott gengi á íþróttasviðinu". Er Jakob hafði lokið máli sínu, tók Albert Guðm. til máls og á- varpaði Gurjnar nokkrum orðum. Minntist þar liðinna daga í sam- starfi þeirra á íþróttasviðinu og gat þess, að hann hefði verið suð- ur á Ítalíu um það leyti, sem Gunnar vann sinn frækilega sigur í kúluvarpinu á Evrópumeistara- mótinu. Kvað Albert að sá sigur hefði glatt sig mjög og almennur fögnuður hefði ríkt yfir honum, á heimili sínu. Þakkaði hann þrótt- mikla keppni Gunnars fyrr og síð- ar í drengilegum leik á íþrótta- sviðinu. Afhenti hann síðan Gunn- ari fagurlega gjörðan bikar með eftirfarandi áletrun: Gunnar Huseby, fyrir íþrótta- áhuga og afrek í 25 ár, frá Albert Guðmundssyni og Jakob Hafstein 1962. Vér verðlaunum margt, sem vel er gert, svo sem sjálfsagt er, bætti Albert við að lokum og 25 ára í- þróttastarf, eins og það sem Gunn ar Huseby hefur innt af höndum, á ekki að vera undanskilið. Slík aldarfjórðungs þjónusta við íþrótt- irnar á ekki og má ekki falla í gleymsku. Það höfum við Jakob Hafstein viljað undirstrika með þessari litlu viðurkenningu. Að lokum þakkað Gunnar Huse- by þá vinsemd og virðingu sem hon um hafði verið sýnd með viður- kenningu þessari. I kvöld miðvikudag, fer fram leikur milli Vals og Fram, í Reykja víkurmót'inu. En leik þessara aðila fékkst ekki lokið í vor, sælla minn inga, vegna misklíðar dómara og annars línuyarðarins. Fari leikar svo, að Frammarar beri sigur úr býtum, verður KR að leika við þá til úrslita, en sigri Valur hins vegar eða jafntefli verði er. KR orðinn Reykjavíkurmeistari án frekari íyrirhafnar. Á fimmtudagskvöldið verður úr- siitaleikurinn í II. deild háður á Laugardalsvellinum og hefst hann kl. 6.30 e.h. Það er Þróttur og ÍBK sem þama berjast um það hvort þeirra á áð leika í I. deild næsta ár og taka þar sæti ísfirðinganna. Bæði félögin standa jöfn að stigum svo um hreina úrslitakeppni verð ur að ræða. Er enginn vafi á að i leikur þessi verður hvort tveggi* ; spennandi og kappsfullur. Valbjörn Þorláksson hinn nýji methafi í tugþraut. Valbjörn 6983 Bætti met Arnar; I um 94 stig ! Á Reykjavíkurmeistaramótinu í tugþraut, sem lauk á Melavellinum um 10 leytið í gærkvöldi, setti Val- björn Þorláksson ÍR nýtt og glæsi- legt íslandsmet, hlaut 6983 stig. | Gamla metið' 6889 stig átti Örn i Clausen, ÍR sett á Melavellinum 1951 í hörkukeppni við þáverandi Evrópumeistara, Ignace Heinrich, Frakklandi. Við skýrðum frá árangri Val- bjarnar eftir fyrri daginn í blaðinu í gær, erí þá híaut hann 3846 stig. Afrek Valbjarnar í einstökum greinum tugþrautarinnar eru: 100 ni. 10,8 sek., langstökk 6,81 m., kúluvárp 12,44 m„ hástökk 1,80 m„ 400 m. hlaup 51,5 sek„ 110 m. grindahlaup 15,3 sek„ kringlukast 39,04 m„ stangarsfökk 4,30 m„ spjótkast 55,51 m„ og 1500 m. hlaup 5:02,2 mín. Afrek Valbjarn ar í langstökki og 110 m. grinda- hlaupi eru þau beztu, sem han,n hefur náð. Hann sigraði í 6 grein um tugþrautarinnar, 100 m. há- stökki, 400 m„ 110 grind., stangar stökki og 1500 m. I Annar í tugþrautinni varð' Björg j vin Hólm, ÍR 6268 stig, þriðji Kjárt j an Guðjónsson KR 5181, f jórði Esnar Frímannsson KR 6145 stig og fimmti Ólafur Unnsteinsson ÍR ,4595 stig. Afrek Valbjarnar er það 8. bezla í Evrópu í ár. Enska knaftspyrnan Unglingameistaramótinu lauk á mánudaginn Unglingamcistaramóti Islands lauk á Melavellinum sl. mánudags- kvöld. Keppt var í boðhlaupum, 1500 m. liindrunarhlaupi og sleggju kasti. Keppni var skemmtileg og ár- angur góður. ÍR-sveitir sigruðu í báðum boðhlaupunum og náðu góð sim tímum. Sveit KR veitti ÍR all- harða keppfii í 4x100 m. boðhlaup inu og náði einnig góðum tíma. í 1000 m. boðhlaupinu setti sveina- sveit ÍR nýtt sveinamet, hljóp á 2:21,3. Garnla sveinametið 2:22,0 átti sveit Ármanns. Valur sigraöi örugglega í 1500 m. liindrunarhlaupi á sínum bezta tíma, en annar varð Kristján Mik aelsson. Jón Ö. Þormóðsson náði sínum bezta árangri í sleggjukasti kastaði 50.00 m. (6 kg. sleggja.) l’ramhaJcl á 14. siðu. Urslit á laugardag : 1. deild : Arsenal 1 - Manch. Utd. 3 Birmingham 2 - Leyton 2 Blaekburn 1 - Liverpool 0 Blackpool 0 - Wolves 2 Bolton 1 - Fulham 0 Everton 4 - Sheff. Wed. 1 Leicester 2 - Notth. For. 1 Manch. City 0 - Aston Villa 2 Sheff. Utd. 2 - Ipswich 1 W. Bromwich 1 - Burnley 2 West Ham 1 - Tottenham 6 2. deild : Chelsea 5 - Charlton 0 Derby 1 - Cardiff 2 Grimsby 3 - Scunthorpe 0 Leeds 1 - Sunderland 0 Luton 2 - Rotherham 3 Middlesbro 0 - Huddersfield 5 Newcastle 1 - Portsmouth 1 Norwich 2 ,- Plymorith 1 Southampton 0 - Bury 3 Swansea 2 - Stoke 1 Walsall 4 - Preston 1 Efstu og neðstu lið' í 1. deild ■ Wolvés 3 3 0 0 14-1 6 Aston Ville 3 3 0 0 7-2 6 Everton 3 3 0 0 10-3 6 Tottenham 3 2 0 1 10-3 4 Ipswich 3 0 1 .2 4-6 1 Leyton 3 0 1 2 4-6 1 Liverpool 3 0 1 2 3-5 :1 Manch. City 3 0 1 2 3-12 1 Birmingham 3 0 1 2 2-7 1 West. Ham. 3 0 0 3 3-13 0 Efstu og neðstu lið 2. deildar:- Chelsea 3 3 0 0 9-0 6 Swánsea 3 2 1 0 7-3 5 9 lið með 4 stig. Framhald a 14. siSu. Á fundi sínum í gær ákvað stjórn Frjálsíþráttasambands íslands að senda fj ‘ra kepp- endur á VII. Evrópum.mótið í frjálsíþróttum í Belgrad. íþróttamenúirnir eru: Val- björn Þoriáfcsstyn,,,, trígþraut og stangarstökk. Vihjálmur Ejnarsson, þrístökk. Jón Þ. Óíafsson, hástökk, Kristleif- «r G bjiirnsson, ‘ S000 m. hindr- >arhlaup. ' ” -arstjóri fiokksins verður Björn Vil- •mundarson, gjaldkeri FRÍ, en þjá’fTirs er Ga’mr Simonyi g frá Ungvcrjalandi. í? * í

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.