Alþýðublaðið - 01.09.1962, Page 9
■
: •
Gunnar Þorgeirsson: — Gott starf,
.
■.£%. ' \s0s J • £\-
r 17 er tvímælalaust sá allra bezti
jessarar söðlasmiður á íslandi, ég sný
finna. ekki aftur með það, að minnsta
tar Þor kosti meðan hann var og hét.
: treður Hjá honum var ég í gamla
lcnýjum daga, og hann hætti eiginlega
alveg eftir að ég fór.
r þeirra
fngrein, — Hvað hefur þú unnið
ndi? lengi við söðlasmíðar Gunn-
ekki al- ar_
ií elztur — O, ég lærði nú hérna í
ía fyrir gamla daga, árið 1920 í Dala-
rum, ég sýslunni hjá Sigurði Jóhanns
st hing- syni á Þverfelli í Saurbæ, og
Jigurður síðan hef ég verið við þetta
íur og jiieýgarðshornið, söðlasmíð-
ir allra, ina. Og mér hefur líkað vinn
11. Ann- an alveg hreint prýðilega,
tu leyti hún er þrifaleg og gott starf,
lann er það eru allir fullsæmdir af
rl grey- því að verða söðlasmiðir. Ég
ri fyrir var einu sinni við skósmíði
en ekki hér í gamla daga, á ísafirði.
útir. Og og það var nú meira drullu-
bænum jobbið skal ég segja þér. Skó-
er sezt- smíðin er ekkert á móti söðla-
er hann smíðinni, að minnsta kosti
hann er eins og hún er orðin núna,
ekkert annað en að lappa upp
á gamla drulluga skó, sem
anga af fótalykt, Nei, þá er
betra að vera söðlasmiður,
alltaf hreinn og þokkalegur,
nema þá sjaldan sem maður
fær óhreina og gamla hnakka.
— Hvernig finnst þér sú
þróun að söðlasmíðin hér sé
að deyja út, það séu engir sem
koma og taka við tólunum
hjá ykkur?
— Ég veit ekki, nú er hægt
orðið að kaupa allt frá út-
löndum, enskir hnakkar vaða
hér uppi, og úr því enginn
vill læra starfið, þá er ekkert
við því að gera. Söðlasmíðin
er að mestu leyti komin í
hendur fúskurum, gjörsam-
lega ófaglærðum mönnum,
sem darka með meistararétt-
indi án þess að hafa nokkurn
tíma lært fagið. Þeir bjóða
svo niður verðið á sínum
hnökkum niður úr öllu valdi.
,Og nú er svo komið að fólk-
ið sem kaupir hnakka spyr
bara um verðið, ekkert ann-
að kemst í huga þess það
hefur ekkert auga lengur
fyrir handbragði á hnökkum.
þekkir ekki gullið frá soran-
um, meistaravinnuna frá fúsk
arahandbragðinu. Og úr því
að svo er komið þá er alveg
sama hvort fagið deyr eða lif-
ir, það greinir enginn mismun
inn, — en óneitanlega er
sárt að sjá það glatast, hið
æfða handbragð góðs söðla-
smiðs.
— Og ég vildi ekki hafa
lærling, bókstaflega af því að
ég treysti mér ekki til að
kenna honum það bezta, það
er ekkert gaman annað. Ég
held að listin sé alveg dáin
út, hún fer í gröfina með
okkur þessum gamalmennum,
sem enn dútlum við þetta.
— Svo segir Gunnar Þor-
geirsson, sá sem er álitinn
einn af færustu mönnum.
söðlasmíðarinnar, iðnaðarinn-
ar, sem glataðist íslending-
um á sjöunda áratug þessarar
aldar.
f
SPEGLAR - SPEGLAR
Miklið úrval af allskonar speglum nýkomið:
í baðherbergi. — Forstofur, bæði til að skrúfa á veggi og
í TEAK-umgjörð.
Vængjaspeglar á snyrtiborð. Einnig allskonar smáspeglaí.
SPEGLABÚÐIN
Laugavegi 15. Sími: 1-96-35.
Orðsending
frá Húsmæðraskóla Reykjavíkur
Kvöldnámskeið í matreiðslu hefjast 1. októ-
ber n.k.
Innritun í dag frá kl. 9—2 s. d. — Sími 11578.
Skólastjóri.
Hótel Btíðir
Lokað mánudaginn 3. september.
HÓTEL BÚÐIR.
ÚTSALA
Þar sem verzlunin hættir að verzla með metravöru að
mestu leyti, seljast öll ullarefnin, kjóla-, dragta-, pils- og
kápuefnin með afslætti, sem nemur 25 til 40%. Allt góðar
og vandaðar vörur.
Ennfremur selzt nokkuð magn af prjónagarni með lækk-
uðu verði:
Nakargarn 100 gr. á 30.00
Babybarn 50 gr. á 15.00
Grillongarn 50 gr. á 12.00
Golfgarn 100 gr. á 20.00
Mohair Boucle 50 gr. áður 47.00. nú 20.00
Sportsokkar nr. 2 — 12 á 10.00
Uppháir barnasokkar á 5,00
Kvenbaðmullarsokkar á 15,00
Barnaullarpeysur nr. 2 á 65.00
Gluggat j aldaefni:
Damansk 120 cm br. á 85.00
Bobinetefni 140 cm br. á 38.00 kr.
Ath: Útsölutíminn er óðum að styttast.
Verzl. H. H O F T
Skólavörgustíg 8.
Gufupressun Akureyrar
Skipagötu 12 — Sími 1421
Stofnuð 1938
Fyrsta fyrirtækið á þessu sviði norðanlands.
Áherzla lögð á vantíaða vinnu,
fljóta afgreiðslu.
Gufupressun Akureyrar
Skipagötu 12 — Sími 1421.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
1. sept. 1962 §)