Alþýðublaðið - 12.09.1962, Page 2
Ritstjórar: Gísli J Ástþórsson (áb) og Benedikt Gröndai,—AOstoðarritstjórl
Björgvin Guðmunrisson. — Fréttaiitstjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. — Símar:
14 900 - 14 902 -- 14 903. Auglýsingasími: 14 906 — Aðsetur: Alþýðuliúsið.
- Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu 8-10 — Áskriftargjald kr. 55.00
á mánuði. í lau: asölu kr. 3 00 eint. Útgefandi: Alþýðufiokkurinn. — Fram-
kvæmdastjóri: Ásgeir Jéhannesson.
■*
• DAVÍÐ BEN-GURION
DAVÍÐ BEN-GURION, forsætisráðherra ísraels,
væntanlegur hingað til lands í kvöld í opinbera
heimsókn. Hefur hann verið á ferð um Norðurlönd
til að kynnast lífi fólks og þjóðskipulagi í þess-
um hluta heims, eh einnig til að kynna land sitt og
þjóð.
ísrael er aðeins 15 ára gamalt sem fullvalda ríki.
Það er umkringt fjandsamlegum nágrönnum, sem
svarið hafa að koma því fyrir kattarnef. Gyðingar
vita því vel, að þeir verða að leggja fram alla krafta
sína, ef þeim á að takast að tryggja framtíð hins
nýja heimalands þjóðar, sem hefur verið heimilis-
laus að kalla í tvö þúsund ár.
Ben-Gurion er ekki aðeins einn af höfuðleiðtog-
um Israelsríkis og forsætisráðherra þess frá stofn-
un. Hann er mikilhæfur baráttumaður og alþýðu-
íeiðtogi, sem hefði hlotið forustuhlutverk með
hvaða þjóð, sem er. Hann aðhylltist ungur sósíalis-
ma og hefur átt meginþátt í að móta ísrael í anda
jafnaðarstefnu og samvinnuhugsjónar. Hafa þessar
systurstefnur óvíða í frjálsum löndum náð svo mikl
um árangri í raun sem í Israel. Athyglisverðast er,
að Gyðingar þar eystra leggja höfuðáherzlu á frelsi
einstaklingsins og hafna ófrelsi og kúgun kommún
ismans.
íslendingar kunna vel að meta forustumenn, sem
standa föstum fótum í liðinni tíð og fomum bók-
menntum, en hagnýta vizku aldanna til lausnar á
vandamálum nútímans. Ben-Gurion er slíkur mað-
ur. Hann vitnar tíðum í spámennina og hvetur þjóð
sína til að byggja þjóðfélag sitt í anda þeirra: Frið
ur og bræðralag eru arfur frá spámönnunum, segir
binn aldni forsætisráðherra.
Eins og vitrum mönnum er títt, er þeir hugsa í
öldum en ekki árum, er Ben-Gurion bjartsýnn um
framtíð mannkynsins. Hann telur að kalda stríðið
muni smám saman hjaðna, og veigamiklar breyt-
ingar verða í austri og vestri, er renna muni styrk-
um stoðum undir tryggan heimsfrið. Hann hefur
Ijjargfasta trú á hugsjónum sínum um framtíðar
þjóðfélagið, sem mun byggjast á frelsi, jafnrétti,
kunnáttu og sköpunarmætti hins vinnandi manns,
þar sem þrældómur, misrétti eða valdbeiting eiga
sér ekki stað. Hann bendir á, að hráefni, tækni,
verkfæri, fjármagn og skipulag eigi drjúgan þátt í
uppbyggingu ríkisins, en þetta séu aðeins hjálpar
meðul. Mest sé vert um manninn sjálfan, sem verði
^ð vera efst á baugi.
Davíð Ben-Gurion er íslendingum sannarlega vel
kominn gestur.
Alltaf fjölgar
VOLKSWAGEN
VOLKSWAGEN
KOSTAR
Volkswagen er með miðstöð, sprautu
á framrúðu, leðurlíkingu á sætum og
í toppi, synkroniseruðum gírkassa.
Heildverzlunin HEKLA h.f.
Hverfisgötu 103 — Sími 11275.
HANNES
á horninu
Umferðarkönnun nauð
syrileg.
Hjálpum til svo að ár-
angurinn verði góður.
Fyrsta umferðarkennsl
an.
Skemmtilegar minning
ar.
' ÉG VIL HVETJA bifreiðaeigend
ur að taka vel undir þá könnun,
sem nú er efnt til um umferðina í
Reykjavík og nágrenni. Ég hef
kynnt mér hana nokkuð og sé
ekki betur en stefnt sé í rétta átt
að spurningarnar, sem lagðar eru
fyrir Ibifreiðaeigendur séu allar
nauðsyniegar til þess að geta byggt
á áætlanir um skipulag borgarinn
ar í sambandi við hina vaxandi um
ferð og aukinn bifreiðakost.
MIKLAR UMBÆTUR hafa orðið
í umferðarmálum borgarinnar á síð
ustu tveim til þrem áratugum. Ég
man hve mikla athygli það vakti
þegar fyrsta sinn var gerð tilraun
til. að kenna fólki að ana ekki
beint af augum og tiilitsiaust Þann
dag tók Knud Ziemsen borgar-
stjóri sér stöðu á miðjum krossgöt
um Austurstrætis og Pósthússtræt
is og baðaði út öllum öngum og
stjórnaði umferð.
MIKILL MANNFJÖLDI safnað
ist um hann til þess að fylgjast
með þessu uppátæki, en hann kaU
aði hvatskeytislega til þeirra, sem
ekki hlýddu bendingum hans. Þá
var mikil ólga í pólitík og borgar-
stjórinn var miðdepill ólgunnar.
Það bar líka á því, að áestustu and-
stæðingar hans gerðu gys að.hon
um og vildu ekki fara eftir skipun
um hans eða bendingum. Ég var
skelfilega mikið á móti honum í
pólitík, en um þetta skrifaði ég í
blaðið og bar lof á hann fyrir fram
Framh. á 14. síðu
2 12. sept. 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ