Alþýðublaðið - 12.09.1962, Síða 5
I
ista og sósíalista. Vann hann mik
ið fyrir málstað þeirra hreyfinga
og talaði á alls kyns fundum.
BRAUTRYÐJANDINN.
Sumarið 1906 fór David Ben
Gurion að heiman í hópi braut-
ryðjenda til að heimsækja land
feðra sinna og undirbúa jarðveg-
inn fyrir stofnun samveldis Gyð-
inga. Hann fór í land í Jaffa í
heimildarleysi og •hóf vinnu í
fyrsta landbúnaðarhéraði Gyð-
inga. Hann tók virkan þátt í
starfi sósíalistiskra Zionista og
varð viðiírkonndur áhrifamaður
og mælskusnillingur. Haustið 1907
fluttist hann í afskekktan smá-
bæ og skipulagði varnir landnem-
anna gegn ræningjum, sem herj-
uðu á plássið.
Árið 1910 bauð Izliak Ben-Zvi,
núv. forseti Ísraelsríkis, Ben-Gur-
ion sæti í ritnefnd fyrsta hebrezka
sósíalistablaðsins í Jerúsalem.
hreyfingu GySingaverkamanna,
Hann markaði stefnuna fyrir
sameiningu G.vðingabyggða í Pal-
estínu og sjálfstjórn þeirra.
Vorið .1912 fór hann.ásamt Ben-
Zvi til Konstantinopel til að læra
lögfræjji og geta þannig orðið
virkari fulltrúi fólksins. En vorið
1915 voru þeir báðir gerðir brott-
rækir frá Palestínu ákærðir um
að egna til uppreisnar og tyrkn-
eski landsstjórinn lét þau orð falla
að þeir mættu aldrei framar stíga
þar á land.
Þeir héldu til Bandaríkjanna og
stofnuðu hreyfingu til að koma á
landnámi í Gyðingalandi og Gyð-
ingaher til að berjast með Banda-
mönnum. Hinn 5. desember kvænt-
ist Ben-Gurion Paulina Munweiss,
sem síðan hefur staðið við hlið
manns síns og gætt heilsu hans
og velferðar.
| Ben-Gurion gekk í nýstofnaða
j Gyðingaherdeild eftir að Banda-
ríkin fóru að taka þátt í heims-
styrjöldinni og komst með henni
■til Egyptalands í ágústmánuði
1918, en eftir heimkomuna hófst
j nýr þáttur í starfinu. Þá laut Pal-
'estína brezkri umboðsstjórn.
BARÁTTAN FYRIR SAM-
EININGU.
Fyrsta takmark Ben-Gurions
var sameining verklýðshreyfing-
arinnar, sem skiptist milli fjölda
flokka. Stofnaði hann verklýðs-
samband og varð aðalritari þess.
Undir stjórn hans vann sambandið
að launabótum og bættum vinnu-
skilyrðum og undirbjó grundvöll-
inn að stofnun þjóðarheimilis Gyð-
inga.
Árið 1930 náðist sá mikilv. áfangi
að tveir helztu verklýðsflokkarn-
ir runnu saman og stofnaður var
,,Mapai“-flokkurinn, þ. e. verka-
j mannaflokkur ísraels.
* Allt frá 1920 var Ben Gurion
I leiðtogi Zionistahreyfingarinnar
|Og árið 1933 þegar verkamanna-
Iflokkurinn hafði unnið um helming
j þingsæta á 18. Gyðingaráðstefn-
lunni varð hann stjórnarmeðlimur
j Gyðingasamtakanna, • en tveimur
I árum síðar formaður. Forseti sam-
itakanna var Dr. Chaim Weizmann.
, Ben-Gurion vann ótrauður að
landbúnaðar- og iðnaðarmálum.
Þótt hann skipulegði varnir Gyð-
inga gegn síendurteknum árásum
Araba var hann algjörlega and-
vígur almennum hefndarráðstöf-
unm gegn óvopnuðum Aröbum.
Árið 1936 ræddi hann við
brezka stjórnarnefnd, sem rann-
saka skyldi hið alvarlega ástand
er hlauzt af æsingum og uppþotum
Araba, og féllst Ben-Gurion á til-
lögu nefndarinnar um skiptingu
landsins. 1939 sótti hann ráðstefnu
i Lundúnum til að ræða vandamál
Palestínu.
David Ben-Gurion var leiðtogi
í baráttu Gyðinga gegn tillög-
um brezku stjórnarinnar í hvít-
bók 1939, sem takmarkað hefðu
innflutning Gyðinga og jarða-
kaup þannig .að þeir hefðu jafnan
verið í minnihluta.
Þegar Bretar sögðu Þjóðverj-
um stríð á hendur og Gyðingar
Palestinu buðu þegar alla aðstoð
sína í baráttunni gegn hinum
sameiginlegu óvinum lýsti Ben-
Gurion stefnu sinni á þá lcið, sem
frægt er orðið, að þeir mundu
berjast gegn hvítbókinni eins og
cngin styrjöld væri.
Eftir því sem á styrjöldina leið
sannfærðist Ben-Gurion um að
brezka urhboðsstjórnin væri dauða
DAVID Ben-Gurion hefur
verið forsætisráðherra ísraels
allt frá stofnun ríkisins að rúmu
ári undanteknu. Hann fæddist 16.
Október 1886 í Plonsk, smáþorpi
í hinum rússneska hluta Póllands
lim 45-mílur frá Varsjá: Ættarnafn
ið var Green, en hann breytti því
í Ben-Gurion skömmu eftir að
hann settist að í ísrael.
Nokkrir ættliðir forfeðra hans
höfðu átt heima í Plonsk, en afi
hans og faðir, sem hét Avigdor,
Voru mikilsvirtir menningar-
frömuðir. Faðir Davids helgaði
Eig Zionistahreyfingunni, sem þá
var ný á nálinni, og lét kenna
Ibörnum sínum hebrezku. Ben-
Gurion hefur sagt, að faðir hans
hafi kennt honum að unna Gyð-
ingaþjóðinni, ísrael og hebrezkri
tungu.
David var vel gefinn drengur
og hann var ekki nema 14 ára
þegar hann stofnaði félag til að
útbreiða hebrezka tungu og menn-
ingu meðal unglinga. Nokkru
síðar fór hann til náms í Varsjá
Og 1903 gekk hgnn í félag Zion-
I ■ ■■M8WMBMW)
dæmd og á ráðstefnu Zionista »-
New York 1942 gekkst hann fyrir
samþykkt ályktunar um að krefjast
þess að Palestína yrði samveldí
Gyðinga.
Þegar spennan jókst að styr-
jöldinni lokinni með því ákvæð’-
um hvítbókarninnar var haldið 'til
streitu. þrátt fyrir þörfina á !að
finna samastað fyrir heimilislaúsa
Gyðinga i Evrópu, gerði Ben-Gtir-
ion ráðstafanir til að mæta hverju
sem koma kynni og fór til Banda-
ríkjanna .til að afla fjár til vopna-
kaupa vegna varna landsins. 1946
varð hann varnarmálaráðunautur
Gyðingasamtakanna og hélt áfram
að búa sig undir árásir Araba.
Hinn 29. nóvember samþykkti
allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna ályktun um skiptingu lands-
ins og hófust þá þegar árásir
Araba og annarra á Gyðinga-
byggðir og samgöngur. Gaf B4n-
Gurion sig þá allan að varnarmál-
um með alþekktri elju sinni Hann
varð leiðtogi stjórnarvalda allra
Gyðinga og þannig raunverulega
.forsætis- og varnarmálaráðherra-
hins væntanlega Gyðingaríkis. Þeg
ar Ísraelsríki var stofnað 14. njaí
1948 og Bretar voru að fara varð
hann yfirmaður bráðabyrgðastjórn-
arinnar.
EINSTAKUR MAÐUR.
Síðan ríkið var stofnað hefur
Ben-Gurion verið forsætis- og
landvarnamálaráðherra allra ríkis-
stjórna ísraels nema einnar og.for
ingi stærsta stjórnmálaflokksins,
enda hefur hann borið hæst »•
stjórnmálalífi landsins og ver'ð
einn þekktasti þjóðarleiðtógi
veraldar.
Þótt ráðherrann hafi jafnan
tjáð sig viljugan til að hitta leið-
toga Arabaríkjanna að máli og
ræða friðarmálin án þess a<5
setja skilyrði, hefur hann lagt
áherzlu á frumskyldu landsmanr.a
að verja tilverurétt sinn með þvi
Arabar hafa opinberlega hótað að
eyða landinu í styrjöld.
Árum saman höfðu Arabar háð
skæruliðahernað og í október 1956
þegar þeir bjuggu sig opinskátt
undir styrjöld með Egypta í farar-
broddi fyrirskipaði forsætiisráð-
herra ísraéls landvarnaliðinu að
Framh. á 7. síðu
★ Nýir og breyttir t.ímar er
nú að hefjast í sögu mannkyns-
ins. Stórar þjóðir og smáar, sem
Iengi hafa lotið erlendri stjórn,
eru að varjra af sér okinu og
öðlast sjálfstæði. Sumar þeirra
eiga sér forna menningu, r
aðrar hafa engrar uppfræðslu
notið öldum saman. Þess getur
ekki verið langt að bíða að all
ar þjóðir verði jafn réttháar,
sjálfum sér ráðandi og frjálsar
í samfélagi manna án tillits til
litarháttar kynþátta eða menn-
ingarhátta.
★ Jafnvel „kalda stríðið" er
stundarfyrirbrigði. Bæði Sovét-
ríkin og Bandaríkin verða að
lúta lögmáli breytinganna og
þessi tvö stórveldi munu ekki
ögra hverju öðru grá fyrir járn
um um aldur og ævi. í Ameríku
eykst styrkur verkamanna,
bænda 'og vísindamanna og í
Veit hvað hann
synguiY sá
Sovétríkjunum er Ieitað eftir
frjálsræði og bættum lífskjör-
um. Eftir því sem fræðsla er
aukin og vináttubönd vísinda-
manna styrkjast vex vissulega
löngun eftir frjálsræði í hugsun
orði og vali og að lokum mun
lýðræðið sigra.
★ Veröldin mun ekki halda á
fram að vera til ef henni er
skipt í hélming, sem lifir í alls
nægtum og helming, sem býr
við fátækt. Mannkyninu stafar
hætta af bilinu mikla milli ríkra
þjóða og fátækra, en ekki eins
af kalda stríðinu milli austurs
og \ esturs.
★ Hægt er að vinna hugi As
íu- og Afríkuþjóða með því að
koma fram við þær sem með-
bræður og jafningja og sýna
þeim manniega einlægni og
traust án þess að vera með
gort eða hroka velgerðarmanns
ins og „stóra bróður“. Ekki
nægir að bjóða vísindalega og
efnislega aðstoð, en sýna ber
að þjóðirnar eru knýttar vin-
áttuböndum vegna sameigin-
Iegra örlaga eins og við í ísra-
el komum fram við fólk úr
víðri veröld, sein safnast sam-
an í okkar Iandi.
ÍSRAEL OG UTLEGÐ
GYÐINGA.
★ Ísraelsríki er takmark *
sjálfu sér og ekki þarf að rétt
læta tilveru þess. En það stefn
ir einnig að æðra takmarki, sem
er fullkomin endurreisn Gyð-
ingaþjóðarinnar allrar í anda
Jesaja og Mika.
★ Eini „bandamaður“ þess
er útlegð Gyðinga, sem skapaði
það, heldur áfram að veita því
styrk og endurreisir það. Sam-
starfið er ekki ákvarðað í nein
um hátíðlegum, undirrituðum
og innsigluðum samning, cu
Framh. á 7. síðu
■) i>
ALÞÝÐUBLAtHÐ - 12. sept. 1962 $