Alþýðublaðið - 12.09.1962, Page 9
leg aukning frá því sem áð-
ur var, aðeins 105 Kínverjar
á ári. Bandaríkin hafa auk
þess séð hálfri milljón manna
fyrir matvælum í Hong
Kong, og einnig sent hvatn-
ingu til annarra ríkja Ame-
ríku um að taka á móti
flóttamönnum. En í Peking
er ekki haldið á málunum
með jafnmiklum mannúðar-
brag. Þeir vita, sem er, að
bæðu þeir um alþjóðlega að-
stoð gegn hungursneyðinni,
neyðinni, yrði þegar gripið til
róttækra ráðstafana í hinum
vestræna heimi. Þeir biðja
ekki um hjálp, — heldur láta
þeir fólkið flýja.
Þúsundir og aftur þúsund-
ir standa stöðugt meðfram
landamærunum til Hong
Kong og hafa aðeins eina ósk
heitasta : Að komast yfir, —
þeir vilja flýja frá hungurs-
neyðinni, til tryggs lífs í
frelsinu.
En hvað er frelsi Hong
Kong? Hún gefur hvorki at-
vinnu, bústað, öryggi, né
nokkuð annað sem talizt get-
ur til þjóðfélagslegra nauð-
synja. Það er freisið í hús-
um byggðum úr pappa, frels-
ið í fljótandi heimilum, sem
varla er hægt að kalla báta.
Og það er frelsið í hellum.
Mannfólkið hefur leitað aft-
ur á náðir fortíðarinnar.
Og allt er krökkt af fólki,
það sefur hvert við annars
hlið yfir alla eyjvtna. Þannig
er búið á eyjunni Hong Kong,
þar sem neyðin er mest í
heiminum á friðartímum.
Og flóttamennirnir knýja
enn dyra, því það er hungur
í austri.
Efri myndin: Þannig
er hreinlætið í Hong
Kong. Það er almennur
þvottadaeur og konurn
ar flykkjast niður að
eina vatnshólinu til að
hvo tuskur sínar. Vatn
ið er banvænt vegna
gerla, og flíkurnar
verða litlu hreinni skol
aðar upp úr skolpugu,
vatninu. Þar þvær einn
upp úr annars skoli.
Neðri myndin: Þarna
hefur einn flúið hungr-
ið og þjáningar fyrir
handan hjá Kínverj-
um, en það stoðar ekki
að vera kominn til frels
isins, þegar þar er ekk
ert athvarf fyrir mann.
Þess vegna er þessi grát
andi maður færður aft
ur til baka, til þess að
auka ekki á örbirgðina
á eyjunni, rekinn til
baka til hins kommún-
istíska Kína.
Hinir margeftirspurðu
amerísku greiðslusloppar
eru komnir.
Margir litir og gerðir.
Verð: Kr. 445,00
— — 495,00
— — 540,00 '
Laugaveg 26, sími 15-18-6.
Matráðskona
óskast, frá 20. september til 31. október, í
mötuneyti skrifstofunnar, Pósthússtræti 2.
Upplýsingar í síma 19460.
H. F. Eimskiptafélag íslands.
Áðstoðarmaður eða aðstoðarstúlka
Óskast til rannsóknarstarfa við Eðlisfræðistofnun Háskól-
ans, einhver þekking í rafmagnsfræði eða efnafræði æski-
leg.
Skólinn tekur nú brátt til starfa og er innritun hafin. Er
skrifstofan opin alla virka daga kl. 1—8 e. h. meðan á inn-
ritun stendur. Verða nemendur innritaðir til föstudags 21.
sept. Enn sem fyrr hefur skólinn úrvalskennurum á að
skipa, og hafa tveir sérfræðingar í ensku talmáli, Mr. E.
M. Read, B. A. og Mr. Roy Izzard, B. A. bætzt í hópinn.
Hafa þeir báðir hlotið sérstök meðmæli í þessum greinum
frá skólum í Bretlandi. Þá hefur einnig bætzt í hópinn nýr
þýzkukennari, Herr Dieter Wendler, B. A., sem í mörg ár
hefur kennt útlendingum þýzku í Heidelberg og lilotið
mjög góð meðmæli.
Fyrsta námskeið vetrarins lýkur 14. des., fyrir mestu jóla-
annirnar.
ENSKA, ÞÝZKA, DANSKA, FRANSKA, ÍTALSKA,
SPÁNSKA, SÆNSKA, RÚSSNESKA.
ÍSLENZKA FYRIR ÚTLENDINGA.
Málaskólinn Mímir
Hafnarstræti 15 (sími 22865 kl. 1—8 e. h.).
iBBS
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 12. sept.a962 9