Alþýðublaðið - 27.09.1962, Blaðsíða 5
Norræna félagið
fjöratíu ára
Norræna félagið á 40 ára af-
mæli n.k. laugardag. Afmælisfagn-
aður verður haldinn í Þjóðleikhús
inu á laugardagskvöldið. Heiðurs-
gestir á samkomunni verða hjónin
frú Anna Borg og Paul Reumert.
Frú Anna Borg og Palu Reum-
ert voru væntanleg til Reykjavík-
ur í gærkvöldi, en þau munu lesa
upp bæði sitt í hvoru lagi og sam
an á afmælishátíð norræna félags-
ins. Fleiri gestir eru væntanlegir,
sem koma til að skemmta aímaRis
gestunum. Norski söngvarinn OÍav
Eriksen syngur við undirieik Árna
Kristjánssonar, píanóleikara og
Kristinn Hallsson syngur finnsk
lög einnig með undirleik Árna.
Svíar senda fiðluleikarann Hjert
Craford, en hann er konsertmeist
ari við konunglegu óepruna í
Stokkhólmi. í för með honum er
eiginkona hans, sem er píanóleik
ari og mun liún leika með á píanó
ið undir fiðluleik eiginmannsins.
Hátíðin hefst með ávarpi Gunnars
Thoroddsen formanns norræna fé-
lagsins. Núverandi stjórn skipa
þessir menn:
Gunnar Thoroddsen, fjármála-
ráðherra, formaður, dr. Páll ísólfs
son, Vilhjálmur Þ. Gíslkson, út,-
varpsstjóri, Arnheiður Jónsdóttir,
Sveinn Ásgeirsson, hagfræðingur,
Sigurður Magnússon, fulltrúi, Tht«'
Olf Smith, fréttamaður. Fram-
kvæmdastjóri er Magnús Gíslasou
námsstjóri.
Norræna félagið starfar í 20
deildum hérlendis. Ein elzta og rót
grónasta félagsdeildin er á Siglu
firði, en öflugar félagsdeildir erss
einnig á Akranesi og ísafirði. Sam
bandsstjórnin er skipuð þessum
mönnum.
Gunnar, Thoroddsen, Þorleifur
Bjarnason, Steindór Sceindórsson,
Gunnar Ólafsson og Þóroddur Guð
mundsson.
Gunnar Thoroddsen, fjármála-
ráðherra skýrði fréttamönnum 1
gær nokkuð frá sögu og starfi nor
ræna félagsins á íslandi Hann
sagði, að upp úr fyrri heimsstyrj-
öldinni hefðu komið fram liugmynd
ir um að stoína norræn íélög. í
Svíþjóð, Noregi og Danmörku voru
svo stofnuð norræn félög árið 1919
og norski prófessorinn Fredrik
Paasche hvatti mjög til þess, að
slíkt félag yrði stofnað á íslandi.
Ilann ræddi við Svein Björnsson,
síðar forseta, sem þá var sendi-
herra íslands í Danmörku, en
loks varð úr, að Mattiiías Þórðar-
sori, þjóðskjalavörður varð for-
maður félagsins, þegar það var
stofnað 29. september 1922. I'egar
hann hætti formennsku tók við
því starfi próf. Sigurður Nordal,
síðar Stefán Jóhann Stetánsson,
núverandi sendiherra og loks Guí
ilaugur Rósinkranz, þjóðleikliús-
stjóri, en hann var síðasli formað
ur félagsins áður en Gunnar Thor
oddsen tók við.
Markmið félagsins hefur frá
öndverðu verið, að auka kynni,
samúð og samvinnu á milii Norð-
urlandanna fimm.
Afmælishátíðin hefst kl. 8.30 á
laugardagskvöldið. Öllum er heim
ill aðgangur, en aðgöngumiðasala
hefst klukkan 1.15 í dag.
HVmtVUWUVWmHMWUtVtM
REKKJAN
í SÍÐASTA
SINN
Ákveðið hefur verið, að hafa eina
sýninffu ennþá á hinu vinsælá leikj
riti Rekkjunni og verður hún næst-í
komandi laugardag kl. 11,30 í
Austurbæjarbíói. Hún verður á
vegum Félags ísl. leikara og
rennur allur ágóði í styrktarsjóði
félagsins. Leikritið var sýnt á mið.
nætursýningu í Austurbæjarbíói slj
laugardag og seldust allir aðgöngu
miðar á þá sýningu 800 að tölu á
mjög skömmum tima. Þetta verð-
ur allra síðasta sýning Ieiksins.
Myndin er af Herdísi Þorvalds-
dóttur og Gunnari Eyjólfssyni í
hlutverkum sínum.
FUJ1EYJUM
Aðalfundur PUJ í Vestmanna-
eyjum verður haldinn ntk. föstu
dagskvöld kl. 8.30 sd. á Hótel HB.
WWiV'^VVlVmVVVVVVVVMWVWWVVVWVVWWVVVVVWVVVVVVVVVVVW
Merkjasala Menn-
ingarog minningar
sjóðs kvenna
27. septembcr, afmælisdagur
Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, er
merkjasöludagur Menningar- og
minningarsjóðs kvenna. Á undan-
förnum árum hefur fjöldi kvenna
fengið styrki úr sjóðnum, einkan-
lega til háskólanáms og listnáms.
Þótt styrkirnir séu ekki háir, koma
þeir ungum stúlkum, sem stunda
nám erlendis, að góðu gagni.
Hversu mikla styrki er hægt að
veita, er alveg undir merkjasöl-
unni komið.
Þess er vænzt, að konur veiti
Ejóðnum lið með því að selja
merki.
Börn fá góð sölulaun.
Merkin verða afhent frá kl. 13
f dag, fimmtudag, á þessum stöð
Um:
Félagsheimili Neskirkju,
Sólvallagötu 25,
Iðnskólanum, inng. frá Vitast.
Tómstundaheimilinu, Lind. 50.
Háteigsvegi 30,
Laugalækj arskóla,
Safnaðarheimili Langholts-
Eóknar — og
Skrifstofu Kvenréttindafélags
íslands, Laufásvegi 3.
100 ARA ARTIÐ
Framhald af 13. síðu.
talaöi, en svo leit hann á migr,
cg það augnaráð, birtan, heið-
ríkjan í því, og svo liitinn og
styrkurinn í röddinni, þegar
hann sagði:
„Það livarflaði aldrei að mér
að makt myrkranna mundi bera
sigur úr býtum. Eg vissi, að
Guð mundi ekki leyfa það, og
ég veit, að liann mun ALDREI
leyfa það.“
Hvílík trú, hvílikt trúnaðar-
traust! Þarna var lians aflvaki
og leiðarljós. í krafti þessa
brauzt hann til mennta, ekki til
að verða sjálfur herra, heldur
til að þjóna föður gróandans
og öflum lífs með þjóð sinni, í
landi sínu. í starfinu í kirkj-
unni vildi hann vekja hjá söfn-
uði sínum trúna á forsjón Guðs
og þakka honum og vegsama
hann, og í starfinu í skólanum
og garðinum Skrúð vildi hann
efla trúna á gróðraröflin í
mannssálinni og í náttúrunni
umhverfis okkur. Ræktun mat-
jurtanna í garðinum og fræðsl-
an í skólanum um hið hagræna
og hagkvæma var í anda bæn-
arinnar:
gef oss í dag vort daglegt
brauð.
Og skrúðblómin litfögru í garff-
inum og trén meff syngjandi
þresti viff hreiffur milli hinna
grænu blaða, áttu, eins og ís-
lenzk tunga, fagrar bókmennt-
ir og söngur og hljómlist I
skólanum, að hefja til vegs 1
hjörtum hinna ungu hin al-
vöruþrungnu orff Meistarans:
maffurinn lifir ekki á einu
saman brauffi.
Eg sá þau síðast fyrir átján
árum í garðinum Skrúð, hjón-
in, séra Sigtrygg og frú Hjalta-
línu Guðjónsdóttur. Það var á
fögrum og sólríkum degi \un
Jónsmessuleytið. Þau voru
bæði önnum kafin. Þaff, sem ég
man bezt, er brosiff og ljómi
augnanna, þegar þau svöruðu
spurningum mínum, hins fá-
vísa, um þann gróffur, sem þau
voru að lilúa aff. Ljóminn sem
brá yfir andlit þeirra — hann
var ekki í neinum tengslum
viff vitundina um hiff síhækk-
andi verð á íslenzkum afurff-
um, en hins vegar voru mat-
jurtabeðin í garðinum greini-
Iegt vitni um þaff, aff þar hafði
verið frá öllu gengið af þekk-
ingu og vandvirkni, sem hæfði
vissu um góða uppskeru. Og
ég spurði sannarlega hvorki
sjálfan mig né þau, hvers
vegna þau væru nú að þessu,
manneskjur, sem sannarlega
gátu komizt vel af án þess.
Starf séra Sigtryggs bar
mikinn ávöxt — ekki sízt hjá
þeim fjölmörgu, sem stunduffu
nám í skóla hans. Og ef þjóff-
in varffveitir minningu hans í
ljóma þeirrar trúar, sem gaf
honum ofurmannlega orku til
þjónustu viff gróðraröfl tilver-
unnar, mætti þaff um alla fram
tíff verffa óbornum kynslóffum
kyndill á veginum til gæfu og
gengis.
Guðm. Gíslason Hagalín.
LD i SÓLARHRING
Akureyri í gærkvöldi.
ELDUR kom upp í heyhlöðu
á bænum Auðbrekku í Hörgárdal
í. gærkvöldi. Um kvöldmatarleytiff
í kvöld var enn veriff aff berjast
við eldinn. í heyhlöðunni munu
hafa veriff 1000-1200 hestar af heyi.
Slökkvilið Akureyrar var kvatt
að Auðbrekku í Hörgárdal kl.
19.40 í gærkvöldi. Þegar að var
komið var mikill eldur í hlöðunni
og stóðu logarnir upp um þakið.
Strax var hafizt handa um að
ráða niðurlögum eldsins. — Þak
hlöðunnar hrundi fljótlega. Enn
Reisiur minnis-
varði um séra Sig-
trygg á Núpi
var verið að bera út úr hlöðunni
og berjast við eldinn í kvöld.
Að Auðbrekku búa bræðurnir
Stefán og Þórir Valgeirssynir, og
hafa þeir orðið fyrir mjög tilfinn-
anlegu tjóni, því mikið hey var í
hlöðunni. — G. St.
Leiðrétting
í FRÉTT í þriðjudagsblaðinu
um drukknun Magnúsar Ragnars-
í Sandgerði, var það jnis-
sagt, að Guðrún Jóhannsdóttir,
unnusta hans hefði átt eitt
[ barn af fyrra hjónabandi. — Hið
[rétta er, að Guðrún á þrjú börn
af fyrra lijónabandi, og tvö Oórn
, með Magnúsi heitnum, 5 og 7
ára. -Eru hlutaðeigendur beðnir
1 velvirðingar á þessum mistökum.
i
ÍT
WmMWWVWWmMWWWWWVWWWWMWWMWV
í TILEFNI af 100 ára afmæli
séra Sigtryggs Guðlaugssonar á
Núpi hafa gamlir ncmendur lians
í Reykjavík og annars staðar á
landinu beitt sér fyrir því, að
tvennt yrði gert: gefin út bók um
séra Sigtrygg, og þeim hjónum,
frú Iljaltalínu og honum reistur
minnisvarði í Skrúff. Því miður
vannst ekki tími til að Ijúka þess-
um verkum fyrir afmælið, en þeim
er báðum svo langt komiff, að
þeim mun verða lokið á árinu
Ríkarður Jónsson myndhöggvari
hefur nálega fullgert myndina,
en Bókaútgáfa Menningarsjóðs
og Þjóðvinafélagsins gefur bók-
[ ina út. Verður hún aff meginmáli
ævisaga séra Sigtryggs, er einnig
flytur þætti frá gömlum nernend-
um.
njo- ;
koma
vestra
ísafirði í gær.
SVO mikil snjókoma
var hér vestra I fyrrinótt og
í gær, að Breiðdalsheiffi
tepptist. Ýtur voru sendar
út til að ryðja veginn og var
því verki lokiff strax í gær.
Enn er hvítt niður í miffj- \ i
ar hlíðar hér viff ísafjörð, &
en veðrið er annars ágætt. í €
dag. j |
WVWVWWVWVWWWMMWWVWi
ALÞÝÐUBLAÐIO - 27. sept. 1962 §