Alþýðublaðið - 26.10.1962, Page 16
43. árg. — Föstudagur 26- október 19S2 — 236- tbl.
EKKI hefjr verið endanlcga á-*
kveðið hvar hinn nýji KeflaviUur-
vegur skuli lag'ður. Nokkur áliöld
eru um það hvort vegurinn skuli
íylgja þeim ga‘nl.1 að mcstu á Vatns
- Ieysuströndin.ii, eða hvort hann
skuli Iagður í heiðinni fyrir ofan,
beint frá Kúagerði að Vogastapa.
Komið hefur í Ijós, að við pann
krók lengist vegurinn um 1,7
km. eða 4%
íbúar Vatnsleysustrandarhrepps
una því illa aö fá ekki veginn um
hlaðið hjá sér, en Vegamáiastjórn-
in telur að frá tækniiegu og fjár-
hagslegu sjónarmiði beri að leggja
veginn stytztu leið.
Mál þetta liefur verið mjög oí'ar-
lega á baugi meðaí íbúa í Vatns-
leysustrandarhreppi undanfarið og
lialdinn var borgavfundur um mál
ið suður þar sl. sunnudag, en ekki
hefur blaðinu teki/t að afla sér
neinna frétta af þeím fundi.
Vegarstæðin xim Si randal.eiði
og Vatnsley si.strönd munu vera
alveg sambærileg. Á báðum stöð-
um þarf að flylja fyilingarefni í
veginn um nuiikurri veg.
Lengd nýj.r vcgarins til Kefia-
víkur um Str mdaheiði er 37.4 km.
en vegurinn lengist um 1,7 km.
verði hann iagður um Ströndína.
Heildarlengd vegarins yrði þá
39,1 km.
Reiknað er með, að stofnkostn-
aður við lengingu vegarins yrði
6,8 milljónir, því talið er að lengd
arkílómeter í nýja veginum rnuni
kosta um 4 milljónir króna. Færi
svo að vegurinn y,ði lagður uni
heiðina, mundi þurfa nýjan malar
veg af Keflavíkurvegi og niður í
Voga. Talið er að sá vegur mundi
kosta um hálfa milljón króna.
Umferð unr veginn.
Á sl. ári fóru að meðaltali 1000
bílar um Kefi.ívíkurveginn á dag.
Nálægt þriðjungui' þess voru vöru
bílar og áætiunarbifreiðar. lJað
hefur verið reiknað út að auKa-
kostnaður umferðarinnar við það,
ef vegurinn lengist um 1,7 km
verði 3,4 miliíónir á ári miðað við
að 1000 bílar fari um veginn á dag.
Reiknað er með a3 umferð um
veginn tvöfaldist í næstu tíu ár-
ium og yrði kostaaður þá 6 3 millj.
á ári, en að viðoæt-um vöxtum og
viðhaldi um 7,5 milliónir.
Vegamálastjórnin teiur að, ef
vegurinn yrði lagður um Ströndina
hiundi það hafa töluveiða slysa- j
Framhald á 11. síðu
Októbersnjór
á ísafiröi
AÐUR en vetur er kominn
er kominn snjór og fros;.
Þcssi mynd var iekin á ísa-
firði og hún sýnir fól á göt-
um og ni ít þök vetrarsvix>
á öllum 1 oivtöber. — Ljósm.:
ísak Jónssoo.
STOKKHÖLMUR: - Sænska
stjórnin hefur fyrirskipað sérstak-
ar hernaðarráðstafanir, m. a. sér-
staka herkvaðningu, og fylgist vel
með framvindunni. Erlander for-
sætisráðherra hyggst ekki halda
heim úr orlofi sínu úr Júgóslav-
íu, en er reiðubúinn að gera það
með stuttum fyrirvara, ef þörf
krefur.
KENNEDY Bandaríkjaforseti og
Krústjov, forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna, voru báðir jákvæðir í
svörum sínum á fimmtudag við til-
lögu U Thants, aðalframkvæmda-
stjóra SÞ, í Kúbudeilunni.
Að sögn Tass-fréttastofunnar
sagði Krústjov, að hann væri fús
til að fallast á þá tillögu U Thants
að Sovétríkin hætti vopnaflutningi
Spilakvöld í Iðnó
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG Reykjavíkur heldur spilakvöld í
kvöld kl. 8,30 í Iðnó. Spilað verður um ágæt kvöldverðlaun.
Dr. Gunnlaugur Þórðarson flytur ávarp.
Skorað er á Alþýðuflokksfólk að sækja hin vinsælu spila-
kvöld vel. Fjölmennið stundvíslega í Iðnó í kvöld.
Yfirlitsmynd þessi sýnir mæta vel,
hvar til greina kemur, að vegurinn verði
lagður. Punktalínan sýnir veginn, eins
og hann mundi verða, ef hann yrði lagð-
ur með Ströndinni, en svarta línan fyrir
ofan, sýnir leiðina beint frá Kúagerði að
Vogastapa.
til Kúbu í 2-3 vikur meðan reynt
sé að ná samkomulagi, ef Banda-
ríkin afléttu hafnbanninu á Kúbu.
Kennedy Bandaríkjaforseti
sagði í svari sínu, sem Stevenson
aðalfulltrúi Bandaríkjanna hjá S
Þ. las upp í Öryggisráðinu á
fimmtudagskvöld, að núverandi
ógnun við heimsfriðinn hefði orð-
ið til vegna leynilegra sendinga á-
rásarvopna til Kúbu og svarið við
þessari ógnun væri brottflutning-
ur þessara vopna.
Kennedy fullvissaði U Thant
um það, að Stevenson aðalfulltrúi
væri reiðubúinn að ræða við aðnl-
framkvæmdastjórann um ráðstaf-
anir til þess að finna fullnægjandi
og friðsamlega lausn á Kúbu-
deilunni.
Áður hafði Stevenson sagt ráð-
inu, að hafnbann Bandaríkjanna
væri nauðsynlegt og það væri
ekki helzta vandamálið, beldur
brottflutningur sovézkra eldflauga
frá Kúbu.
Til harðra orðaskipta koni milli
fulltrúa Sovétríkjanna og Banda-
ríkjanna í umræðum ráðsins. Stev
enson hafnaði þeirri fuliyrðingu
Zorins, að Kennedy hefð'i hafið
Iíúbu-deiluna. Hann sýndi fulltrú
um ráðsins myndir af sovézkum
eldflaugastöðvum á Kúbu og baS
Zorin að játa eð'a neita því, að
þessar stöðvar væru á Kúbu. V.orin
neitaði að svara, og sagðis! ekki
vera fyrir bandarískum dómstói.
U Thant hefur viðræður:
Seint í gærkvöldi skýrði U
Thant frá því, að á morgun myndi
hann hefja viðræður við fulltrúa
Bandaríkjanna, Sovétríkjanna og
Kúbu um friðsamlega lausn Kúbu-
deilunnar.
1 Kynnisíör
I bænda
til Skotlands
SKOSKA blaðað Evening
Dispatch skýrði frá þvi fyrir
skömmu, að næsta sumar
váeri væntanlegur hópur ís-
lenzkra bænda í kynnisför
til kollega sinna í Skotlandi.
Jafnframt var skýrt frá því,
að séra Robert Jack mundi
verða fararstjóri í þessari
för.
í frétt skozka blaSsins seg-
ir, að fyrir tveim árum hafi
skozkir bændur farið slíka
kynnisför til islands. Þátt-
takendur í þessari bændaför
til Skotlands munu verða 15
talsins.
i lok fréttarinnar er sagt.
að skozku bændurnir, sem
heimsóttu island hafi kynnst
þar ýmsum nýjungum. I því
sambandi er til r.efnt að nú
séu farin að tíðkast grinda-
gólf í fjárhúsum í Skothindi
og sé það eftir íslenzkri fyrir
mynd. Sitthvað annað munu
skozku bændurnir telja sig
hafa lært í islandsför siuni.
MlWMMHUmMMMtMMMM