Alþýðublaðið - 16.11.1962, Qupperneq 1
43. árg. - Tdstudagur 16. nóvember 1962 - 253. tbl.
Diplomatiskar
aðgeröir gegn
Loftleiðum Sjá bak
MIKLUM ARANGRI NAO
FYRIR ÍSLENZKA ALÞÝDU
- Sagöi Emil í
setningarræðunni
ÞAÐ hefur átt sér stað gerbreyt-
ing á hinu islenzka þjóðfclag’i síð-
345
SÖFNUNIN fyrir börnin í Al-
sír er nú orðin alls 345 þúsund
þrónur, og er þó vitað um all-
miklar upphæSir, sem ekki er
búið að koma til blaðsins.
Alþýðublaðíð þakkar og
minnir enn á, að þörfin cr
mikil.
Hér fer á eftir listi yfir get-
endur og gjafir dagana 12.—
15. nóv.:
Solveig, Akureyri 100.00
P. U. 500.00
Framhald á *4. siðu.
ustu áratugina, sagði Emil Jóns-
son formaður Alþýðuflokksins í
setningarræðu sinni á 28. þingi
Álþýðuflokkslns sem hófst í gær-
kveldi. Og I þeim málum, er Al-
þýðuflokkurinn hefur látið sig
mest skipta, þ. e. í atvinnumálum
og félagsmálum, hafa umskipti
orðið mest sagði EmU.
Emil sagði, að atvinnuleysið,
hinn forni fjandi íslenzkrar al-
I þýðu væri nú gersamlega horfið.
Árið 1956 hefðu verið *ett lög um
i Atvinnuleysistryggingar, en svo
giftusamlega hefði tekizt tU, að
atvinnuleysistryggingasjóðurinn
hefði orðið að verja mjög litlum
fjárhæðum í atvlnnuleysisbætur.
Emil sagði, að brúttótekjur sjóðs-
ins hefðu numið 77.4 mlllj. árið
1961 en á þvi ári hefði aðeins
þurft að greiða 900 þús. kr. í at-
vinnuleysisbætur eða aðeins rúm-
lega 1% af brúttótekjunum. Sýndi
það vel hversu gott atvinnuástand
væri nú. Væru umskiptin vissu-
lega mikil frá því er verið hefði á
kreppuárunum, þegar menn hefðu
orðið að ganga atvinnulausir lang-
tímum saman.
Aðra staðreynd kvaðst Emil
vilja nefna er sýndi ánægjulcga
þróun í atvinnumálum. Hann
sagði, at atvinnutekjur úti á landi
hefðu aukizt mjög mikið og meira
en í Reykjavík. Athugun hefði
leitt í Ijós, að árið 1961 hefðu at-
vinnutékjur allra stærstu kaupstað
anna utan Reykjavíkur verlð
meiri en í höfuðborginni. Væru
þetta mikil og góð umskipti frá
því, er áður hefði verið, er át-
vlnnuleysi hefði verið mikið úti |
á landi. Emil sagði, að þessar
breytingar ættu rætur sínar að
rekja til þeirrar miklu atvinnu- j
uppbyggingar, er átt hefði sér stað
úti á landi. Byggðar hefðu verlð.
ný jar f iskvinnslustöðvar og ný,
fiskiskip fengin til þessara staða. |
Útfærsla fiskveiðilandhelginnar I
ætti einnig vafalaut stóran þátt í
þessari hagstæðu þróun og mættu
menn vel minnast þess í því sam-
bandi hversu góð og farsæl lausn
hefði fengizt á landhelgisdeil-
unni.
Emil vék að hinum miklu vinnu
deilum og vinnustöðvunum, er átt
hefðu sér stað undanfarin ár.
Hann sagði, að því miður hefði
niðurstaðan eftir löng og erfið
verkföll oft orðið sú, að upp
hefði á skömmum tíma étizt sú
hækkun, er fengizt hefði í vinnu-
deilum. Hlyti þvi að því að reka
að verkalýðssamtökin réðu í þjón
ustu sína sérfróða menn, er verið
gætu verkalýðsfélögunum til
ráðuneytis um það hvernig haga
bæri kaupgjaldsbaráttunni þann-
ig að hún mætti bera betri árang-
ur en verið hefði. Slíka leið hefðu
verkalýðssamtökin farið i ná-
grannalöndum okkar með góðum
árangri. Emil sagði, að tekjur
þjóðarinnar færu stöðugt vaxandi
og þess vegna ættu hinir vinnandi
menn að geta fengið hækkað kaup
og aukna kaupgetu ef rétt væri
á xnálum haldið. Sagði Emil, að
Alþýðuflokkurinn ættl að belta
sér fyrir því, að ný; vinnubrögð
yrðu upp tekin í þessu efni.
Emil sagði, að undanfarið hefði
það gerzt að ýmsar hinna hæst
launuðu stétta þjóðfélagsins
hefðu tekið verkfallsvopnið í sína
þjónustu, en það vopn væri vissu-
lega tvieggjað. En jafnframt kvað
Emil það hafa gerzt að frjálst sam
kómulag hefði náðst um það —
tvívcgis — að dómur skyldi skera
úr deilum, ef samkomulag næðist
ei eftir öðrum leiðum milli deiluað-
ila. Slíkt samkomulag hefði náðst
milli sjómanna og útvegsmanna
I sambandi við verðlagsdóm þann
er stofnseHur hefði verið til þess
að skera úr um fiskverð og slíkt
samkomulag hefði einnig náðst
hjá opinberum starfsmönnum í
sambandi við kjaradóm ,þann, er
komið hefði vcrið á fót til þess að
skera úr um laun þeirra. Yrði
fróðlegt að sjá hvemig þessir
kjaradómar myndu reynast. —
Emil sagði, að pólitískir and-
stæðingar Alþýðuflokksins hefðu
mjög notað kjaramálin til pólit-
iskra árása á Alþýðuflokkinn
einkum í sambandi við lausn síld-
veiðideilunnar sl. sumar. En fyr'
ir Alþýðuflokknum vekti það eitt
í sambandi við kaupgjaldsmálin
að bæta kjör launþega eftir raun-
hæfum lelðum.
Þá vék Emil að félagsmálum
Hann sagði, að Alþýðuflokkurinn
hefði ætíð barizt fyrir félagslega
öryggi og einnig á því sviði hefði
mikill og góður árangur náðst
fyrir frumkvæði Alþýðuflohksins.
Það hefði tekizt að auka og bæta
tryggingarnar mjög mikið á síð-
ustu árum. Gerbreyting hefði orð-
ið á sviði tryggingamála 1960 og
tryggingabætur hefðu verlð stór-
hækkaðar og hefði sú breyting, er
þá hefði verið gerð, fært okkur á
bekk með N-löndunum, er stæðu
einna fremstar á þessu sviði. t
fyrra hefði einnig orðið góð breyt-
ing með afnámi skerðingaráhvæð-
anna og nú lægi fyrir alþingi
frumvarp er einnig fæli í sér
stóra breytingu, þ. e. þá að gera
allt landið að einu verðlagssvæði.
Frnmhald á 15. síðu.
MYNDIR frá flokksþing-
inu: Efst til hægri sést Emil
Jónsson setja þingið. Á mynd
inni fyrir neðan, til vinstri
ræðlr Friðjón Skarphéðins-
son við- Sigurð Ingimundar-
son. Til hægri: Jón Axel
Pétursson og Bragi Sigur-
jónsson, þingforseti. Mynd-
irnar tók Gísli Gestss.