Alþýðublaðið - 16.11.1962, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 16.11.1962, Blaðsíða 4
ÞEGAR Björgrvin Gu'ð- mundsson dvaldist í Berlín fyrir nokkru, átti hann þess kost, að ræða við tvo aust- ur-þýzka flóttamenn, sem flúið höfðu frá Austur-Ber- lín til Vestur-Berlínar eftir að múrinn hafði verið reist- ur. í þessari grein segir Björgvin frá viðtalinu við flóttamennina. „70-80% þeirra, sem eru í austur-þýzka hernum og alþýðu lögreglunni eru á móti ríkis- stjórn Ulbrichts og trúa ekki á sigur kommúnismans í Au.- Þýzkalandi. En fjölskyldubönd binda þá við störf fyrir aust- ur-þýzku stjórnina“. Það er ungur maður, er fyrir tæpu ári var í austur- þýzku lögreglunni (Vopo), sem mælir þessi orð. Honum tókst að flýja yfir til V-Berlín- flúið saman. Eg hafði unnið sem blaðamaður við austur- þýzkt blað. Tók ég það nú til bragðs, að skýra yfirvöldum lögreglunnar frá því, að ég væri ásamt félaga minum að skrifa skáldsögu og því væri mjög mikilvægt, að við fengj- um að vera saman til þess að geta áfrain unnið sameiginlega að sögunni. Það mæltist vel fyrir, að við skyldum tveir vera að skrifa saman eina sögu þar eð „kolIektivar“ aðgerðir eru kommúnistum mjög að skapi og þótti þetta einmitt sýna, að við værum góðir kom- múnistar. Við fengum því að vera saman. Tók nú við 6 vikna hernaðarþjálfun, en síð- an vorum við settir til gæzlu- starfa við mörk Austur- og Vestur-Berlínar. Vorum við staðsettir þannig, að tvær varð stöðvar voru á milli okkar. En ALÞYBULÖGREGLAN ER EiNNIG ÓTRYGG ar á jóladag í fyrra, þ. e. 25. desember 1961. Flóttamaður- inn er ungur, aðeins um tví- tugt, myndarlegur piltur og einbeittur að sjá. Eg bið hann að segja okkur frá því hvernig flóttinn hafi gengið fyrir sig og hver aðdragandi hans hafi verið. 'Eg 'hafði lengi haft í hyggju að flýja, segir hinn ungi Au.- Þjóðverji. En þegar múrinn var reistur 13. ágúst 1961, virtist svo sem öllum útgöngudyrum væri lokað. Þá hugkvæmdist mér að ganga í alþýðulögregl- una, þar eð mikill skortur var á mönnum til gæzlustarfa við mörk Austur- og Vestur-Ber- línar. Vinur minn ætlaði að flýja með mér og i september 1961 gengum við báðir í lög- xegluna. En með því að vinir eða kunningjar fá yfirleitt al- jdrei að vera saman í hernum ‘eða alþýðulögreglunni var mik- il hætta á því, að við yrðum aðskildir og við gætum því ekki ég var fljótlega gerður að yf- irmanni minnar varðstöðvar, þar eð ég var álitinn sérstak- lega góður kommúnisti, og gat því komið því svo fyrir, að vlð lentum báðir saman. 24. desem ber sl. fannst okkur rétta tæki- færið komið til þess að flýja .og yið héldum að girðingunni, en er við áttum eftir 15 metra að jmörkunnm, kom liðsforingi á vettvang og tókum við það ráð að ganga til baka. Ekkl gerði liðsforinginn neinar at- hugasemdir. ,En dgginn éftir, hinn 25. desember, tókst okkur að komast yfir mörkin. Við spurðmn hinn unga au.- þýzka flóttamann, hvort hann teldi sig hafa gert rétt í því að flýja. Hann svaraði því hik- laust játandi og sagðist ekki hafa viljað búa lengur við ógn- arstjórn austur þýzkra komm- únista. Hinn flóttamaðurinn, er ,við ræddum við, er ungur sjómað- ur, aðeins rúmlega tvítugur. Flótti hans varð heimsfrægur, þar eð honum tókst að flýja með bát nær fullan af fólki. Við gefum liinum unga sjó- manni orðið : Eg hafði ákveðið að komast yfir bát og flýja á honum yfir Spreefljót yfir í V-Berlín. — Spumingin var aðeins sú, hvernig ég gæti komizt yfir bát eða réttara sagt, hvar ég gæti hitt nægilega marga úr áhöfn báts, sem taka vildu þátt í því að flýja. í fyrstu hugðist ég aðeins komast yfir lítinn bát og gerði margar athuganir í sambandi við það. En er það tókst ekki, beindist athygli mín að stórri skcmmtiferða- snekkju. Þetta var í júní sl. Eg fór um borð ásamt vini mínum og við komumst fljót- lega að raun um, að mat- sveinninn var reiðubúinn til þess að flýja með ókkur. Við tókum nú það ráð, að bjóða skipstjóranum og vélstjóran- um til drykkju. Var drukkið fram eftir nóttu, þar til þeir félagar-voru orðnir vel drukkn ir og sofnuðu báðir. Voru þeir þá Iokaðir inni í klefum sínum. Þá var eftir að fá ein- hvern til þess að stjórna vélum skipsins. Vlð höfðum samband við aðstoðarvélstjórann og hann var reiðubúinn til þess að flýja. Þetta var aðfaranótt 8. júní. Voru nú allir vmir og kunningjar okkar, er hug höfðu Alþýðublaðið á því að flýja, settir um borð I snatri og síðan var haldið af stað. Rcyndust þá vera 14 flótlamenn um borð auk þeirra tveggja, sem voru fangar í klefum. sinum. Er við höfðum slglt um stund varð á vegi okk ar eftirlitsbátur og sögðum við varðmönnunum á honum, að við værum á leið niður fljót- ið. Fengum við þá að sigla áfram. En nokkru síðar ger- breyttum við stefnu og héldum í áttina að V-Berlín á fullum hraða. Var'ðbáturinn varð þess þegar var, að við breyttum stefnu og hóf þegar skothríð á okkur. Urðum vlð að fara úr brúnni og stýra skiplnn með vélunum einum. Þutu kúlurn- ar sitt hvorum megin við vélamanninn og við óttuðumst það, að hann léti lífið þá og þegar. En okkur tókst að sleppa og komast heilu og höldnu til V.-Berlínar. Skipstjórinn og vél stjórinn kusu að hverfa aftur heim til Au.-Berlínar. Fréttum við það síðar, að skipstjórinn hefði verið fangelsaður við komu sína til Au.-Berlínar, en verlð sleppt úr haldi eftir fá- eina daga, og þá verið fluttur frá Au.-Berlín til annarrar borgar í Au.-Þýzkalandi og átt að dveljast þar í nokkra mán- uði fjarri fjölskyldu sinni. — Slíka hegningu fékk hann fyrir það, að láta flóttamennina leika á sig. Bj. G. NÝLEGA kom fjöldi blaða- manna og iðjuhölda saman í Aa- chen til að minnast þess, að hund- rað ár eru liðin frá því að Júlíus Reuter stofnaði fréttaþjónustu sína. Þeir fengu að sjá, er tveim þús- undum bréfdúfna var sleppt laus- um í hinni fornfrægu borg, Aa- chen og þeir horfðu með spenn- ingi á, er þær fjarlægðust hratt yfir húsþökunum. Þessi fréttaflutningstæki höfðu verið notuð af Júlíusi Reuter með góðum árangri, þegar hann stofnaði Fréttastofu Reuters. —■ Hann kom upp fullkomnu frétta- kerfi, þar sem bréfdúfurnar voru eina samgöngutækið, enda voru þær á þeim tíma fljótari en nokk- urt farartæki, sem í notkun var. Telstar og önnur fjarskipta- kerfi hafa vissulega verið mikil endurbót frá hinum gömlu tím- um bréfdúfnanna, þó er það víst, að á sínum tíma voru bréfdúf- urnar eins mikil nýjung og end- urbót eins og gervihnettirnir eru núna. Reuter keypti á sínum tíma 45 bréfdúfur af ölbruggara í Aa- chen, til þess að leysa úr hinni lélegu fréttaþjónustu sem var á milli borga Evrópu. Með lijálp hinna hraðfleygu sendiboða sinna gat Reuter, sem var bankahöldur og blaðamaður, fengið fréttir af fjármála og verð bréfaviðskiptum frá öllum helztu borgum Evrópu og sparað sér á þann hátt bæði tíma og út- gjöld. Þessi nýja fréttaöflunaraðferð átti eftir að veita Reuter heims- frægð og verða fyrsti vísirinn að hinni frægu alþjóðafréttastofu, sem við hann er kennd. Brátt varð stofnun sá, sem hann hafði stofnað til þess að dreifa fréttum frá ritsímanum alþekkt. Hann stofnaði nokkru slðar hina frægu fréttastofu „Reuters Tele- 'graph Office.” I fyrstu voru frétt- ir hans eingöngu miðaðar við tiff- indi og dreifingu á einkaskeytum fjármálamanna. í dag eru fréttir þær, sem fréttastofur Reuters safna og dreifa ekki lengur ein- skorðaðar við fjármálatíðindi. — Samt sem áður meðal Fleet Street í London varð heimsfræg, féU Pont Strasse í Aaehcn í gleymsk- unnar dá. Alveg til þessa dags hefur fréttastofa Reuters veriff trú hin- um gömlu grundvallarreglum sín- um um hraða, nákvæmni og hlut- leysi, sem hefur gefið fréttastof- unni hina miklu frægff og aðdá- un, sem hún hefur alla tíff notiff, siðan hún var stofnuð fyxir 100 árum síðan. 4 16. -nóv. 1962 - ALÞÝÐUBLAÐiÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.