Alþýðublaðið - 16.11.1962, Blaðsíða 2
KLiRYÐIOBIWÐ m
dltst]6rar: Gísli J. Astþórsson (áb) og Benedlkt Gröndal,—ABstoBarrltstJön
fijörgvin Guðmuudsson. — Fréttaritstjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. — Slmar:
11900 — 14 902 — 14 903. A uglýsingasimi: 14 906 — Aðsetur: AlþýöuhúslC.
- Prentsmiöja A’þýðublaðsins, Hverfisgötu 8-10 — Áskriftargjald gr. 65.00
6 mánuði. 1 lausasöiu kr. 4.00 eint. Útgefandi: Aiþýðufiokkurina — Fram-
kvæmdastjóri: Asgeir Jóhannesson
BOÐAR STRÍÐ GEGN
DÓMSTÓL UNUM
HANNIBAL VALDIMARSSON forseti Alþýðu
sambands íslands lýsir því yfir í Þjóðviljanum í
gær, að hann muni hafa dóm Félagsdóms að engu
og láta „lýðræðislegan meirihluta“ Alþýðusam-
Íoandsþings skera úr um það, hvort taka beri Lands-
samband íslenzkra verzlunarmanna inn í ASÍ eða
ekki. Hannibal gengur hér feti framar en aðrir
ficommúnistar, er hann lýsir því beinlínis yfir, að
ftxann muni ekki beygja sig fyrir dómstólunum.
Moskvukommúnistar hafa haft vit á því lengi und
■ anfarið að skáka ekki dómstólum landsins en nú
þykist Hannibal Valdimarsson þess umkominn að
vefengja rétt dómstólanna til þess að kveða upp
| dóma. Það verður því vart greint lengur, að Hanni-
foal hafi um langt skeið átt heima í lýðræðisflokki
j áður en hann gekk kommúnistum á hönd.
Sannleikurinn er sá, að það þýðir ekkert fyrir
Hannibal að velta því fyrir sér, bvort næsta þing
'' Alþýðusambandsins eigi að sætta sig við dóm Fé-
lagsdóms eða þá að láta atkvæðagreiðslu á þingi
1 ASÍ skera úr um upptöku LÍV. Félagsdómur hef-
ur þegar fellt sinn dóm og samkvæmt honum var
synjun síðasta þings ASÍ á upptöku LÍV ólögmæt.
Allt mál LÍV fyrir Félagsdómi var rekið á þeim
’ grundvelli, að síðasta þing ASÍ hefði ekki haft
Sieimild til þess að synja upptöku LÍV.
u. Það er álit lögfræðinga, að eftir að Félagsdóm-
tir hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að samþykkt
síðasta þings ASÍ um að útiloka LÍV frá ASÍ, hafi
j verið ólögmæt, þá sé LÍV í rauninni þegar orðið
1 aðili að ASÍ og það þurfi ekki að bera neina inn-
iökubeiðni' upp á ny á næsta þingi. Hins vegar geta.
i kommúnistar að sjálfsögðu reynt að fella kjörbréf
fulltrúa LÍV á sama ’hátt og þeir geta reynt að vísa
frá kjörbréfum allra annarra félaga, er lýðræðis-
einnar ráða. En þeir geta ekki neitað því að LÍV
eigi að vera í ASÍ.
S Eins og stendur hafa fulltrúar LÍV því jafn mik-
1 ínn rétt til setu á næsta þingi ASÍ eins og t. d. full-
trúar Dagsbrúnar. Ef kommúnistar hyggjast hindra
; fúlltrúa 'LÍV í því að greiða atkvæði á þinginu, er
; þar um hreint ofbeldi að ræða. Og ef fulltrúar LÍV
: fá ékki að taka þátt í störfum næsta þings ASÍ eins
i og .fulltrúar annarra aðildarfélaga ASÍ er unnt að
j -da^ma allar gerðir þingsins og þár með kjör stjórn
1 orinnar ólöglegt. Kommúnistar verða því að velja
: um það, hvort þeir ivilja fara að lögum eða gera sam
! tök verkalýðsins að skrípastofnun.
I
r— ....—IIIIHII.I IIIIIH !■! IWMIIWIIHIITT II I Jl
Auglýsingasíminn er 14906
—r—------------------------------------
2 16. nóv. 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Haustsýning heimilistækja
í sýningarskálanum Kirkjustræti.
SYND ERU
Westhinghouse, Kithen Aid, Grepa, Creda
Levin, Vaskebjörn, Colston og Ballerup-
heimilistæki.
Sýningin er opin daglega kl. 14—22.
Véladeild
HANNES
Á HORNINU
★ Hitaveitán er mikið heil
brigðismál.
★ Breiðist út um alla
Reykjavík.
★ Bréf frá póstmeistara.
& Um frímerkjasölu o. fl.
LÆKNIR HELDUR ÞVÍ FRAM
að hitaveitan hafi dregið nijög úr
kvefi í Reykjavík, að minnsta kosti
verði ekki annað ráðið þegar borin
eru saman kveftilfelli áður en
hitaveitan kom og nú. Þetta eru
merkileg tíðindi og sýnir enn hvað
hitaveitan er mikið heilbrigðismál
en ekki aðeins lausn á upphitun
húsa. Hitaveitan breiðist smátt og
smátt út um alla Reykjavík og eiu
mitt nú er verið að setja hana inn
I fjölda mörg hús í hinum nýju
hverfum.
ÞEGAR FVRSTA STIGI hita-
veitunnar var lokið, sagði einhver
af forystumönnum framkvæmd-
anna, að aðalvandamálið, sem hún
færði fólki, yrði ekki það að fá
nægilegn hita heldur hitt að kunna
að tempra hann, það er, að kunna
að skrúfa fyrir. Ef menn kynnu
það ekki þá mundi varminn frá
henni gera menn smátt og smátt
að aukvisum. Ég held að enn hafi
hún ekki dregið(þrek úr fólki Hún
hefur reynst okkur vel í alla staði
— og orðið okkur til heilsubótar
eins og lækirinn heldur fram.
MATTHÍAS GUÐMUNDSSON
póstmeistari skrifar mér eftirfar-
andi: „Vegna bendingar um frí-
jmerkjasölu o.fl., sem kom fram
í dálki þínum þann 10. nóv. sl. vil
ég gefa eftirfarandi upplýsingar-
1. Frímerki eru seld á um 40 stöð
um í borginni, 10 af þeim hafa svo-
kölluð kvöldsöluleyfi, þ.e. opið til
kl. 23.30. 2. Frímerkjasölur, sem
hafa viðurkenningu póst- og síma
málastjórnarinnar fá greidd ó<
makslaun, 4% og er það sam-
kvæmt lögum. 3. Varðandi það at«
riði, að póstkassar séu við frí-
merkjasölur eða nálægt þeim, má
geta þess, að reynt hefir verið a3
hafa hliðsjón af þessu, en það fer
ekki alltaf saman. Póstkassarnir
eru mun fleiri én frímerkjasölum
ar, eða um 60 talsins. Þeir eru los
aðir þrisvar á dag og eru m.a.
staðsettir eftir dreifingu íbúðar-
húsa og eftir því hve mikið póst
magn berst að á hverjum stað.
1
FRÍMERKJASALAN í borginni
er stórt þjónustuatriði við íbúana,
sem reynt hefur verið að ráða fram
úr eftir föngum. Því starfi verður
áfram haldið, eftir því sem ástæður
leyfa. Æskilegt hefði verið að hægt
væri að dreifa frímerkjasjálfssöl
um um bæinn, en á því eru litlir
möguleikar eins og er, vegna mynt
arinnar, en það mál er þó í athugun
TILLÖGUR BORGARBÚA um
endurbætur á einu eða öðru á
framkvæmd póstmála höfuðstað-
arins, eru ekki aðeins eðlilegar^
heldur engu að síður nauðsynlegar
Eftir því sem samstarf borgaranna
verður nánara við póstmannastétt
ina, þess árangursríkari verður
þjónustan, sem hún lætur í té“,