Alþýðublaðið - 21.11.1962, Qupperneq 5
Framh. af 1. síða
lð. Var hún samþykkt með 180 atkv
móti 12. Fór síðan fram atkvæða-
greiðsla um tillögu meiri- og minni
hluta kjörbréfanefndar. Var til-
laga meirihlutans samþykkt með
187 atkvæðum gegn 107.
Þá tók Óskar Hallgrímsson til
máls utan dagskrár. Sagði hann
að nú hefðu verið afgreidd mál
allra félaga, sem ágreiningur var
um utan LÍV. Þegar kjörbréf LÍV
bárust í gærmorgun vildi ég að
kjörbréfanefnd fjallaði um þau,
en því var synjað, sagði Óskar. A
fundi í morgun ítrekaði ég þessa
ósk, en henni var ekki sinnt. Ég
legg því fram tillögu um að 28.
þing ASÍ samþykki að taka þegar
til afgrciðslu kjörbréf fulltrúa LÍV
Þá tók Hannibal Valdimarsson til
máls og þóttist hafa verið blekkt
ur af Óskari, þar sem hann hefði
þarna laumað inn nýju máli og til
lögu. Kvaðst hann ekki kunna við
þessar aðfarir. Hann kvað af-
•greiðslu mála frá kjörbréfanefnd
vera lokið, og þá væri nætjta mál
kosning þingforseta samkvæmt
þingsköpunum. Varpaði hann fram
þeirri spurningu hvort Óskar vildi
frávik frá þingsköpum.
Óskar Hallgrímsson tók til máls
að nýju. Kvaðst hann harma við-
brögð Hannibals. Hann sagði þetta
ekki vera nýtt dagskrármál. Kjör
bréfum fulltrúa LÍV hefði verið
jpkjlað, en meii*?hluti kjörbréfa-
nefndar hefði ekki fengizt til aö
taka þau til meðferðar.
Hannibal vitnaði því næst í 4.
grein þingskapa, sagðist telja
hæpið að víkja frá henni. En skv.
17. grein gætu 6 fulltrúar gert til
lögu um dagskrárbreytingu.
Kom nú fram tiliaga frá Jóni
.Sigurðssyni og fleirum þar sem
óskað var nafnakalls um tillögu
Óskars.
Hannibal 'tók til máls á ný og
sagði að inntökubeiðni yrði að
liggja fyrir áður en hægt væri að
afgreiða kjörbréf. Hafði hann
þau orð um, að sér fyndist þetta
„hálfgerð afturfótafæðing.“
Pétur Sigurðsson tók til máls
pg sagði, að inntökubeiðni LÍV
hefði verið rædd á síðasta þingi
ASÍ og þá verið frestað um sinn.
Óþarfi væri að endurtaka dóms-
orð Félagsdóms í þessu máli. LÍV
ætti þegar aðild að ASÍ eftir að
kjörbréf fulltrúa þess hefðu ver-
ið rædd.
Hannibal kvað ræðu Péturs
misnotkun á leyfi til að taka til
máls, því hann liefði rætt málin
efnislega. Þetta væri of mikið mál
til að ræða það undir umræðum
um dagskrá.
Björn Jónsson benti á að engin
inntökubeiðni lægi fyrir frá LÍV,
Las hann síðan tillögu þess efnis,
að dagskrártillögu yrði vísað frá
þar eð inntökubeiðni lægi ekki
fyrir frá LÍV.
Tillaga kom fram frá Jóni Sig-
urðssyni og fimm öðrum fulltrú-
um um að fjallað yrði um kjör-
bréf LÍV fulltrúanna.
Var frávísunartillagan við til-
lögu Óskars fyrst borin upp og
_var nafnakall viðhaft. 150 studdu
frávísunartillöguna en 165 greiddu
atkvæði gegn henni. Hlutlausir
voru fjórtán, en þrír voru fjar-
staddir.
Öskar Hallgrímsson lýsti því
yfir, þegar hann í framsögu fyrir
minnihluta kjörnefndar, að full-
trúar prentarafélagsins hefðu
ekki séð sér fært að sitja þingið,
en þegar nafnakalli var í þann
veginn að Ijúka, komu fulltrúar
prentarafélagsins og greiddu at-
kvæði gegn frávísunartillögunni.
★ HAVANA: Kúbanska blaðið „EI
Mundo“ hermir á þriðjudag, að
bandarísk flugvél hafi varpað ellefu
sprengjuni á kúbanskt vöruflutn-
ingaskip á venjulegri siglingaleið
suðvestur af Bermuda. Ekki var
sagt um hvaða flugvél hér hafi ver
ið að ræða. Píokkrar sprengjur eiga
að hafa fallið 15 m frá skipinu.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
segir, að bandarísk flugvél hafi
ekki gert sprengjuárás þessa.
Ufaerfðir
ALÞÝÐUKÓRINN heldur song-
skemmtun í kirkju óháða safnaðar
Ins fyrir safnaðarfólkið og gesti
þess í kvöld kl. 9.
Aðgangur ókeypis, en ef einhver
óskaði að styrkja stólasjóð kirkj-
unnar er því veitt móttaka í and-
dyri kirkjunnar.
aflasQlur
ERLENDIS
ÞRIR íslenzkir togarar seldu
afla sinn erlendis í gær. Einn í
Þýzkalandi og tveir í Englandi. —
Fylkir seldi í Cuxhaven 131,6 lest-
ir fyrir 119,711 mörk. Hafliði seldi
í Grímsby 81 lest fyrir 4.846 stpd.
og Narfi seldi hluta af afla sín
um í Grímsby 96 lestir fyrir 7.091
stpd. Afgang aflans selur hann í
dag.
sauðfjár
Á FUNÐI í Hinu íslenzka nátt-
úrufræðifélagi í 1. kennslustofu
Háskólans mánudaginn 26. nóv. kl.
20,30 mun Stefán Aðalsteinsson
búfjárfræðingur flytja erindi, er
hann nefnir Litarerfðir sauðfjár,
og sýna skuggamyndir til skýr-
ingar.
Undanfarin sex ár hefur Stefán
Aðalsteinsson unnið að rannsókn
þessa efnis á vegum Búnaðardeild
ar Atvinnudeildar Háskólans. Þær
rannsóknir hafa leitt í ljós ákveð-
in lögmál eða reglur fyrir því, -
hvernig litur sauðfjár erfist frá
foreldrum til afkomenda. Þessar
reglur hafa sauðfjárbændur þegar
notað sér með góðum árangri til
að fá verðmætari gærur af fé
sínu. Erindi Stefáns mun fjalla um
þessar rannsóknir og árangur
þeirra.
NÆR50
ÞÚSUND
ÞESSI unga blómarós er
Edda Magnúsdóttir, for-
maður Keðjunnar, skólafé-
lags Kvennaskólans í Rvík.
Hún gekkst fyrir því, að
Keðjan hélt bögglauppboð
fyrir heigina til ágóða fyrir
Alsírsöfnunina, og komu
inn 2350 kr. Myndin var
teltin, þegar Edda var að af-
henda Alþýðublaðinu pen-
ingakassann.
Söfnunin heldur áfram
af fullum krafti og er ekk-
ert lát á. Þannig bárust blað
inu 16.-19. nóv. kr. 49.361,00
m. a. sunnan af Vatnsleysu-
strönd og einnig fé, er kom-
Framh. á 7. síðu
Verzlunin
Framhald af 16. túðu.
til Mjólkursamsölunnar. Einnig
hefði Borgarráði og Neytendasam-
tökunum verið skrifað og þessir
aðilar beðnir að sýna málinu vel
vilja.
Þelta hefur mælzt mjög vel fyr
ir, sagði Svavar. Okkar markmið
er að veita viðskiptavinum okkar
sem bezta þjónustu, og þetta er
einmitt eina leiðin til þess. Undan
farna fjóra mánuði höfum við selt
mjólk frá því kl. 8 á morgnana og
fram undir miðnætti eða á þeim
tíma sem fólk er helzt á ferli. Það
segir sig sjálft að þetta er neyt
endum mjög til þæginda, enda hef
ur mjólkursalan hjá okkur sýnt
Ás ... .
að fólk var fljótt að komast upp á
lagið með að notfæra sér þetta.
— Sumir kynnu að halda að erfið
leikar væru á að fá starfsfólk til
slíkrar kvöldvinnu, en það er alls
ekki tilfellið. Það er mikið auð-
veldara að fá fólk í svona vinnu,
heldur en að fá fólk til að vinna að
að kvöldsölumálum matvöruverzl
afgreiðslustörfum allan daginn.
— Við höfum mikinn hug á því,
ana verði komið i fast horf. Það
eru vissir aðilar, sem vinna gegn
þessu, og eru þar fyrst þeir sem
eiga hina eiginlegu söluturna, svo
og matvörukaupmenn, sem ekki
vilja hafa opið eftir venjulegan
tíma. Lagaákvæði um þessi mál
munu vera orðin gömul og ef fav
ið væri eftir þeim mætti víst harla
lítið selja á sunnudögum. Okkur
finnst þetta vera sjálfsögð þjón-
usta við neytendur, að þeir skuli
geta keypt ýmsar nauðsynjar eftir
venjulegan lokunartima og sé ég
ekki neina ástæðu til að amast vití
slíkri þjónustuaukningu.
Síldarflutningat
Framhald af 16. síðu.
með smáslatta og rifnar nætur, ann
að þeirra var Ólafur Magnússong,
sem landaði um 100 tunnurn.
Allir Akranesbátar fóru út aft-
ur í gær og svo var einnig ura
bátana sem lönduðu í Reykjavík*
Batnandi veður var á miðunum.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 21. nóv. 1962 §