Alþýðublaðið - 23.12.1962, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 23.12.1962, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR BLAÐ I. 43. árg. — Sunnudagur 23. desember 1962 — 285. tbl. S U N N A N stórviðri gekk yfir vesturhluta landsins í fyrrinótt. Varð veðurhæðfn mest á vestan- verðu Norðurlandi, mældist hæst á Kjörvogi á Ströndum, 11 vind- stig eða ofsaveður, en sunnan- lands'mátti heita, að það yrði jafn hvasst, t. d. komst jafnvel í mestu byljunum upp í 12 vindstig í Rcykjavík. Islendingur blaðafull- trúi Kúrda ERLENDUR Haraldsson sem nú dvelst austur á Ind- landi, en var í haust á ferða- lagi um nálægari Austur- lönd og dvaldist þá um skeið með Kúrdum, sem eiga í sí- felldum hardögum fyrir frelsi sínu við heri Kassims í írak, hefur nú hlotið viður- kenningu sem opinber blaða fulitrúi kúrdönsku frelsis- hreyfingarinnar. Hefur hann haldið almenna blaðamanna fundi með tíðindamönnum blaða, útvarpsstöðva og ann- arra frcttastofnana í Madr- as á Indlandi og skýrt þar frá málum Kúrda. Eftir dvölina með Kúrd- um hefur Erlendur skrifað greinar í Alþýðublaðið um frelsisbaráttu þeirra. En þeir heyja nú stríð fyrir tilvcru sinni, þar eð stjórn Kassims í írak virðist hyggja á að ganga algerlega milli bols og höfuðs á þeim. Kúrdar eru vinafáir, og láta stórveldin framferði Kass- ims afskiptalaust. Kassim heldur uppi gereyðingarárás um með flugvélum á Kúrd- önsk þorp, og í nýlegu bréfi frá Erlendi segir, að Kúrdar skýri svo frá, að Krústjov hafi nýlega gefið Kassim' 10 TU-18 sprengjuflugvélar. Veðri þessu fylgdi mikil rigning, og mældist úrkoman mest í fyrri- nótt á Stykkishólmi. Minni háttar skaðar urðu af veðri þessu. ★ Drangsnesi í gær: Hér gekk yfir stórvlðri í nótt. Bátar voru allir á sjó í gær, og gátu þeir ekki tekið land hér á^Drangsnesi — fóru því til Kaldrananess og lentu þar, en þar er var í sunnan átt. Ekki urðu skaðar á mönnum eða skipum, aðrir en þeir, að ýmsir bátar misstu veiðarfæri. Frá Hólmavík eru svipaðar fréttir sagðar. — G. S. ★ ísafirði í gær: Sunnan stór- viðrið í nótt olli engum verulegum skemmdum. Engir bátar hafa ver- ið á sjó vegna stöðugra ógæfta. Annan daginn hefur verið fann- koma og hinn rigning. Vegir eru ófærir eða illfærir vegna fanna- laga og skriðufalla. — BS ★ Vestmannaeyjum í gær: Hér hefur verið versta veður undan- farna daga. Ekki er vitað um að neitt tjón hafi orðið á landi eða sjó. Síldarbátarnir héðan eru tepptir í höfnum syðra, einn brauzt þó hingað í nótt þrátt fyr- ir vonzkuveður. Skipstjórinn á Herjólfi hefur látið hafa eftir sér að þetta sé versta veður sem hann muni eftir á sjó. — E.S. VMHMMWMiMHMHMHMMV Kópavogskirlija. Ljósmynd: Gisli Gestseon. 15 á vakt A UNDANFÖRNUM árum hafa jólin farið mjög friðsamlcga fram, og yfirleitt verið lítið að gera hjá lögregluliði borgarinnar. Næstu jólanótt verða um 15 lögreglu- menn á vakt. Nokkrir á eftirlits- ferð um borgina, en aðrir hafa að- setur á lögreglustöðinni. Reynt verður að skipta vöktum þannig, að þeir sem eiga að vinna, fái frí, annað hvort á aðfangadag eða jóladag. Hjá rannsóknarlög- reglunni verða menn á vakt, og málum þannig hagað, að alltaf, verði hægt að ná í fleiri til starfa ef eitthvað alvarlegt kemur upp á teninginn. SAMKVÆMT þeim upplýsing-, um, sem Alþýðublaðið hefur aflað sér, má gcra ráð fyrir, að allt að 900—1000 íslenzkir farmenn og fiskimenn verði að heiman um jólin. Blaðið birti í fyrradag lista yfir flesta togarana og hvar þeir verða staddir um jólin. Gera má ráð fyr- ir að allt að fimmtán togarar verði á veiðtnn eða á hafi um jól- in og sé reiknað með þrjátíu manna áhöfn á hverju skipi eru þarna 450 menn. Blaðið kynnti sér í gær hvar farskipin, skip skipaútgerðarinn-' ar og landhelgisgæzlunnar verða um jólin. Samkvæmt þeirri könn- un verða 482 sjómenn á 20 kaup- skipum og varðskipum að heiman yfir hátíðina. Samkvæmt þessum tölum verða þvi 900 — 1000 íslenzkir sjómenn að heiman um jólin, annaðhvort i erlendum höfnum eða á siglingu til eða frá Iandinu. Hér kemur listinn yfir kaup- skipin og varðskipin: Eimskipafélag íslands: Brúarfoss verður á leið til Reykja- víkur frá JBandaríkjunum, á hon- um er 30 manna áhöfn. Dettifoss verður sennilega í Bremerhaven, á honum eru 33 menn. Fjallfoss verður í Reykjavík. Goðafoss mun sennilega verða í Riga, á Goða- fossi er 31 maður. Gullfoss verður í Reykjavík en fer á 2. jóladag. Lagarfoss verður á leið til íslands, á honum er 33 manna áhöfn. Reykjafoss verður í Reykjavík. Selfoss verður í Dublin. 30 manna áhöfn er á Selfossi. Tungufoss verður sennilega í Hull, á honum er 25 manna áhöfn. Tröllafoss fer frá Hull á aðfangadag. Skipshöfn- in á honum telur 30 mena Skipadeild SÍS: Hvassafell verður í Rússlandi, á því eru 24 menn. Arnarfell verð- ur á Austfjörðum, á því er 23 manna áhöfn. Jökulfell verður á leið til Antwerpen, áliöfn þess er 22 menn. Dísarfell verður á heim- leið frá Noregi, 19 manna áhöfn er á Dísarfelli. Litla Fell verður á heimleið frá Þýzkalandi, á Litla- felli eru 16 menn. Helgafell verð- ur í Leith, á því er 23 manna á- höfn. Hamrafell og Stapafell verða i Reykjavík. Framhald á 5. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.