Alþýðublaðið - 23.12.1962, Side 3
Maður saknar
alltaf einhvers
al Isstaðar
ÞÓRUNN „litla” er ekki lítil
lengnr, — og þó! Þórunn Jó-
hannsdóttir er óvenju falleg-
ung stúlka með barnsleg augu.
Ef til vill var það líka rauða káp-
an, sem gerði hana svo barnslega.
Það var kuldabál daginn þann,
sem við héldum á fund hennar
inn í Kringlumýri. Hún hafði
lieldur kosið að búa hjá ömmu
sinni í lágreistu húsi í mýrinni
cn að njóta aðkeypts munaðar á
hótel Sögu. En lágreista húsið í
Kringlumýrinni var ekki svo
auðfundið, því að D-gatan, sem
það stóð við hefur verið lögð
niður og leigubílstjórinn- keyrði
í kross um mýrarnar algjörlega
áttavilltur. Loks eftir langa
mæðu fundum við lítið hús, sem
Iiggur eitt sér úti í miðjum
mýrunum, sem skilja að stóru
nýbyggingarnar þarna innfrá.
Húsið ömmunnar er eins og nið-
urlútt og feimið við allar þess-
ar nýju byggingar, og þar var
hvergi Ijós í glugga. En dymar
opnuðust, og út kom ung og fal-
leg stúlka, sem liljóp yfir snjó-
inn á hvítum skóm og rauðri
kápu, — rétt eins og það væri
engin hríð í Reykjavík. Á hæla
henni gekk greiðlega ungur mað-
ur, dökkur brún og brá, eigin-
maður hennar, hinn frægi Asj-
kenansí, sem er með frægustu
píanóleikurum heims, — að
minnsta kosti meðal hinna yngri.
Þetta er Þómnn Jóhannsdótt-
ir, — hún, sem einu sinni var
kölluð undrabarn og sem
hneigði sig svo fallega og spil-
aði svo undurvel, að því er fólk
segir. Hún var nú á leið niður í
ríkisútvarp til að hlusta á upp-
tökuna af píanóleik eiginmanns-
ins í Háskólabíóinu.
— Hvernig er að vera ís-
lenzk húsmóðir í Rússlandi, Þór-
unn?
— Ég hef raunar Iitla reynslu
af því. Ég hef vinnukonu, sem
annast flest heimilisstörf og öll
matarinnkaup. Ég hef ekki held-
ur verið nema þrjú ár í Rúss-
landi. Fyrsta árið var ég stúd-
ent og bjó á stúdentagarði, en
það er allt annað en að búa sjálf-
stætt í Moskvuborg. Tvö síðustu
árin hef ég svo verið gift hljóm
listarmanni, og við höfum alltaf
verið í ferðalögum, ef ekki utan-
lands þá um Sovétríkin. Við lif-
um öllu fremur konsertlífi en
venjulegu heimilislifi.
— Ertu hætt að spöa?
— Já, að minnsta kosti í bili.
— Saknar þú einskis frá því?
— Jú, að vísu, og þó, Ég
hlusta á hann, og við förum
saman á alla beztu tónleika, sem
gefast. Kannski er ég meira inni
I tónlistinni en nokkm sinni
fyrr. Drengurinn er líka svo lit-
ill ennþá, og ég er ákveðin f því
að fara ekki að vinna úti né spila
meira, fyrr en hann er orðinn
svolítið stærri. Hann er bara
eins og hálfs árs.
— Hvað heitir sonur ykkar?
— Hann heitir eins og pabb-
inn, Vladimir, — íslendingar
kalla hann nú Valdimar.
— Ætlarðu að eiga fleiri böm?
— Já, ég hefði nú helzt viljað
eiga þrjú strax!
— Er ekki erfitt að fá hús-
næði í Moskvu?
— Jú, það er erfitt, en við
fengum strax tveggja herbergja
íbúð niður við ána. Það er ynd-
islegur staður. Seinna ætlum við
að kaupa okkur hús.
— Verður ekki erfitt að fá
það keypt?
— Nei, við gengum f bygg-
ingafélag, — en fýrst ætlum við
að kaupa okkur hús úti í sveit.
— Saknarðu einskis héðan aff
heiman í Rússlandi?
— Ja, jú. Maður saknar alltaf
einhvers, alls staffar. Ég sakna
margs héðan, en ef ég væri ann-
ars staðar mundi ég sakna margs
frá Moskvu. Þannig er það, aff
hver staður hefur sína kosti og
sína galla. Einu sinni hefði mér
ef til vill þótt óhugsandi að fara
héðan fyrir fullt og allt, en nú
er ég búin að vera í London, í
Moskvu og í Bandaríkjunum.
Mér féll margt vel þar, — en
einnig margt vel í Moskvu. Ef
að ég aðeins er meff nánustu
fjölskyldu minni, — núna mann-
inum mínum og barninu, þá er
ég heima hjá mér, hvar sem þaff
er. Þaff skiptir raunar ekki svo
miklu máli, hvar við cigum heim-
ili, því að við verðum alltaf aff
ferðast, og eins og Rússland er
á ýmsan hátt lokað land,. þá er
ísland það líka. Ég mundi Iík-
Iega ekki vilja setjast aff í Rúss-
landi, ef að ég vissi, að ég kæm
ist þaðan aldrei aftur, en ég
vildi ekki heldur setjast aff hér,
ef að ég vissi, að ég yrði að vera
hér um kyrrt til æviloka.
— Sérðu eftir því, að þú skyld-
ir ekki fara fyrr til Rússlands
og læra þar?
— Já, svo sannarlega.
— Er tónlistarkennslan ófull-
komnari í London?
— í London eru margir ágæt-
ir tónlistarmenn sem standa fram
arlega t. d. I klarinettlcik og
flautuleik, — en Rússar standa
þeim miklu framar í píanóleik,
fiðluleik og á fleirum sviðum
tónlistarinnar.
— En, hvað um þjóðskipulag-
ið?
FLÚÐI AF
HÓLMI
' EKIÐ var á mann í fyrri-
nótt á mótum Hringbrautar
og Njarðargötu. Maður þessi,
Pétur Ástvaldur Thorsteins-
son til heimilis að Gnoffa-
vog 22 slasaðist mjög alvar-
lega. Hann hlaut m. a. slæmt
fótbrot og áverka á höfuff.
Þaff var Volkswagen-bifreið,
sem ók á Pétur, en ökumað-
ur hennar flúði af staðnum.
Var hans leitað í fyrrinótt,
en hann gaf sig fram á lög-
reglustöðinni sömu nótt kl.
4.30 effa þrem tímum eftir
að stysið varð. Kvaðst hann
ekki hafa séff Pétur fyrr en
hann var kominn út á miðja
götuna, og ekki hefði dngað
að hemla. Sagði hann aff Pét-
ur hefði kastast á framrúðu
bílsins sem brotnaffi. Viff
þetta sagðist ökumaðurinn
hafa orffiff ofsalega hræddur
og ekið í burtu.
Píanótónleikar
SÍÐUSTU tónleikar snUlings-
ins Vladimirs Asjkenazis hér að
þessu sinni vortí í Háskólabíói á
föstudagskvöld og voru tvö af
helztu virtúósastykkjum píanó-
bókmenntanna á efnisskránni, hin-
ar symfónisku etýður Schumanns
og Mefistovalsinn eftir Liszt. —
Hafi nokkur verið í vafa eftir fyrri
tónleikana, þá hlaut hann að'Iáta
sannfærast um snilli hans á þess-
um hljómleikum. Feiknakraftur,
óbilandi öryggi og nærfærni í
túlkun og teknik, sem aldrei
bregzt, eru höfuðeinkenni þessa
unga píanóleikara, og ég er illa
svikinn, ef hann á ekki eftir aff
vinna sér svipaðan sess og hinn
frægi og dálítið mýstíski Sviato-
slav Richter. Önnur verk á efnls-
skránni eftir Mozart, Ovchinno-
kov og Ravel voru og frábærlega
Ieikin. Vonandi kemur Asjkenazi
hér viff í hvert skipti, sem hann
fer í hljómleikaför til Ameríku,
og þá helzt í báffum leiðum. —
200 ÁR FRÁ FÆÐ-
INGU MAGNÚSAR
STEPHENSEN
200 ÁR eru liðin frá fæðingu
Magnúsar Stephensen, dómsstjóra,
27. desember næstkomandi.
Lögfræðingafélag íslands mun
af þessu tilefni halda fund í I.
kennslustofu Háskóla íslands kL
5,30 fimmtudaginn 27. desember.
Á fundinum mun. dr. Þórður Ey-
jólfsson, hæstaréttardómari flytja
erindi um Magnús Stephensen.
Sjúkrahúsið
Framhald af 16. síðu.
ið. Jóladagur frá hádegi fram
til klukkan 19,30. Annar jóla-
dagur, eins og venja er til á
sunnudögum.
SÓLHEIMAR:
Þar verður guðsþjónusta milli
klukkan 17 og 18 fyrir og eftir
þann tíma er heimsókn frjáls
fram til klukkan tíu á aðfanga-
dagskvöld. Jóladagur 16—16.30
og 18,30—20,30. Annar jóladag-
ur, þá verður heimsóknartími
eins og venja er til á sunnu-
dögum.
Ferðasagan
ÞJOÐVILJINN hefur ýms-
ar athugasemdir að gera við
innbrotið í herbergi utan-
ríkisráðherra, er hann sat
NATO-fundinn í París á dög
unum. Birtir blaðið meffal
annars vísu um ferff ráff-
herrans. í tilefni af
var þetta lagt inn á ritstjórn-
arskrifstofur Alþýffublaðsins
í gær:
Þjóffviljanum þykir kvöl,
að þjófarnir í Frans
náðu ekki í NATO-skjöl
í náttsal ráðherrans.
Hægara var á Hafnarslóð
að hirða orðabók,
þegar Mangi í miklu stéff
og makaði sinn krók.
Orðsendmg til
húsmæðra
— Það er auðvitað allt öðru-
vísi en í Englandi effa hér, en
maður venst öllu. Ef að við vær-
um í öðru landi værum við
kannski svo rík, að við gætum
veitt okkur allt, sem við þörfn-
umst effa viljum veita okkur, —
en í Rússlandi er enginn ríkur.
En við fáum allt, sem við þörfn-
umst. Af því að hann er tón-
Frh. á 5. síðu.
ÞÓRUNN og Asjkenansí.
Ingimundur Magnússon tók
myndina hér í Reykjavík.
Rafmagnsveita Reykjavíkur
vill beina þeirri ósk til raf-
magnsnotenda á orkusvæði
hennar, að þeir leitist við að
dreifa notkun sinni á lítið eitt
lengri tíma á aðfangadag en
aðra daga.
Búast má við miklu álagi á
bæjarkerfinu í Reykjavík og í
Kópavogskaupstað á tímabilinu
frá kl.16 —18 á aðfangadag ef
takast má að forða spennufalli
á götustrengjum, ef jólaeldun
er dreift á þrjá til fjóra tíma í
staffinn fyrir tvo
Hægt er að auðvelda mjög
rafmangnseldun almennt, et
einstakir notendur sjá sér fært
að nota afkastameiri suðutæki
svo sem bakarofna grill og
stærstu suðuhcllu eldavélarinn-
ar, áður en mesti álagstimi
hefst.
Rafmagnsveitan mun hafa
vakt í geymsluhúsi sínn við
Barónsstíg þennan dag tU kl.
22.00 til þess að aðstoða notend
ur, ef bUanir koma fyir. Siminn
er 24360.
v
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 23. des. 1962 3