Alþýðublaðið - 23.12.1962, Page 16
MVmWWWWWWWWWWWWWHWWWWWIWWWW
VONANDI eru flestar hús-
mæður búnar aH baka fyrir
jólin og eiga nú fulla kassa
af dýrindiskökum.
Þessi fallega frú var aS
ljúka við smákökubakstur-
inn, þegar við litum inn til
hennar rétt fyrir jólin. Hún
heitir Auður Eydal og við
óskum henni og öðrum hús-
mæðrum í landinu og raun-
ar landsmönmim öiluin
GLEÐILEGRA JÓLA
HMMMWMMWIMMMMWMMMMMWVWMiMWWWWWWW***
HINNA HEIMILISLAUSU?
A LLIR verða að eiga jól, og
einhvern dagamun verða menn að
finnfe á þessari miklu hátíð. Flest-
ir skapa sér dagamun sjálfir, en
hér í bæ er til stór hópur manna
og kvenna, heimilislaust fólk, sem
ekki getur eða hefur áhuga fyrir
að gera sér dagamun. Það er Bakk
us karlinn, sem hefur þessar ráf
andi sálir í sínum höndum.
Á undanförnum árum hefur
fengageymsla -lögreglunnar gegnt
|»ví hlutverki, að veita þessu fólki
húsaskjól á helgustu nótt ársins.
Stundiun hafa líknarfélög haldið
' cinhverjar samkomur á aðfanga-
dagr.völd, gefið þessum hóp að
; bori?. og einhver klæði á kropp-
inn. Þetta hefur gefist misjafn-
léga, en ávallt hefur það verið stór
hópur manna, sem hefur sótt þess
ar samkomur.
Á þessum jólum verða það aðal-
lega tvær stofnanir, sem gegna
því hlutverki að veita þessu fólki
eínhvern jólaglaðning. Hús Vernd
ar við Stýrimannastíginn verður
opið, og þar verður fólkinu gefið
að borða og þar fær það einnig
einhvern fatnað. Öll herbergi hjá
Vernd eru nú yfirfull, svo ekki
verður hægt að taka þar á móti
næturgestum, og munu gestirnir
fá gistingu í Síðumúla. Þá mun
Hjálpræðisherinn gera eitthvað
fyrir þá, sem þangað koma og mun
bærinn Iiafa þar einhverja hönd í
bagga.
Það mun vera ótrúlega stór hóp
ur manna o’g kvenna, sem er á
hreinum vergangi í hinni glæsilegu
nútímaborg, Reykjavík. Þessi hóp-
ut myndi hvergi eiga samastað ef
þessar ágætu stofnanir gerðu ekki
eitthvað fyrir þessa þegna þjóð
félagsins, sem hafa rambað inn á
brautir, sem gera þá ófæra um
að sjá fyrir sér sjálfum.
43. árg. — Sunnudagur 23. desember 1962 - 285. tbl.
JÓLAHALD Á
SJÚKRAHÚ
ÞVÍ MIÐUR eru þeir allmarg-
ir, sem eyða verða jólunum á
sjúkrahúsum veikinda vegna. Yf-
irvöld sjúkrahúsanna gera það sem
í þeirra valdi stendur til að gera
sjúklingunum jólin, sem ánægju-
Iegust, og lætur þar enginn sitt
eftir liggja.
Sjúkrastofurnar eru skreyttar til
hátíðabrigða, jólatré eru sett upp
og allskyns skreytingum er komið
fyrir. Þar sem margt er rólfærra
sjúklinga, eru haldnar guðsþjón-
ustur.
Jóladagana er að sjálfsögðu
vandað meira til matargerðar en
aðra daga og ýmislegt annað er
gert til að gera sjúklingunum jóla
hátíðina sem gleðilegasta.
Allir spítalarnir rýmkva heim-
sóknartímana yfir hátíðina og
þeim til hagræðis, sem hugsa sér
að heimsækja ættingja eðá vini á
sjúkrahúsum á jólunum, birtum
við hér heimsóknartíma sjúkra-
húsanna í Reykjavík:
LANDSPÍTALINN:
Aðfangadag 18—20, og hina jóla
dagana verður heimsóknartími
eins og venja er til á sunnudög-
um.
BÆ JARSPIT ALINN:
Aðfangadagur 14—16 og 19—21.
Jóladag 14—16. Aðrir heirn-
sóknartímar - verða eins og
venja er til á sunnudögum.
LANDAKOTSSPÍTALI:
Þar verður svipaður háttur og
undanfarin ár. Aðfangadagur
frá klukkan 18 eða 19 og eitt-
hvað frameftir kvöldí. Hina jóla-
dagana mun heimsóknartími
verða eins og venja er á sunnu-
dögum.
FARSÓTTAHÚS:
Þar verða heimsóknartímar eins
og verið hefur undanfarin jól.
HVÍTABANDIÐ:
Aðfangadagskvöld 18,30—21 og
á jóladag 14—16, annars eins og
venja er til á sunnudögum.
KLEPPSSPÍTALINN:
Aðfangadagur, eins og hver vill
fram til klukkan tíu um kvöld-
Framh. á 3. síðu
MIMMMtMMMMMMMWimM
FÖSTUDAGUR er næsti út-
komudagur Alþýðublaðsins.
WWMMMMMMMMMMWMMl
Olvaður ók hálfan meter -
hlaut 21 dags fangelsi
Nýársfagnaður
Alþýðuflokksins
ALÞÝÐUFLOKKS-
FÉLAGIÐ í Reykjavík efnir
til mikils nýársfagnaðar í
Iðnó 5. janúar. Skemmtiatriði
verða mörg og vel til þeirra
randað. í fyrsta blaðinu, sem
út kemur eftir jólin, á föstu-
daginn, verður skýrt nánar
frá þessari skemmtun. En
menn ættu eftir það ekki að
láta dragast að tryggja sér
miða. Þeir verða seldir strax
á 3. í jólum.
MAÐUR nokkur í Noregi var
dæindur í 21 dags fangelsi fyr-
ir að aka bifreið, eða öllu held-
ur hreyfa bifreið undir áhrif-
um áfengis. Hann ók bifreið-
inni hálfan meter. Frétt þessi
birtist I Arbeiderbladet fyrir
fáum dögum.
Maður nokkur lagði bifreið
fyrirtækisins, sem hann vann
hjá fyrir utan aðalpósthúsið í
Ósló og gekk síðan inn á veit-
ingastofu. Þar drakk hann á- ,
fengi og fann nokkuð til áhrifa
þess og ákvað þá að fara heim.
Hann bjó þarna skammt frá og
lyklarnir að íbúð hans voru í
bílnum og þanga'ð ætlaði hann
að sækja þá.
Þegar hann kom út sá hann,
að hann hafði lagt bQnum þar
sem einungis mátti leggja bif-
reiðum póstþjónustunnar, og
kom nú póstþjónn aðvífandi og
bað hann færa bílinn. Maður-
inn bað póstþjóninn um að
færa bílinn fyrir sig, en fékk
neitun. Maðurinn settist þá inn
í bUinn og ók honum hálfan
meter áfram og hugðist síðan
bakka og flytja bQinn yfir að
gangstéttinni hinu megin göt-
unnar. Áður en hann gat það,
lokaði póstþjónninn bíl hans
inni með sínum bíl. Maðurinn
fór nú út úr bílnum, en í sömu
svifum kom lögreglan á vett-
vang og færði manninn til lækn
is, þar sem tekin var úr hon-
um blóðprufa, sem sýndi 1.76
pro mille áfengismagn í blóð-
inu.
Dómurinn komst að þeirri
niðurstöðu, að maðurinn hefði
ekið undir álirifum áfengis, en
hinsvegar aðeins mjög stutt og
ennfremur var á það litið að
maðurinn ætlaði aðeins' að
færa bflinn til. Samt sem áður
fékk maðurinn 21 dags fang-
elsi fyrir þennan hálfa mcter.