Alþýðublaðið - 30.01.1963, Síða 3
LÖGREGLAN UM UMFERÐARSLYSIN:
Níu banaslys á tæpum mán-
uði! Þetta er staðreynd, ugg-
vænleg staðreynd á nýju ári.
Það er hverjum manni augljóst
að við þetta má ekki standa.
Það er margt sem bjátar á í
umferðarmálum borgarinnar,
og flestir gera sér grein fyrir
því, sem að er. Fólk er ekki
nægilega gætið, menn aka of
hratt, fólk anar fyrir bílana á
götunum. En, hvað raunhæfi
er að gera til úrbóta, hvernig
er hægt að fá menn til að aka
gæftilegar, hvernig skal fólki
kennt að tefla ekki á tvær hætt-
ur? Það var við þessari spurn
ingu sem við fengum svör, er
við snérum okkur til þriggiia
manna, sem starfa að ur.iferð-
armálum höfuðborgarinnar, og
hafa þess vegna betra innsæi
í þessi mál en allur almenningur
Kristmundur Sigurðsson hjá
rannsóknarlögregliinni á Fri-
kirkjuvegi 11: Þetta með bana-
slysin er afleiðing aðgæzlu-
leysis í umferðinnj, og ætti
að vera mönnum nægileg á-
bending um að sýna meiri var-
úð. En sjálfsagt verður ékki
svo vel, það þarf að gera rót-
tækar ráðstafanir, mönnum er
ekki nóg að heyra um slysin,
þeir verða að horfast í augu
við afleiðingar þeirra, og brot
manna verða að bitna á þeirn
sjálfum.
Það er vegna þess, sem ég á-
lít', að beita eigi ökuleyfissvipt
ingu miklu meira en gert er.
Það hefur sýnt sig, að menn
láta aðvaranir lögreglunnar,
hótanir og síðan sektir, eins
og vind um eyrun þjóta, —
þetta verður aðeins rex, sem fer
inn um annað eyrað en út um
hitt. Þá fyrst skilja menn aS
þeir verði að hlýða lögunum,
þegar þeir eru látnir sæta rrfs-
ingu eins og að vera sviptiv öku
leyfi í skemmri eða lengri ti'ua
Ef maður er sviptur ökulevfi í
nokkra mánuði vegna orc.ta á
umferðarlóggjöft-nni, en Iætur
sér ekki segjast, þá er ekkert
annað að gera en að svipta hann
ökuleyfi £ lengri tíma, iævi-
langt. Því hefur sá maður ekki
sýnt, að hann er alls ekki fær
um að stjórna bifreið?
Ég veit ekki hvort SlysaVarn
arfélagið hefur fjárhagslegt
bolmagn til þess, en það væri
mjög æskilegt- að félagið tæki
myndir af hinum ægilegu slys
um, sem verða hér innanlands,
og sýndi afleiðingar þeirra öll
um almenningi í aukamyndum
í kvikmyndahúsum eða á ann-
an hátt. Þannig, með því að
sýna almenningi svart á hvítu
afleiðingar augnabliks óað-
gætni í umferðinni, getur Slysa
varnarfélagið komið miklu til
leiðar. Það getur varað fólk
við, kennt því varkárni á áhrifa
mikin nhátt, svo seint gleymist.
Sverrir Guðmundsson varð-J
stjóri í umferðardeild lögregl-[
unnar á Snorrabraut: Þetta er
ljótt mál. Orsök þessara miklu|
slysa er sú, að fólkið gerir sér
ekki grein fyrir hættunum.
— Aðferðir til að gera fólki|
þessar hættur Ijósar?
— Kvikmyndir eru góð’nr, S
geta komið miklu til leiðar, cin: j
slysamyndir. Við höfum veriðl
með eina góða kvikmynd, senil
sýnir Pétur postula og einn ær-[
ingja á jörðu niðri, sem ekuil
eins og bjálfi, er ungur og meðl
„bfladellu“. Hann ekur undirl
áhrifum vins, ekur á, fer fram*
úr öllum hraðatakmörkunum
og brýtur yfirleitt allt það af
sér í umferðinni. sem hugsan-
legt getur talizt. Pétur postuli
er hinn góði maður í myndinni
Framhald á 11. siðu.
Lögregluþjónninn á flmm
tdálka myndinni hér fyrir ofan
[heitir Erik Steinsen og hefur
[eitt af hinum hraðskreiðu Har-
[ley Davidson mótorhjólum lög
freglunnar til umráða
Imaður er einn þeirra, sem hefur
rgætur á því, hvort menn brjóta
tumferðarlögin, og það er hans
Tverk að brýna fyrir fólki að-
l.gæzlu og varfærni. Myndin var
[tekin í gær á Snorrabrautinni.
Ljósm.: Rúnar
-3
ALÞÝÐUBLAÐIO - 30. janúar 1963 3