Alþýðublaðið - 14.02.1963, Síða 3
I
✓
Iransstjórn varar
við íhlutun
Bagrdad, 13. febrúar.
v NTB-Reuter-AFP.
Bagdad-útvarpið hermdi í
að allt væri með kyrrum kjörum
í hafnarbænum Basra, en samkv.
öðrum lieimildum eiga fylgismenn
nýju stjórnarinnar í írak og and-
stæðingar hennar enn í bardögum
þar.
Samkvæmt fregn útvarpsins
liefur vinna verið hafin á ný við
höfnina, og ríkisstjórn Arefa of-
ursta liafa borizt stuðningsyfirlýs-
ingar frá mörgum samtökum í
Basra.
Útvarpið skýrði jafnframt svo
frá, að sex hershöfðingjar, sex of-
urstar, átta undirofurstar, 10 maj-
órar og 11 lautinantar' úr íraksher
hefðu fengið fyrri embætti sín á
ný, en Kassem hershöfðingi — og
stjórn hans, höfðu svipt þá stöðum
★ VARAÐ VIÐ IHLUTUN.
Hinn nýi utanríkisráðherra ír-
aks, Telab Husszim Shabib, lýsti
því yfir á blaðamannafundi í dag,
að stjórnin mundi ekki fallast á
neins konar erlenda íhlutun um
innanríkismál landsins.
Hann lagði á það áherzlu, að
stjói-nin mundi gera allt sem í
hennar valdi stæði til þess að
vinna að framgangi arabískrar ein
ingar. Aðild að Arababandalaginu
er í athugun. Harin taldi senni-
legt, að ná mætti sættum í sam-
skiptum íraks og olíufui'staríkis-
ins Kuwait.
Utanrikisráðherrann staðfesti,
að nýja stjómin mundi standa við
alla samninga við hin stóru alþjóð
legu olíuféiög, sem reka starfsemi
sína í landinu.
★ RÓLEGT í BAGDAD.
Enn liggja ekki fyrir opinberar
tölur yfir þá, sem fallið hafa eða
særst í byltingunni. Samkvæmt á-
reiðanlegum heimildum í Bagdad
biðu a.m.k. 1000 manns bana í
götubardögum í Bagdad einni.
Hermenn Arefs forseta höfðu
full tök á ástandinu í Bagdad í
dag. Rólegt var þar og friðsam-
legt, að undanteknu því, að vopn-
aðir borgarar héldu áfram leit
sinni að kommúnistum og andbylt
ingarmönnum ásamt sérlegum her
sveitum úr hernum. Nokkrum
fangabúðum hefur verið komið upp
i borginni en ekki er vitað ná-
kvæmlega hve margir hafa verið
handteknir síðan uppreisnarmenn
tóku völdin í sínar hendur.
írönsk yfirvöld halda áfram að
gera upptæka peninga og eignir
fylgismanna Kassems hershöfð-
ingja.
★ FIMM ÞÚS. FALLNAR?
Samtök íranskra stúdenta erl.,
sem hafa bækistöðvar í London,
lvstu því yfir í dag, að rúmlega 5
þús, manns hefðu fallið í uppreisn
inni í írak, og köiluðu nýju stjórn
ina blóðþyrst einræði. Samtökin
skírskotuðu til almenningsálitsins
í heiminum og hvöttu til þess, að
skorizt yrði í leikinn og komið í
veg fyrir að nýja stjómin í land-
inu tæki enn fleiri þúsundir ír-
anskra borgara af lífi.
æsileg vígsluat
Vígsluathöfn á félagslieimilinu
í Höfn hófst á laugardaginn 9.
febrúar. Kl. 8. e.h. var um 330
manns sest að veizluborðum. Ósk-
ar Helgason, símstöðvarstjóri, setti
samkomuna og stjórnaði henni, er
kaffi hafði verið borið fram, drukk
ið og samkomugestir bragðað á
margs konar gómsætnm veizlurétt
Svertingjar berj-
ast í TRANSKEI
Jóhannesarborg, 13. febr.
NTB-Reuter.
Bardagar hafa skollið á
með Afríkumönnum, sem talið
er að séu félagar í Poqo-sam-
tökunum ofstækisfullra þjóð-
ernissinna og Afríkumönnum,
sem fylgja höfðingjanum Ma-
tanzima í héraðinu Transkei í
Transvaal-fylki að málum. Ma-
tanzima verður væntanlega
fyrsti forsætisráðherra Trans-
kei.
Uð sumra áliti eru menn vin
veittir kommúnistum í Poqo-
samtökunum, og þau hafa lýst
því yfir opinbcrlega, að tak-
markið sé að reka alla hvíta
menn úr landi með valdi.
Sumir Afríkumenn í hérað-
inu telja Matanzima Iepp stjórn
arinnar, þar sem hann hcfur
samvinnu við hana um stofn-
un Transkeiríkisins.
Mikil stjórnmálaólga hefur
verið í héraðinu upp á síðkast-
ið, einkum síðan stjórnin lét
í það skína, að Transkei ætti
að verða sjálfstætt ríki. Harð-
astri andspyrnu hefur þetta
mætt frá Tembu-ættbálkinum,
sem hlynntur er samfélagi
fólks af ýmsum kynþáttum.
Að undanförnu hafa rúmlega
80 Afríkumenn mætt fyrir rétti
og 57 þeirra hafa verið dæmdir
til fangelsisvistar fyrir að hafa
tekið þátt í Poqofundum, en
það er bannað.
Fréttamenn í Suður-Afríku
telja, að ef stjórn Suður-Afríku
tekst ekki að framkvæma
Transkei-áætlunina, hafi apart-
lieid stefnan (um aðskilnað kyn
þáttanna) mistekizt. Transkei
á að verða fyrsta sjálfstæða
Bantustanríkið af átta, sem
stofna á.
um hófust ræðuhöld. Ræður fluttu:
Benedikt Þorsteinsson, formaður
byggingarnefndar, Þórhallur Dan
Kristjánsson form. framkvæmda-
nefndar, Guðmundur Jónsson
byggingameistari, Guðjón Einars-
son íþróttafulltrúi, Árni Stefáns-
son skólastjóri Höfn, Rafn Eiríks-
son skólastjóri Nesjum, Kristján
Benediktsson Einholti Mýrum o.fl.
Milli ræðuhalda var. almennur
söngur. Þá söng blandaður kór og
kvennasextett undir stjórn Eyjólfs
Stefánssonar söngstjóra. Einsöng
söng Ásgeir Gunnarsson með undir
leik Sigurjóns Bjarnasonar. Hjalti
Jónsson hreppsstjóri í Hólum flutti
gömul ljóð, Kristín Gísladóttir
kennari flutti gamanmál, Aðal-
steinn Aðalsteinsson fór með nokkr
ar gamanvisur. Eftir að þessu og
kaffidrykkju lauk var stiginn dans
framundir morgun.
EFTA eflir
samvinnuna
Genf, 13. febrúar.
NTB-Reuter.
Samkvæmt góðum heimildum
verður tillaga Kennedys forseta
um samningaviöræður við aðildar
ríki alþjóðlegu tolla- og verzlun-
arnefndarinnar (GATT) kjarni
stefnu EFTA-ríkjanna eftir enda-
lok viðræðnanna í Briissel. Jafn-
framt mun ráðherranefnd EFTA,
sem kom saman til fyrsta fundar
Framh. á 14. síðu
Tillögurnar :
ófullkomnar
segir BSRB
Reykjavík 13. febrúar 1963.
STJÓRN B.S.R.B. og launamálanefnd héld fund í gær-I
kveldi og ræddi þau viðhorf, er skapast hafa eftir að lagðai]
hafa verið fram tillögur um launaflokkun ríkisstarfsmanna frá
samninganefnd ríkisstjórnarinnar.
A fundinum mættu auk stjórna og kjararáðsmanna, fullt
trúar frá félögum rikisstarfsmanna og 3 félögum bæjarstarfs-
manna.
Margir tóku til máls, og voru allir einhuga, vilji og álit
fundarmanna var undirstrikaður með einróma samþykkt eft-
irfarandi tillögu, sem borin var fram af fulltrúa stærsta banda
lagsfélagsins.
„Fundur stjórnar og launamálancfndar B.S.R.B., haldinn
í Arnarhvoli 12. febrúar 1963, álítur að framkomnar tillögui'i
samninganefndar ríkisstjórnarinnar um launak.jör ríkisstarfs-
manna séu ófullkomnar og gangi of skammt til móts við kröf-
ur Kjararáðs um sama efni, enda hafa þær í för með sér launa-
lækkun fyrir marga starfshópa.
Fnndurinn lýsir stuðningi sínum við tillögur Kjararáðs og
slcorar á bandalagsfélögin að veita því allan stuðning sem þau
mega við yfirstandandi samningaviðræður." í
(Frá BSRB).
Biðum
Framhald af 5. síðu.
Gylfi sagði, að það hefði kom-
ið fram í viðræðunum í fyrrasumar
að sérstaklega Frakkar væru þeirr
ar skoðunar, að t/ollasamningur
hentaði íslendingum bezt, þar eð
þeir hefðu verið andvígir mikilli
stækkun EBE (6já forsíðu). Aðrar
bandalagsþjóðir EBE og fram-
kvæmdastjómin í Brussel hefðu
hins vegar talið litla eða enga
möguleika til lausnar á vandamál-
um íslands á slikum grundvelli.
Viðskiptamálaráðehrra sagði, að
meðan slík óvissa hefði ríkt um
það, hvor leiðin yrði heppilegri
fyrir ísland, tollasamningsleið eða
aukaaðiidarleið, hefði ríkisstjórnin
ekki getað tekið neina ákvörðun
um að fara fremur aðra leiðina en
hina.
í niðurlagi ræðu sinnar fórust
Gylfa orð á þessa leið:
„Ef litið er hleypidómalaust á
málið hygg ég, að sanngjarnir
menn muni viðurkenna, að ríkis-
stjórnin hafi í þessu máli gert þá
skyldu sína, að fylgjast rækilega
með öllu, sem máli skipti og vera
vel á verði og að það hafi verið
rétt að leggja ekki til við Alþingi
að neins konar aðildar verði leitað
að Efnahagsbandalaginu. En hafi
það verið rétt fram til þessa að
bíða átekta og velja ekki ákveðna
leið til lausnar vandamálum ís-
lendinga, hversu miklu réttara er
það þá ekki nú að sjá hvað setur
og forðast að binda sig við ákveðn-
ar hugmyndir, svo miklu meiri,
sem óvissan er nú um framtíðina
en hún var meðán samningavið-
ræður Breta og EBE stóðu yfir.
í raun og veru má nú segja, að
spurningin um tengsl íslands við
EBE sé nú ekki lengur á dagskrá
hér á íslandi, fremur en í öðrum
átekta
smáríkjum Vestur-Evrópu. Með-
an svo er, hlýtur það að teljast
vera í fyllsta samræmi við hágs-
muni íslendinga, að sem fæst stór
orð séu höfð um málið og menn og
flokkar forðist staðhæfingar og
stefnuyfirlýsingar, isem reynslan
og framtíðin kann að leiða í ljós,
að betur hefðu verið ósagðar."
Dagskrá alþingis
DAGSKRÁ
sameinaðs Alþingis fimmtodaginn
14. febr. 1963, kl. 1,30 mlðdegis.
Fyrirspurn: Launakjör alþingis-
manna. — Hvort leyfð skuli.
DAGSKRÁ
efri deildar Alþingis fimmtudaginn
14. febr. 1963, að loknum fundi í
sameinuðu þingi.
1. Jarðræktarlög, frv. — 3. umr.
3. Tunnuverksmiðjur ríkisins,
frv. — 2. umr.
4. Dýralæknar, frv. — 3. umr.
5. Stofnlánadeild landbúnaðar-
ins, frv. — Frh. 1. umr.
DAGSKRÁ
neðri deildar Alþingis fimmtudag-
inn 14. febr. 1963, að loknum fundi
í sameinuðu þingi.
1. Heimild til þess að afhenda
þjóðkirkju íslands Skálholts-
stað, frv. — 1. umr.
2. Fullnusta norrænna refsi-
dóma, frv. — 1. umr.
3. Landshöfn í Keflavíkurkaup-
stað og Njarðvíkurhreppi,
frv. — 3. umr.
4. Landshöfn í Rifi á Snæfells-
nesi, frv. — 2. umr.
5. Vátryggingarfélög fyrir fiáki-
skip, frv. — 2. umr.
6. Siglingalög, frv. — 3. umr,
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 14. febrúar 1963 ;3