Alþýðublaðið - 14.02.1963, Side 8
ÞAÐ Eíl af hálfu vísindamanna
ekki talið neitt því til fyrir-
stöðu að koina á skemmtiferð-
um fyrr almenning' til Suður-
skautsins, og þar yrði þá opn-
uð Ieið að mesta og stórkost-
legasta skíðalandi jarðkringl-
unnar.
Það er líka vitað, að bygging-
arframkvæmdir munu yerða
miklar á pólnxun á næstu ár-
um, og að allt suðurskautsland
muni verða miðstöð hvers kon-
ar vísindarannsókna á næstu
áratugum. Níu þjóðir eiga þar
þegar vísindastöðvar. Höfin um
hverfis strendur landsins eru
könnuð frá skipum og stórar
flutningaflugvélar á skíðum
og sterkir beltisbílar hafa leyst
þann vanda að halda uppi sam-
göngum yfir hinar voldugu ís-
auðnir.
Kjarnorkurafstöð við Mc-
Murdosund lætur í té orku til
ljósa og hita, og tæknifræðing-
ar hafa leyst þann vanda að
reisa hæfileg hús: Þau eru und-
ir yfirborði jökulsins.
. Ferð frá Evrópu og Banda-
ríkjunum suður á pól fram og
til baka mundi ekki þurfa að
taka meira en viku. Og Am-
erikumenn hafa í hyggju að
koma upp venjulegum flug-
velli á hjarninu.
Tólf þjóðir hafa orðið ásátt-
ar um það að gera Suðurskauts
land að friðlýstu svæði, fyrst
og fremst vegna vísindarann-
sókna. Þar eru nú sem stendur
120 Ameríkumenn við rann-
sóknarstörf og útgjöldin af
þeim rannsóknum eru stórkost-
leg.
Hvers konar hugsanlegar at-
hugánir eru gerðar á þoli manns
ins í slíku veðurfari, sem þar er
Þar er um hvort tveggja að ræða
hvaða föt henti bezt og hvaða
liffræðileg áhrif kuldinn hafi
á manninn.
Alls munu um 1000 manns
koma til bandarísku stöðvar-
Framh. á 11. síðu
SVO GETUR FARIÐ, að umfangs-
miklar vísindarannsóknir varpi,
áður en langt um líður, nýju Ijósi
á hvítblæði og ýmsar krabba-
meinstegundir.
Á mörgum stöðum í Mið-Afriku
deyr mikiU fjöldi barna úr krabba-
meini. Er hér um sérstaka tegund
krabbameins að ræða. Sjúkdóms-
einkennin eru oft þau, að þykk-
ildi myndast á kjálkum, en síðan
koma þau fram víðsvegar um lík-
amann. Vegna þess að þessi
krabbameinstegund var staðbund-
in við viss svæði í Mið-Afríku,
fóru menn að hugleiða, hvort verið
gæti samband milli sjúkdómsins
annars vegar og loftlagsins hins
vegar, einkum með tilliti til hita-
og rakastigs. Það vakti einnig at-
hygli, að sjúkdómssvæðið var ná-
lega hið sama og það landssvæði í
Ariku, þar sem tsetseflugan þrífst
bezt.
Þessi staðreynd hefur komið
mönnum mjög á óvart, því að hing
að til hafa menn haft þá skoðun, að
krabbamein væri ekki háð ytri að-
stæðum. Nú er það komið á dag-
inn, að margt bendir til þess, að
krabbamein berist beinlinis frá
manni til manns með skordýrum
Fyrir nokkrum árxnn hefðu allir
vísindamenn, sem vinna að
krabbameinsrannsóknum, hafnað
þessari tilgátu, sem mjög ó-
sennilegri.
Það er ef til vill of sterkt til
orða tekið, að þessi óhugnanlegi
krabbameinssjúkdómxxr meðal
barna í Mið-Afríku sé farsótt. Hitt
getxxr engum dulizt, að hér er um
landlægan sjúkdóm að ræða, og
allt bendir til þess, að hann sé
smitandi og smitberinn séu á-
kveðnar flugutegundir.
Á þessu stigi málsins má segja,
að það sé nokkuð djörf, en um leið
skuggaleg tilgáta, að krabbamein
sé smitandi sjúkdómur.
Brezkur vísindamaður, dr. De-
nis Bxirkitt, sem starfar við há-
skólann í Uganda, hefur nýlega
ritað grein í -brezkt tímarit, þar
sem hann lýsir vandamálum varð-
andi þennan afríkanska krabba-
meinssjúkdóm. Það er ekki ósenni-
legt, að rannsóknir dr. Burkitts
eigi eftir að hafa grundvallarþýð-
ingu fyrir almennar rannsóknir
á krabbameini og að nokkru leyti
á hvítblæði. Á vissan hátt getur
hvítblæði líkzt krabbameini, og
margt bendir til þess, að hvít-
blæði sé smitandi sjúkdómur.
Dr. Burkitt bendir á, að fyrir
nokknxm árum hafi menn komizt
að þeirri niðurstöðu, að mismun-
andi krabbameinstegundir hjá
bömum innan 12 ára aldurs væri
í rauninni einn og sama sjúkdóm-
urinn. Sameiginleg sjúkdómsein-
kenni eru þau, að krabbinn byi-j-
ar í kjálkunum, sem annars er
ffemur sjaldgæft sjúkdómssvæði
bjá börnum. Á næsta stigi getur
sjúkdómurinn komið fram í ýms-
um líkamshlutum, ekki sízt í sog-
æðakirtlunum.
Dr. Burkitt viU ekki telja sjúk-
dóm þennan til farsótta. Hann
telur ennfremur, að sjúkdómurinn
sé ekki eingöngu bundinn við
Mið-Afríku, heldur þekkist hann
einnig í Austurlöndum nær og
víða í Asíu. Einnig megi vera, að
á Nýju Guineu sé um þennan
sjúkdóm að ræða, því að þar herj-
ar skaðvænn barnasjúkdómur á íbú
Það er fullkomin ástæða til að
ætla, að mikill hluti barna á þess-
um svæðum sýkist af krabba-
meini, en hjá hluta þeirra skapist
mótefni, sem gera bömin ónæm
fyrir sjúkdóminum, og þess vegna
verður ekki um að tefla neinar al-
varlegar afleiðingar hjá þeim.
Útbreiðslusvæði sjúkdómsins er
einkum bundið við Kenya, Kongó,
hluta af Suður-Afríku, og vestur-
strönd álfunnar. Athyglisvert er,
að sjúkdómurinn þekkist ekki, þar
sem hitinn fer niður fyrir 15 gráð-
ur á Celsíus.
í höfuðatriðum er sjúkdóms-
svæðið sama og svefnsýkinnar, en
smitberi hennar er tsetseflugan og
önnur smitberandi skorkvikindi, —
sérstaklega ýmsar mýbitstegundir.
Af þessum ástæðum liggur
nærri að ætla, að krabbameins-
tegund sú, sem hér um ræðir, sé
smitandi sjúkdómur, sennilega
vírus-sjúkdómur.
Fjölmörg atriði eru þó enn
ekki upplýst í sambandi við sjúk-
dóm þennan. Má þar fyrst nefna,
að enda þótt sterk rök bendi til
þess, að hér sé um vírussjúkdóm
að ræða, þá hefur vírusinn enn
ekki verið fundinn. Og í almenn-
um krabbameinstilfellum hefur
vírus aldrei verið staðreyndur.
En engu að síður getur hann verið
fyrir hendi. Það er vandamál, sem
heilbrigðisstofnun Sameinuðu
þjóðanna hefur nýlega fyrirskip-
að að rannsaka ítarlega einkum í
sambandi við hvítblæði, en það er
sjúkdómur, sem virðist vera í ör-
um vexti.
Við rannsóknir á hvítblæði í
Bandaríkjunum komust menn að
þeirri niðurstöðu, að böra, sem
sofið höfðu saman, fengu hvít-
blæði. Það benti eindregið í þá
SPURNINGINum það, hvort
sænska þingið eigi að starfa í einni
eða tveimur málstofum, er að verða
mikið hitamál í Svíþjóð. Stjóm-
málaflokkarnir hafa sett fram við-
horf sín til málsins í stjórnlaga-
nefndinni.
framkomnar breytingartillögur á
allmörgum ákvæðum stjóraarskrár
innar. M. a. mun nefndin leitast við
að ná samkomulagi um lögaldur
konungsins.
Endurskoðun sænsku stjórnar-
skrárinnar hefur staðið yfir í níu
ár. Mánudaginn 11. febrúar átti
stjórnlaganefndin að koma saman
til síðasta og lengsta fundar síns í
Eskiltúna. Sá fundur mun ekki
standa skemur í eina viku. Þar
verður fyrst og fremst fjallað um
Þegar konur fengu fyrst kosn-
ingarrétt og kjörgengi árið 1917,
var slagorðið í þeim átökum þetta:
„Herra“veldi eða þjóðveldi. Nú er
hins vegar kjörorðið: Sterkt ríkis-
vald. Þróunin í frönskum stjórn-
málum hefur tvímælalaust haft hag
stæð áhrif fyrir stærstu stjórnmála
flokkana í Svíþjóð. Það eru aðal-
lega jafnaðarmenn og þjóðflokkur
inn, sem berjast fyrir því, að þing-
ið verði í einni málstofu. Halda
forustumenn þessara flokka því
fram, að með slíku fyrirkomulagi
fái þjóðarviljinn eðlilegustu áhrif-
in á myndun ríkisstjórnanna. Meiri
hlutinn í stjórnlaganefndinni er
sagður aðhyllast þetta sjónarmið.
Við þessa endurskoðun sænsku
stjórnarskrárinnar hefur verið
hreyft mikilvægri, en viðkvæmri
breytingartillögu: Að gera Svíþjóð
að lýðveldi.
Flestir jafnaðarmenn eru fylgj-
andi slíkum skipulagsbreytingum.
Á flokksþingi þeirra árið 1960 var
samþykkt án ágreinings sú stefnu-
yfirlýsing flokksins, að stefna bæri
að lýðveldisfyrirkomulagi. í yfir-
lýsingu þessari er þó tekið fram,
að ekki eigi að framkvæma svo
mikilvægar breytingar á stjórnar-
háttum, nema fyrir þeim sé sterk-
ur meirihluti meðal þjóðarinnar.
í stjórnlaganefndinni er enginn
grundvöllur fyrir því, að kona geti
orðið þjóðhöfðingi í Svíþjóð.
Sænska stjórnarskráin var á sín-
um tíma samin á tæpum þremur
vikum. Þetta átti sér stað árið
1809, en þá ríkti styrjaldarástand
í landinu, og þess vegna var þörf
skjótra aðgerða.
Frá upphafi hafa verið gerðar
320 breytingar á stjórnarskránni,
en þó hafa 13 greinar hennar hald-
izt óbreyttar fram á þennan-dag.
ER I FULLUM QA
|C.. I ■ I