Alþýðublaðið - 21.04.1963, Síða 5

Alþýðublaðið - 21.04.1963, Síða 5
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 21. apríl 1963 £ Félag ungra jafn- a5 á Húsavík Ágæt árshátið UNGIR jafnaðarmenn á Húsavík stofnuðu félag með sér laugardaginn 30. marz síð- astliðinn. Hófst stofnfundur- inn kl. 9 að kvöldi í Hlöðu- felli, hinu nýja og glæsilega félagsheimili Alþýðuflokksins á Húsavík. Stofnendur voru 20 talsins og var mikill áhugi hjá hinu unga fólki. Fundar- stjóri var Guðmundur Hákon- arson verkamaður á Húsavík. Fundurinn hófst með ávarpi Gísla Braga Hjartarsonar, for- manns FUJ á Akureyri, en síð- an var gengið til stofnfundar- starfa. Voru félagslög samþykkt en síðan gengið til stjórnar- kjörs. Formaður var kjörinn Halldór Ingólfsson, en aðrir í stjórn þeir Baldur Jónasson, Þorsteinn Einarsson, Einar Fr. Jóhannesson, Jón B. Gunnars- . son. Varamenn í stjóm voru kosnir Gunnar P. Jóhannesson og Víkingur Víkingsson. End- ursköðendur vom kjömir Guðný Kristjánsdóttir og Dóra Valdimar-sdóttir. Að stjórnar- s kjöri loknu flutti Einar >1. , Jóhannesson, formaður Al- þýðuflokksfélags Húsavíkur á- varp og árnaði unga fólkinu allra heilia. Samband ungra jafnaðar- manna býður hið nýja félag velkomið í hópinn. Stofnun þess er enn ein sönnunin fyrir þeim mikla þrótti og kráfti, sem samtök ungra jafnaðarmanna búa yfir. UM HELGINA (7. og 18. marz síðastliðinn i'ndi Sam- band ungra jafna inanna til fyrstu funda sinna egna kom- andi þingkosninga. Voru þeir fundir haldnir á , r uiðárkróki, Húsavík og á S- ."ossi — og tókust þeir yfirle’.t mjög vel. Leigð var flug,.:l frá Flug- skólanum Þyt til I fara með ræðumenn SUJ ' .,ður. Voru það þeir Helgi 'inundsson ritstjóri, Eyjólf'T Sigurðsson prentari, Þórir ’ 'mundsson sveitarstjóri og ,1 Steinar Guðnason kennari. Héldu þeir fund sinn á HvL.ivík síðari hluta dags á lauga: ag í Hlöðu- felli, hinu nýja . g glæsilega f élagsheimili A lþ j ðuflokksins þar. Fundurinn ' ir álcaflega fjölsóttur, þráit fyrir það, þótt skammur tími hefði verið til stefnu með aúgiýsingar, og mátti heita, . i salurinn væri fullsetinn. ' nr einkum mikið af ungu iélki viðstatt, ÍITGEFANDI: SAMBAND UNGRA JAFNADAKMANNA enda er skemmst frá því að segja, að ekki liðu nema tvær vikur frá fundi þessum þar til Félag imgra jafnaðarmanna á Ilúsavík hafði verið stofnað. Máli ræðumanna var ágætlega tekið. Fundarstjóri var Guð- mundur Hákonarson verkamað- ur á Húsavík. Síðdegis á sunnudag var svo fundurinn á Sauðárkróki. Þar töluðu sömu ræðumenn og á Húsavík en fundarstjóri var Birgir Dýrfjörð, verðgæzlumað- ur. Fundurinn var ákaflega vel sóttur og mátti varla á milli sjá hvor væri fjölmenn- ari, sá fundur eða Húsavíkur- fundurinn. Enginn heimamanna tók til máls á Sauðárkróksfund inum, en hinn bezti rómur var gerður að máli frummælenda. Á sunnudag gekkst SUJ og fyrir fundi á Selfossi. Sá tókst því miður ekki sem bezt, og er á stæðul. að skrökva til um það. Olli því mikil óg mögnuð in- flúenza er gekk í þann mund á Selfossi, mistök með auglýs- ingar o. fl. Samt sem áður var fundurinn haldinn- og góður rómur gerður að máli frum- mælenda, sem voi-u þeir Unnar Stefánsson viðskipta- fræðingur, Sigurður Guðmunds son, formaður SUJ, Ásgeir Jóhannesson, ritari SUJ, og Óttar Yngvason stud. jur. Þess má svo að endingu geta, að ungir jafnaðarmenn eru yfirleitt mjög ánægðir með fundi þessa og hyggjast halda þeim áfram. Hafa bæði tíðarfar og mikil atvinna við sjávarsíðuna hamlað fundum undanfarið, en þeir verða inn- an skamms teknir upp að nýju. unga fólksins Myndirnar a Danzinn var stiginn dátt í Súlnasalnum — og bæði gamlir • dansar og nýir. Hér að ofan get ur að líta svipmynd af dans- gólfinu. Tekin var mynd fyrir okkur af einu borðinu í Súlnasalnum og svo vildi til, að þar sat Haukur Morthens með' gestum sínum. Og í þetta skipti var Haukur að skemmta sjálfum sér, en öll önnur kvöld ársins er hann aö skemmta öðrum. Hauk- ur er sem kunnugt er, í 15. sæti á A-listanum í Reykjavík. SAMBAND ungra jafnaðar- manna gekkst fyrir Árshátíð unga fólksins í Alþýðuflokkn- um að Hótel Sögu miðvikudag- inn fyrir páska. Hátíðin hófst með því að Eyjólfur Sigurðs- son, gjaldkeri SUJ, setti hátíð- ina með snjöllu ávarpi, en síð- an tók tij máls Sigurður Guð- mundsson, formaður SUJ. Ræddi • hann í stuttu ávarpi um kosti þá, er íslenzkir kjós- endur ættu/nú nm ríkisstjórn næsta kjörtímabil. Að máli lians loknu tók til máls Eggert G. Þorsteinsson alþingismaður og rakti í stuttu máli starf Alþýðuflokksins fyrir unga fólkið í landinu á þv£ kjör- tímabili, sem er að ljúka. Hinn bezti rómur var gerður að á- vörpum þeirra Eggerts og Sigurðar. Póiýfón-kórinn söng nokkur Iög undir stjórn Ing- ólfs Guðbrandssonar og hiaut að launum mikið og gott lófa- klapp. Ennfremur söng Ómar Ragnarsson nokkur lög við mikinn fögnuð áheyrenda. — Milli atriða og að hinni eigin- legu dagskrá lokinni, var dans stiginn af miklu f.jöri við und- irleik hljómsveitar Svavars Gests. Það er mál manna, að árs- liátíð þessi hafi tekizt mjög vel. Var Súlnasalur Hótel Sögu þéttskipaður ungu fólfci ur Alþýðuflokknum og -imkil „stemning” ríkjandi meðal þess. Var það .álit allra, að árshá- tíð sem þessa væri nauðsyn- legt að halda á ári hverju, líkt og .gert var til skamms tíma í veitingahúsinu Iidó. Mun stjórn SUJ leitast við að efna til slíkrar árshátíðar unga fólksins í Alþýðuflokknum ár- lega hér eftir, enda sjálfsagt, þegar þær heppnast jafnvel og sú, er haldin var í Súlnasal Sögu miðvikudagskvöldið fyr- ir páska.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.