Alþýðublaðið - 21.04.1963, Qupperneq 15

Alþýðublaðið - 21.04.1963, Qupperneq 15
ir hafa verið r.iður í svart blek. Það var hræðilegt að sjá, hve mjög hún hafði breytzt. Þegar ég hafði heyrt rödd hennar, hagði komið upp í huga mér mynd a£ henni, eins og hún var, þegar ég sá hana síðast, en þessi kona var mér ókunn, og þó vissi ég, að þetta var Rima. Þrátt fyrir rautt hárið og hörkuna, var eng- inn efi á því líver hún var. Ég sá hörð augu hennar skoða fötin mín, frakkann, sem ég bar á handleggnum og skóna, og síðan beindust þau að andliti mínu. „Halló, Jeff“, sagði hún. „Langt síðan við höfum sézt.“ „Það er bezt fyrir okkur að fara eitthvað, þar sem við get- um talað saman“, sagði ég og fann að rödd mín var hás. Hún lyfti brúnum. „Ég mundi ekki vilja koma þér í óþægilega aðstöðu. Þú ert orð- inn heilmikill karl núna. Eí hin ir ríku vinir þínir sæju mig með þér, kynnu þeir að draga rangar ályktanir." „Við getum ekki talð hér. Komdu út í bíiinn minn“. Hún hristi höfuðið. „Við tölum hér. Hafði ekki á- hyggjur af Joe. Hann er alveg lieyrnarlaus. Ætlarðu að gefa mér sjúss?“ „Þú 'getur fengið það sem þú vilt.“ Hún stóð upp, gekk yfir að afgreiðsluborðinu og hringdi bjöllu hjá negranum, sem færði sig frá henni og ygldi sig að lienni. Maður nokkur kom út úr bak herbergi: stór og feitur ítali með feitt, svart hár og skeggbrodda á kjálkununj. Hann var í skít- ugri kúrekaskyrtu og enn skít- ugri buxur. • „Flösku af whiskýi, tvö glös og sódavatn, Toni“, sagði Rima, „og flýttu þór.“ Feiti maðurinn starði á hana. . „Hver borgar?" Hún hneigði höfuðið í áttina til mín. „Hann. Flýttu þér“. Svörtu, blóðhlaupin augu hans litu á mig, síðan kinkaði hann kolli og fór aftur inn í bakher- ið. Ég dró einn af kröfustólun.um til og. stillti þannig til, að ég mundi verða nálægt henni, þ.eg- ar hún kæmi aftur og settist í stól sinn, en gæti þó haft auga með inngöngudyrunum. Ég sett ist niður. i’ Hún kom og settist aftur í stól sinn. Þegar hún gekk, tók ég eft ir, að það voru lykkjuföll á báð- um sokkum hennar og skórnir voru um það bil að detta í sund ur. „Jæja, þetta er bara eins og í gamla daga, finpst þér ekki?“ sagði hún um leið og hún sett- ist niður. „Nema hvað þú ert auð- vitað giftur núna.“ Hún tók upp sígarettupakka, kveikti sér í einni og blés reyknum út um nas ir sér. „Þér hefur sannarlega gengið vel, þegar tekið er til- lit til þess, að þú hefðir getað eytt öllum þessum tíma í fanga klefa oða værir jafnvel gróður- áburður í fangelsigarði . . .“ Feiti maðurinn kom með drykk inn. Ég borgaði það, sem hann setti upp, og þegar liann var bú inn að horfa forvitnislega á mig, gekk hann aftur inn í bakherberg ið. Hún hellti stórum sjúss í ann að glasið með óstyrkri hendi og ýtti flöskunni til mín. Ég snerti ekki við henni. Ég horfði á liana drekka helming- inn af whiskýinu óblandað og bæta síðan sóda út í afganginn. „Þú virðist ekki hafa margt að segja“ sagði hún og horfði á mig. „Hvernig hefur þér liðið öll þessi ár? Nokkurn tíma liugsað um- mig?“ „Ég hef hugsað um þig“, sagði ég. „Nokkurn tíma velt því fyrir þér, hvað ég hefðist að?“ Ég sagði ekkert. „Geymdirðu bandið, sem ég söng inn á?“ Löngu áður en ég kom heim hafði ég losað mig við bandið. Ég hafði ekki viljað hafa neitt, sem minnti mig á hana. „Það týndist", sagði ég svip- brigðalaust. „Er það? Það var leiðinlegt. Það var góð upptaka". Hún fékk sér annan sjúss. „Það var mikilla peninga virði. Ég var að vona, að þú hefðir geymt það og ég gæti selt það.“ Þarna kom það. Ég beið. „Úr því að þú týndir því og þú hefur svona miklar tekjur, þá býst ég ekki við, að þú hafir neitt á móti því að borga fyrir það.“ „Ég borga þér ekki neitt“, sagði ég. Hún lauk úr glasinu og hellti aftur í það. „Svo að þú ert giftur. Það er talsverð breyting fyrir þig, er það ekki? Ég hélt, að þér væri ekkert um kenfólk“. „Við skulum sleppa því, Rima. Ég held, að það sé engin ástæða til að halda þessu samtali á- fram. Þú og ég erum af tveim ó- líkum heimum. Þú fékkst þinn möguleika. Ég hef gripið minn tveim höndum.“ Hún stakk hendinni inn undir skítuga blússuna til að klóra sér á rifjunum. Það var athöfn, sem minnti mig óþyrmilega á liðinn tíma. „Véit konan þín, að þú drapst mann?” spurði hún og horfði beint á mig. „Ég myrti ekki mann“, sagði ég rólega. „Og við blöndum konu minni ekki í þetta“. „Jæja, úr því að þú ert svona viss um að hafa ekki gert það, þá er þér líklega sama, þó að ég fari til lögreglunnar og segi lienni, að þú hafi gert það“. „Sjáðu nú til, Rima“, sagði ég, „þú veizt eins vel og ég, að þú skauzt varðmanninn. Enginn mundi trúa þér gegn staðhæfing- um mínum. Við skulum því sleppa þessu“. „Þegar ég sá myndina af þér í LIFE í þessari fínu skrifstofu, gat ég varla trúað heppni minni“, sagði hún. „Mér tókst rétt að- eins að ná hingað nógu snemma til að sjá frammistöðu þína í sjónvarpinu. Svo að þú átt að fá sextíu þúsund doilara. Það er mikil glás af peningum. Hvað ætlarðu að gefa mér mikið?" „Eklci eyri“, sagði ég. „Er það nógu skýrt?“ Hún hló. ,Ó, en víst gérirðu það. Þú átt eftir að bæta mér það upp, að þú týndir segulbandsspólunni. Ég geri ráð fyrir, að hún hafi verið sextíu þúsund dollara virði. Hún hefur sennilega-ver- ið meira virði“. „Þú heyrðir hvað ég sagði, Rima. Ef þú reynir að kúga fé út úr mér, sendi ég lögregluna á þig“. Hún lauk við drykkinn og sat þarna og handlék glasið á meðan grjóthörð augun litu á andlit mitt. „Ég hef geymt byssuna, Jeff“, sagði hún. „Löggan í L. A. hefur lýsingu af þér í skjalasafninu. Þeir vita, að maðurinn, sem þeir vilja ná í fyrir morðið, er með laf andi augnalok og ör eftir kjálk- anum. Það eina, sem ég þarf að gera er að ganga til næstu lög reglustöðvar og segja þeim, að þú og ég séum fólkið, sem þeir séu að leita að. Þegar ég fæ þeim byssuna, þá vaknar þú upp í af- tckuklefanum. Það er svona ein falt og auðvelt." ,Ekki alveg“, sagði ég. Þú vær ir meðsek, jafnvel þó að þeir tryðu sögu þinni gegn staðhæf- ingum mínum. Þú mundir líka lenda í fangelsi. Gleymdu því ekki!“ Hún hallaði sér aftur á bak og hló. Það var hart og hryllilegt hljóð. „Blessaður hálfvitinn! Dettur þér í hug, að mér væri ekki sama, þó að ég lenti í fangelsi? Florfðu á mig! Hverju hef ég að tapa? Ég er búin að vera! Ég er búin að missa þá fegurð, sem ég kann einhvern tíma að liafa liaft. Ég get ekki rekið upp bofs lengur. Ég er dópisti, alltaf að leita að peningum til að kaupa skammt. Hvers vegna skyldi mér ekki vera sama, þó að ég lenti í tugt- húsi? Ég væri betur á mig kom- in en núna.“ Hún hallaði sér fram og svipurinn var skyndilega orð inn harður og grimmdarlegur. „En þér væri ekki sama, ef þú lentir í fangelsi. Þú hefur öllu að tapa. Þig langar til að byggja þessa brú ,er það ekki? Þig lang ar í nýtt hús, er það ekki? Þig langar til að halda í stöðu þína í þjóðfélaginu, er það ekki? Þú hefur allt. Ég hef ekkert. Ef þú ekki gerir það, sem ég segi, Jeffj Laos Framh. af 1. síðu : verði haldin, ef ekki eigi að komaí til borgarastyrjaldar. Forsætisráð- herrann beindi einkum máli sínú til Breta og Rússa. Haft er eftir heimildum í brezká utanríkisráðuneytinu, að sendh herra Breta í Moskva hafi beðið um fund með Andrei Gromyko, ut- anríkisráðherra Rússa í dag. Talið er, að sendihermrann muni færa Gromyko boðskap brezka utanríkisráðherrans, Home lávarðar. Sendiherrann ræddi í gær við háttsetta fulltrúa utanrík- isráðuneytisins í Moskva. Souvanna Phouma hefur sagt, að hann sé reiðubúinn að halda norður í landið til viðræðna við kommúnista og reyna að ná sætt- um. Kennedy forseti sagði í gær, að ástandið í Laos gæfi á- stæðu til alvarlegra áhyggna fyr- ir Bandaríkin. Hann sagði, að af árás Pathet Lao á hersveitir hlutlausra héldí áfram, risi upp það vandamálí hvort hætta væri á að Genfarsamir ingurinn um hlutleysi Laos eyði- legðist. — Á næstu dögum fáum við að sjá hvort þessi samningur verður brotinn, sagði hann. ;F __Jumbó, þú verður kyrr, þú ferð ekki inn í þá stofu, sem. ég er nýbúinn að ryksuga. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 21. apríl 1963 15

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.