Breiðablik - 01.08.1908, Side 1
BREIÐABLIK.
Mánaöarrit til stuðning's íslenzkri menning.
FRIÐRIK J. BERGMANN
RITSTJÓRI
III. Ár.
ÁGÚST 1908.
Nr. 3.
SAMEIGINLEG ÁHUGAMÁL.
M Vestur-íslendinga
hefir það öldungis
nj'lega verið sagt,
að kirkj’u- og trú-
armál beri hjá þeim
ægishjálm yfir öllum öðrum mál-
um.
Það er ekki lagt þeim til lýta,
enda er engin ástæða til. Stjórn-
mál geta eigi verið þeim annað
eins áhugamál og bræðrum þeirra
á íslandi. Hér hafa þeir enn átt
of skamma dvöl í landi, til þess
stjórnmál þessa lands skipi annan
eins hefðar-sess í huga þeirra. Þó
mikið sé um stjórnmál hugsað
með innlendu fólki, er fjölbreytni
umhugsunarefnanna miklu meiri
og andlegum málum yfirleitt miklu
meiri gaumur gefinn.
En af andlegum málum eru
trúar-og kristindómsmál ávalt efst
á baugi. Um þau hafa Vestur-
íslendingar hugsað meir en nokk-
ur mál önnur síðan þeir komu
hingað. Eigi að eins þeir, sem
gengið hafa í söfnuði, heldur
nokkurn veginn allir, í hvaða
flokk, sem þeir hafa skipað sér.
Ekkert mannlegt eigum vér að
láta oss óviðkomandi. En af öllu
mannlegu eru andleg mál stærst
og göfugust. Þau koma öllum
við. Á eg að trúa nokkuru eða
engu? Hverju á eg að trúa ?
Hvaða guðshugmynd hefi eg^?
í hverju er trú og trúrækni fólgin ?
í hvaða sambandi stendur það við
athafnir mannanna ?
Á að trúa samkvæmt einhverju
fyrirskipuðu kerfi ? Eða er hver
maður frjáls í trú sinni ?
Á að skoða biblíuna sem vald-
boð af himni ? Eða á að skoða
hana sem skuggsjá trúarþroskans
í mannssálunum ? Á eg að trúa