Breiðablik - 01.08.1908, Page 6

Breiðablik - 01.08.1908, Page 6
3§ B R E I Ð A BL I K ið samþykt, að gjöra mig rækan fyrir einhverjar ákærur út í bláinn. Þá var gripið til annars óyndisúrræðis. Skuldinni var allri skelt áskólann. Hann var engin persóna, heldur stofnan. Það var sagt, að hann logaði allur í alls kon- ar óskaplegum skoðunum. Og fyrir þann vitnisburð var sambandinu slitið og kenn- araembættið lagt niður. Og þó er sannleikurinn sá, að langt verður þangað til, að íslendingar eignast jafn-hákristilega stofnan í göfugasta skilningi og sá skóli er. Andinn, sem þar ríkir, og samkomulagið milli nem- enda og kennara fegursta fyrirmynd. Jafnlangt frá því, að nokkuru, sem kall- að er hœrri kritik, sé haldið þar að mönn- um og því, að menn sé taldir á að verða meþódistar. Þar eru presbytérar og fólk, sem heyrir ensku kirkjunni til, og aldrei hróflað við trúarskoðunum neins manns, fremur en á þeim ríkisskóla, sem vara- samastur er í þeim efnum, en hið almenna í kristindóminum látið lýsa inn í hugskot hinna ungu og verma hjörtu þeirra. Og af þessum skóla skyldi anmingja Islend- ingum vera svo mikill sálarháski búinn, að ófært væri að halda sambandinu áfram þess vegna. Engum kemur til hugar, aö það sé alvara; það er ekkert annað en yfirskyn. Svo þaðáað hafa verið af vorkunnsemi við mig, að eg var ekki blátt áfram rek- inn. Heilaga einfeldni! Skyldi það ekki sönnu nær, að vorkunnsemin hafi öll ver- ið við síra Jón; menn sáu, að ofsóknar- bletturinn yrði of augljós. Og vorkunn- semi við kirkjufélagið, — að bendla nafn þess við opinbera rangsleitni. Menn fundu, að þetta var ranglátt — hróplegt ranglæti, og að fyrir það tiltæki hefði kirkjuþingið orðið að athlægi frammi fyr- ir öllum heimi, það hefði mælzt enn þá verr fyrir. Afturgöng-ugreinin sýnir, hve mínum garnla vini og elskulegum bróður svíður, að hann í þessu ekki skyldi fá vilja sínum framgengt. Hann var sár út af því í Sam. í fyrra ettir kirkjuþing, hve vel hefði verið með mig farið þá, og hann er sár enn. Nú er næsta sporið að ta mig rek- inn úr kjrkjufélaginu. Það á nú ef til vill að verða síðasta afreksverkið. Þá er hreintrúnaðinum fullnægt og sópað svo rækilega fyrir dyrum, að hægt er að ganga glaður til grafar. Þá er minst á trúarofsann. Hann seg- ir, að eg sé að koma mönnum til að trúa, að hann “sé einhver sá argvítugasti trú- arofsamaður,sem nú er uppi á bygðu bóli veraldar, að minsta kosti sá versti þeirrar tegundar, sem birzt hefir í sögu íslenzkr- ar þjóðar“. Eg hefi aldrei talað neitt slíkt og aldrei hugsað. Sá framburður er helber heilaspuni, öfgar einar ogóvit— langt fyrir ofan mark;margir hafa slæmir verið. En í þessari sjálfslýsingu felast þá ofurlítil sannindi, þó eg hafi aldrei tekið þau fram, sumpart af óbeit á slikum lýsingum, sumpart af því að óþarfi er að taka fram það, sem öllum er augljóst, sumpart af meðfæddum klaufaskap; eg hefði aldrei fundið svona hnittileg orð. En láti hver sem vill hugatin hvarfla frá Horni á Melrakkasléttu og alla leið vest- ur á Kyrrahafsströnd, til að vita, hvort hann finni nokkurn íslending annan á fyrsta tíu ára bili tuttugustu aldar, er þessi lýsing eigi betur við um,og segi til, hvar hann nemur staðar. Nei, eg hefi alls ekki lifað eftir lögmál- inu: Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn; það er ekki satt og það skal reynt að forð- ast. Þó síra Jón fari með öfgar um mig, skal eg varast að fara með öfgar um hann og aldrei viljandi. Ummæli mín vildi eg hafa sem næst því, að sanngjarnir menn og óvilhallir gæti sagt: Hann hefir æðimikið til síns máls ; það er ekki gott að bera á móti þessu. Eg hefi á það bent,að trúvörn hans og kirkjuleg stefna væri nokkuð ofsafengin. Eg kannast við það. Eg hefi álitið það blátt áfram skyldu mína. Sú trúvarnarað- ferð, sem hann hefir mest yndi af að nota,

x

Breiðablik

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.