Breiðablik - 01.03.1911, Blaðsíða 11

Breiðablik - 01.03.1911, Blaðsíða 11
BREIÐABLIK 155 hennar vegna grafa upp gfamla Dionysoá- leikhúsiö, sem falið var á bak við kirk- juna þeirra, og það var eigú nokkur sála, sem átti fornfálegan sumarbústaö, og fór eigi að grafa upp úr kjallara-myrkrinu leifar af steintiglagólfum og bjóða henni að koma og sjá, með miklum fagurgala. Ókunnugt fólk hafði veriö í Diamante áður, en enginn tekið sér önnur eins völd. Nú var bráðum eigi sá maður til í bænum, er eigi varp allri áhyggju sinni upp á þessa ensku signorina. Henni hepnaðist jafn- vel að koma ofur litlu fjöri í Ugo Favara. Þér skiljið! Ugo Favara, lögmaðurinn, sem átti að hafa verið höfðingi; en heim- urinn átti að hafa verið baldinn, og hann kom heim, blásnauður maður. Hún notaði hann í umsýslu-erindum. Hún þurfti hans við og réð hann til sín. Aldrei hefir kona verið í Diamante, er rekið hefir aðra eins umsýslu og hún. Hún breiddi sig út eins og sóp-jurt á vori. í dag verður enginti hennar var, og á morg- un er hún orðin hávaxinn runnur. Brátt vissu menn eigi, hvar tylla mátti tá í Dia- mante, án þess að stíga á landareign hennar. Hún kevpti búgarða úti á lands- bygð, og hús í bænum. Hún keypti möndluskóga og hraunbreiður. Utsýni- blettirnir á Etna heyrðu henni til og fenin á sléttunum líka. Og í bænum tók hún að reisa tvær stórar hallir. í þeim ætlaði hún sér að búa og drotna yfir kongsríki sínu. Slíka konu getur aldrei oftar að sjá. Það var eigi nóg með alt þetta, hún ætl- aði sér líka að segja örbirgðinni stríð á hendur, — ó signore, Sikileyjar-örbirgð- inni sjálfri. Hvað hún jós út á hverjum degi og hvað hún bruðlaði á hátíðum! Flutningsvagnar, dregnjraf tveimur sam- oksuxum, fóru ofan til Cataníu og komu aftur hlaðnir klæðnaði og gjöfum. Hún hafði sett sér fyrir að láta alla ganga í órifnum fötum í þeim bæ, þar sem hún var drotning. En nú skuluð þér heyra, h vernig fór fyr- ir henni, hvernig endalyktin varð á bar- áttunni gegn örbirgðinni, — og konungs- ríkinu og hallargerðinni. Hún bauð öllum fátæklingum í Dia- mante til gildis ogeftir gildið til sjónleiks í leikhúsinu gríska. Það var líkast gömlu keisurunum. En hver hefirnokkuru sinni heyrt, að kona léti sér annað eins til hug- ar koma? Hún bauð öllum fátækum. Tveir blind- ir komu úr garðshliði gistihallarinnar og Asunta gamla frá dómkirkju-tröppunum. Þar var maðurinn frá pósthúsgarðinum, sem gekk með rauðan klút um hökuna, af því hann hafði krabbamein í andliti, og þarna var fábjáninn, sem opnar járn- hliðið í gríska leikhúsinu. Allir asnrek- arnir voru þarna og bræðurnir tveir, er sprengt höfðu tundurkúlu í æsku og mist hendurnar, og þar var örkumlamaðurinn með tréfótinn og stólasmiðurinn gamli, sem orðinn var of örvasa til að geta hafst nokkuð að. Það var svipleg sjón að sjá þá skríða fram úr fvlgsnum sínum, alla fátæklingana í Diamante. Gamlar konur, er sitja í dimm- um öngstrætum og spinna á snældu, voru þar, og líruleikarinn, sem á hljóðfæri engu minna en organ, og farand-inandólinleik- arinn frá Neapel, senr fullur var alls kon- ar fiáræðis. Allir augnveikir og þeir, er eigi áttu skýli yfir höfuð, þeir, er vanir voru að tína súrur á skurðabörmum til miðdegisverðar, steinsmiðurinn, er vann fyrir einni líru (72 aurum) á dag og átti sex börn fyrir að sjá, ölium hafði verið boðið og allir voru komnir til gildis. Það var örbirgðin, sem fylkti liði gegn þessarri ensku signorinu. Hver áannan eins her og örbirgðin? En í þetta eina skifti fekk þessi enska signorina unnið bug á honum. Hún hafði líka ýmislegt til hernaðar og sigurs. Hún hafði alt torgið, troðfult dúkuðum borðum. Hún hafði vínámur, sem lágu ofan eftir allri steinstéttinni, \ ið hlið dómkirkjunnar. Nunnuklaustrinu

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.