Frækorn - 30.06.1903, Blaðsíða 1
FRÆKORN.
HEIIYIILISBLAÐ MEÐ MYNDUM.
---*--$♦-
RITSTJÓRI: DAVID OSTLUND.
4. árgansur. Seyðisfirði, 30. júní 1903. 11-12. tölublað.
Merkir bindindismenn
— o —
III.
Magnúsprestur Jónsson,
hinn mesti bindindisfrömuður Islands á
hinni liðnu öld, var fæddur að Kristnesi
í Eyjafirði 31. marz
1828. Foreldrarhans,
Jón bóndi Jónsson
og kona hans, Sig-
ríður Davíðsdóttir,
voru ættuð úr Eyja-
firði. Þau voru fátæk
og áttu alls 9 börn,
Þá er séra Magn-
ús var fyrir innan
fermingu, fluttist hann
með foreldrum sínum
vestur að Víðimýri
í Skagafirði; bjuggu
þau þar, unz Jón
andaðist.
Snemma lýsti sér
hjá séra Magnúsi á-
köf löngun til náms,
og kom faðir hans
honum til kennslu
til séra Halldórs
Jónssonar, prests að
Glaumbæ á Langholti
í Skagafirði (síðar
próf. að Hofi í Vopnafirði). Þá er fað-
ir séra Magnúsar var dáinn, hugsaði
fólk hans naumast, að hann gæti haldið
námi sínu áfram, en sjáifur var hann á-
kafur og ófáanlegur til að hætta. Síðan
(árið 1846) komst hann í Reykjavíkur-
skóla, með hjálp og styrk góðra manna.
Á sumrin var hann í kaupavinnu, ýmist
við kennslu o. fl.
Hann útskrifaðist af lærða skólanum
1853 °g tók embættispróf á prestaskól-
anum 1857. Sama ár vígðist hann að-
stoðarprestur til séra Skúla Tómassonar
að Mula í Aðalreykjadal. 1860 var hon-
um veitt Hof á
Skagaströnd, 1867
Skorrastaðir í Norð-
firði. Árið 1883 var
honum veitt Laufás,
og þar andaðist hann
19. marz 1901.
Kona séra Magn-
úsar var Vilborg
Sigurðardóttir; hún
er enn á lífi. Þau
eignuðust 4 börn, er
upp komust, sem
eru: Jón, nú land-
ritari; Sigríður, nú
til heimilis í Reykja-
vík, ógift; Ingibjörg,
kona séra Björns í
Laufási; Sigurður,
hefur nýlega lokið
læknisfræðis-námi við
háskólann í Kaup-
mannahöfn.
Um bindindisstarf-
semi séra Magnúsar
mætti margt og mikið segja, því hann
var um lengri tíma mjög áhugasamur í
því efni. Hér skal drepið á fátt eitt.
í sjálfsbindindi með áfenga drykki gekk
hann sumarið 1874, en sumarið 1877
stofnaði hann bindindisfélag í Norðfirði,
sveiti sinn, og urðu þegar 12 meðlimir
Séra Magnús Jónsson.