Frækorn - 30.06.1903, Blaðsíða 7

Frækorn - 30.06.1903, Blaðsíða 7
FRÆKORN. 87 Trú Trúin er sambandsliðurinn milli. mannsins og guðsorðins. Því meira sem maðurinn vex inn í guðs orð og sameinast því, því sterkari verður trúin hjá honum. Þar sem orðið verð- ur í manni og hann trúir því, er trúin svo öflug, að hún sigrar syndina og heiminn. Kraftur trúarinnar reynist í freistingunni. Hinni sigrihrósandi trú fylgir ætíð þolin- mæði, Mikil trú er öflug, en þótt trúin sé ekki ætíð eins yfirgripsmikil eins og hún gæti verið, sýnir það ei, að hún er eigi sterk, því hún getur sigrað engu að síður fyrir það 1 því efni, sem hún snýst um. Trúin vex og þroskast og verður að gera það allt lífið. En þótt hún vaxi, verður hún þó í eðli sinu hin sama. Endimark trúarinnar er »aldurshæð Krists fyllingar.« Vegurinn er því: frá grund- vallaratriðunum í lærdómi Krists til algjörleik- ans. Við endurkomutíma Krists virðist trúin hjá þeim, sem halda sér við drottin, ná meiri þroskun en áður. Móttaka fagnaðarboðskap- arins,sem talað er um í Opinb. 14., 10. og7. kap., hefur slíkar blessaðar afleiðingar í för með sér. Til þess að greiða þessum boðskap veg til hjartna vorra, verðum vér að sjá Jesúm í orð- inu. Hann er sá, sem bæði byrjar og full- komnar trúna hjá oss. Hann er akkeri trú- arinnar. í honum eru fyrirheitin, sem trúin grípur yfir. Vonin er skilyrðið fyrir trúnni, en skilyrðið fyrir voninni eru fyrirheitin. I’ví meir lifandi sem vonin verður hjá manni, því meir lifandi og kröftug verður einnig trúin. Og því meiri fyrirheitin verða tyrir hjartað, því meiri verður einnig vonin. Tví meir sem maður íhugar fyrirheit guðs, því meiri og dýrmætari verða þau. Til þess að trúin eflist hjá oss, verðum vér að íhuga fyrirheit guðs, sem öll eru já og amen í Jesú Kristi. Já, hin stærstu og dýrmætustu fyrir- heit eru gefin oss, til þess að vér fyrir þau skyldum verða hluttakandi guðlegrar náttúru og forðast heimsins girnda spillingu. Kapp- kostum því að auðsýna í trú vorri dyggð, í dyggðinni þekkingu, í þekkingunni bindindi, í bindindinu þolinmæði, í þolinmæðinni bróður- kærleika, í bróðurkærleikanum kærleika til atlra. _____________ N. A. <9~eX9&W &&e) Heimatrúboð. Svar til »Norðurlands« m. m. frá Ástvaldi Gíslasyni. 16 bls., stærð 8vo -- Rvík 1903. — 10 au. »Norðurland« skrifaði í haust er leið all- langt mál um heimatrúboð og lagði mikið á móti þeirri stefnu, sem nefnd er því nafni og guðfræðiskandidat S. Ástvaldur Gíslason hefur innleitt hér á landi. »Norðurland« er annars ekki fyrst í röð blaðana, er andmælt hafa þessari stefnu. En »Norðurland« á skilið hrós fyrir fyrir að hafa fyrst allra blaða hreift þetta mál, svo nokkuð gagn hefur verið að, án vitleysis óóbtaskammarorða. Sum íslensk blöð hafa því miður alveg gleymt að sýna hóg- værð og stillingu í þes»u máli, og því hefur hr. Ástvaldi Gíslasyni ekki þótt vert að leggja út í neinar deilur við þau. Og er það auðvit- að alveg rétt gert af honum. — »Norður- Iand« þar á móti kannast ærlega við, að heima- trúboðið hefur mjög mikið gott áorkað í Danmörku og annarstaðar, en engu að síÖur telur það mikla annmarka á því. HerraAst- valdur Gíslason er ekki »Norðurlandi« sdm- þykkur í ýmsu af því, er í nefndu blaði hefur ftaðið um heimatrúboðið, og skrifar því rit það, sem netnt er hér að framan. Oss finnst hann tala þar með gætni og ofsalaust og kemur óneitanlega með margt, sem hver og einn, er vill kveða upp dóm um heimatpú- boðið (gjöra sér sanngjarna meining um það), getur ekki gengið fram hjá. — Að lokum skulum vér taka það fram, að viðkunnanlegra hefði verið, ef ritstjóri »NorðurIands« hefði ekki neitað að taka upp svar þetta í blaði sínu, en það kvað hann hafa gert. Tað er alltaf sjálfsagt að láta menn njóta málfrelsis. Tað er skylda gagnvart þeim, sem skrifað er móti, að láta þá verja sig eftir föngum, ogþað erskylda gagnvart almenningi, að honijm gefist færi á að sjá meir en eina hlið á hverju máli sem er. Gagnrýning: á páskaræðu séra Páls Sigurés- sonar eða alheimstrúin vegin á skáldm og Iéttvæg fundin. EftirLárus Jóhannsson. Rvík. 1903, 48 bls. 8vo. Rit þetta er að mörgu leyti betur ritað en flestir þeir munu gera sér í hugarlund, er Lárus þekkja. Hefði einhver lútherskur prest- ur ritað nákvæmlega hið sama — og varla er neitt í bókinni, sem lútherskur, kreddutrúr prestur hefði ekki getað sagt - , þá hefði bókin vafalaust vakið mikla eftirtekt; þetta verður nú líklega samt ekki, því Lárus á ekkert nafn og ekkert álit, og er hans eigin framkoma auðvitað orsök í því. En ritið sýnir ómótmælanlega, að stefna og skoðun sú, sem fram kemur í hinni nafntoguðu páskaræðu Páls heit. Sigurðssonar í Gaulverjabæ, er svo ósamboðin ritningunni sem framast má verða. Að Lárus, að voru áliti, gengur of langt, t. a. m. þegar hann talar um hinar endalausu kvalir í hegningarstaðnum, verður maður að virða honum til vorkunar, því að misskilning- ur hans á þessu eina atrðii stafar af því, að hann fylgir þar gömlu kirkjutrúnni, en hún er hvað þessu efni viðvíkur ekki úr ritningunni, heldur þvert á móti kennir guðsorð, að «sú sál sem syndgar, hún skal deyja.« Esek. 18, 4. — En að því leyti hefur Lárus rétt í »gagnrýningu« sinni, að hegningin komandi er afgerandi, það er að segja biblían heldur hvergi fram frelsun frá »hinni yfirvofandi hegn- ingu« í öðru Iífi, heldur: í dag er dagur hjálp- ræðisisins.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.