Frækorn


Frækorn - 11.10.1907, Side 2

Frækorn - 11.10.1907, Side 2
310 FRÆKORN Til mótmælenda. »Fað er óðs manns æði að setja munnmælasögur, sem hvorki hafa skipun guðs né fyrirheit, jafnhliða skipun Krists, sem bæði hafa boð guðs og fyrirheit, sem hafa náðina og sátt- mála hins eilífa lífs í sér varandi". — Apologi Augs- borgartrúarjátningarinnar. Sú grundvaliarsetning, setn mótmæl- endur hafa tekið fyrir trú og breytni sína, er þessi: »Heilög ritning, bæði hið gamla og hið nýja testameuti, að und- anteknum apókrýfisku bókunum, er hin eina uppspretta til þekkingar á hinum sáluhjálplega sannleika, hin eina regla og mælisnúra fyrir trú, liferni og von sann- kristinna manna, og hinn œðsti dómari í trúarefnum«. (Lisco: Hin postullega trúarjátning, bls. 255). Pessi aðalregla er og hlýtur að vera einkennisorð mótmælenda, og fylgd henn- ar einkenni þeirra. Yfirgefi þeir hana, eru þeir í raun og veru ekki lengur mót- mælendur og hljóta þá að sjálfsögðu aftur að snúa sér að kaþólsku kirkjunni. En með því að halda fast við þessa reglu, eru menn vísir um framför. Því að eins og guðs heilaga orð hefir inni að halda allan sannleika og alla speki guðs (Kól. 1, 25 — 27; 2, 2., 3.), svo hlýtur hver sá, sem trúir þvf og fylgir, að þroskast bæði í náð og þekkingu drottins. En það er mjög sorglegt, að margir, sem nefna sjálfa sig mótmælendur, ekki að öllu leyti halda fast við þetta dýrð- lega hnoss siðbótarverksins, heldur leggja mikla þýðingu í manna boð og venjur, sem ekkert eiga skylt við orð lifanda guðs. Kaþólska kirkjan hefir líka, síðan á dögum siðbótarinnar, oft borið mótmæl- endum þetta á brýn, og hún hefir gert það með réttu. Fáein af þeim mörgu hörðu orðum, sem í þeim tilgangi eru fram komin frá kaþólskum, má taka með hér. í kaþólskri bók á ensku, »A Treatise of Thirty Controversies*, finnum vér þessi orð: »Guðs orð býður, að hinn sjöundi dagur á að vera hvíldardagur drottins og haldast heilagur. Pér (mótmælendur) breytið honum í fyrsta dag vikunnar án sönnunar úr bíblíunni, að eins samkvæmt vorum erfikenningum. Sumir enskir purit- anar bera hér á móti, að heilagleiki fyrsta dagsins sé sannaður með ritningunni, þar sem hún nefnir fyrsta dag vikunnar: Post. g. 20, 7. 1. Kor. 16, 2; Opinb. 1, 10. Hafa þeir ekki spunnið ffnan þráð með því að vitna til þessara staða til sönnunar þessa atriðis? Gætum vér ekki fært betri sönnun fyrir hreinsunareldi, sálamessum, dýrkun helgra manna og þess konar fyrirskipunum, þá hefðu þeir góða ástæðu til þessaðhlæja að oss; því hvar stendur það skrifað, að það væri á sab- batsdögum, sem þessar samkomur voru haldnar? Eða hvar er það boðið, að þeir ættu að haldast heilagir? Eða — til að draga það saman — hvar er það boðið, að helgihald hins tyrsta dags ætti að af- leysa eða afnema heilagleika hins sjöunda dags, sem guð bauð oss að halda heilag- an til eilífðar? Ekkert þvílíkt er til í hinu ritaða orði guðs.« Pannig talar sú kirkja, sem mótmæl- endur mæla á móti, vegna þess að hún heldur svo mikið upp á maunasetniugar: hún talar með hörðum orðum við þá, sem vilja vera mótmælendur án þes's að hafna grundvelli hennar viðvíkjandi sunnu- dagshelgihaldinu. Frelsarinn segir sjálfur um þá dýrk- un, sem grundvölluð er á manna kenn- ingum: »Peirra dýrkun er til einskis,

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.