Frækorn - 11.10.1907, Blaðsíða 10
318
FRÆKORN
indalega er farið með þau, er næsta ótrú-
legt.
Stofnun þessa eiga S. d. adventistar.
Forstöðumaður er iiinn frægi dr.J. H.
Kellogg.
Biblíurannsókn.
/. lexia. — Réttlátur guð og frelsari:
1. Hverju hefir guð mesta þóknun á?Es. 65’
18. 19. Sálm 149, 4. Es. 62, 4. 5. Hvers
vegna kallast hann „vandlátur guð?“
2. Hvernig elskar gnð mennina? Jer. 31, 3.
Á hvern hátt hefir hann opinberað kærleika
sinn? Jóh. 3, 16.
3. Hvað eiga allir menn að gjöra? Sálm.
102, 19; Efes. 2, 10.
4. 'Hversvegna eiga menn að lofa og veg-
sama guð? Sálm. 102, 20. 21. Ilver vildi ekki
leysa þá sem ætlaðir voru til dauða? Es. 14,12.
16. 17.
5. Hvernig hvetur sálmaskáldið mennina til
að Iæra að þekkja guð? Sálm. 34, 9.
6. Hvernig annaðist guð þjóð sína í fyrri
daga? 5 Mós, 32, 9. 10.
7. Hvernig hugsar guð ennþá um börnsín?
Sálm. 18, 1, 4 —8.
8. Hvernig reynist guð mönnunum ? 5 Mós.
33, 27. Hvernig er hann vort athvarf?
9. I hverjum hafa þeir endurleystu gleði
sína? Es. 61, 10. Hvenærog yfir hverju gleðj-
ast þeir?
10. Hvaða hjartalag sýnir guð með því aftur
og aftur að bjóða mönnum frelsun? 2 Pét.
3, 15.
11. Hvað er það, sem hlýtur að komafram,
þrátt fyrir langlundargeð guðs? 2 Pét. 3, 9. 10.
Opinb. 22, 11. 12.
12. Hvað er þess vegna skylda allra manna?
Es. 55, 6. 7.
13. Hvaða ábyrgð hvílir á oss fyrst guð hef-
ir búið oss eilífa frelsun? Hebr. 2, 3.
Á sama hátt og Jesús.
Nokkrir menn höfðu sótt um upptöku í
meþódistasöfnuð einn í Bandaríkjunum, og það
var farið að tala við þá um ýmislegt upptökunni
viðvíkjandi. Upp á spurninguna: „Hvernig
óskið þér að vera skírðir?" svöruðu sumir:
„Eins og vant er við skíra ungbarna;" en
aðrir: „Með yfirausing." (í meþódistakirkjunni
eru báðar aðferðirnar viðhðfðar: að stökkva
vatni yfir höfuð þess, sem skírist, eða að ausa
vatni yfir allan líkamann.) — Kona ein var hin
síðasta, sem var spurð, og svar hennar var þetta:
„Á sama hátt og Jesús." En þetía svar virtist
ekki koma prestinum vel; því hann sagði: „þú
skilur mig vist ekki; égspurði: „Hvernigósk-
ar þú að skíratt?" Hún svaraði aftur: „Á
sama hátt og Jesús." „Þú skilur mig ekki,"
sagði presturinn að nýju; „á hvaða hátt óskar
þú að skírast?" I þriðja sinn varsvarið. „Á
sama hátt og Jesús." — „Bræður," sagði
presturinn, við verðum að taka hana niður til
fljótsins." (Zions Vægter.)
Á hœöunum.
Dr. Campbell Morgan, einn af helstu
ræðuskörungum Englands, segir í ræðu:
»Fyrir nokkrum árum hitti egá Suður-
Englandi kæran vin; tók eg eftir því mér
til mikillar hrygðar, að hann var að verða
veikur af mjög hættulegum sjúkdómi,
Löngu seinna, þegar eg var í Colorado,
hitti eg hann aftur og gat varla þekt
hann. Fjallaloftið í þessu landi hafði
gefið honum kraftana aftur, og bugað
sjúkdóminn. Hann sagðist kjósa fram-
vegis að vera á háfjöllum, til þess að
vera viss Um að fá ekki veikina aftur,
— Látum oss halda oss á hæðum trúar
og vonar, í loftslagi guðs anda, á sjónar-
hæðunum. f*á munum vér hafa löngun
til þess að seðjast á brauði himinsins.
þá munum vér og vaxa upp til aldurs-
hæðar Krists fyllingar.«
Leiðrétting.
Misprentast hefir í síðasta tbl. í fréttunum
um fjárveitingar til mentamála:
„Kennaraskólinn í Reykjavík 5,000 á að vera:
Kvennas kólinn í Reykjavík 5000.