Frækorn


Frækorn - 11.10.1907, Blaðsíða 13

Frækorn - 11.10.1907, Blaðsíða 13
FRÆKORN 321 vera viss um, María, að geri hún það af neyð, eru það hennar seinustu úr- ræði. Ressi aumingja kona, sem nú vinnur fyrir þig, hefir ekki altaf verið þvottakona. Hún hefir átt sælli daga. Reynsian hefir verið hennar íörunaut- ur. Æfisaga hennar er skráð skýru sorgarletri á hennar föla og tærða andliti. Borgaðu henni skilvíslega það, sem hún setur upp, og láttu hana ekki fara seint heim á kvöldin. »Þú ert snemma búin í dag, Krist- ín«, sagði frú M. þegar þvottakonan kom inn í snotra herbergið hennar til að taka móti kaupi sínu. »Já, guði sé lof. Þungri byrði er létt af hjarta mínu. Eg hélt eg þyrfti að vinna til kvölds, þótt eg geti ekki greiðlega mist mig að heiman«. »Er nokkur veikur hjá þér heima?« spurði gamla konan vingjarnlega. »Snemma í morgun«, svaraði vesl- ings konan með tárin í augunum, »fór eg frá barninu mínu dauðveiku, eg býst eins við, að það lifi ekki til morg- uns. Enginn er til að líta eftir því, nema níu ára gamall drengur. Eg þarf að flýta mér heim«. Hún tók við kaupi sínu og lagði af stað. Skömmu seinna heimsóttu þær báð- ar þvottakonuna — unga frúin, sem varla vissi, hvað sorg var, og gamla konan, sem hafði fengið hvítt hár í baráttu líisins. Þær komu inn til fá- tæku drykkjumannskonunnar og barna hennar, þar sem hún bjó í köldu og hrörlegu hreysi. Hún hafði ekki kom- ið of seint heim. Veika barnið, sem andaðist um miðnætti, þekti móður sína. Vina hendur tóku það frá hinni syrgjandi móður og veittu þvi nábjarg- irnar og færðu það í hvítan líkhjúp ; og meira gerðu þær — þær tóku þátt í sorg hinnar syrgjandi móður. »Móðursystir mín«, sagði frú M. ! með tárin í augnnum, »þó eg blessi þig svo innilega, hversu miklu fremur mun ekki veslings Kristín gjöra það. Hún á það þér að þakka, að hún kom ekki of seint. Þetta er sorgleg- ur, en um leið nytsamur lærdómur, sem eg mun aldrei gleyma. En var þessi viðburður, sem þú sagðir mér svona í raun og veru, eg meina alveg sannur?« »Sá viðburður er svo sannur og verulegur, að hann gjörði hár mitt hvítt, áður en eg varð þrítug, ogend- urminningin um hann hefir verið ein af mínum þyngstu sorgum. Það er engin furða, þó eg hafi meðaumkuu með aumingja þvottakonunni.« X. Eftirtektaverð orð. í síðasta tbl. »Bjarma« er þetta um »Andatrúna«, tekið eftir hinu góðkunna sænska íímariti »Facklan«: Dr. Richet sagði á fundi Sálnarann- sóknarfélagsins í Lundúuum 1Q05: »Prátt fyrir alla mögulega viðleitni mikilhæfra manna, þá væri það mesta fjarstæða, að trúa því, að þeir hafi komist að nokkurri skýlausri niðurstöðu. Þrátt fyrir alt það, sem gert hefir verið, hefir þó ekki tekist að komast svo langt, að þessi dularfullu fyiirbrigði verði talin með því, sem vís- indin hafi sannað. Það væri næsta óhyggi- legt að trúa því, að nokkuð slíkt ætti sér stað«. Blaðið (»Bjarmi») bætir svo við: Þetta er nú árangurinn af öllum þessum rannsóknum í 50 ár eða meira. Og þó trúa margir því, eins og nýju neti, að dularfullu fyrirbrigðin séu vísindalega sönn- uð, alveg eins og það, að jörðin gangi í kringum sólina eða flóð og fjara komi af áhrifum tunglsins. »Vilfist ekki«.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.