Frækorn


Frækorn - 11.10.1907, Blaðsíða 8

Frækorn - 11.10.1907, Blaðsíða 8
316 FRÆKORN Ómótmælanlegt. Það er ómótmælaniegt, að drekki eg aldrei áfenga drykki, verð eg aldrei drykkjumaður. Rað er ómótmælanlegt, að ef eg drekk áfenga drykki, getur svo farið, að mér fari að þykja þeir góðir, og að lokum get eg þá orðið drykkju- maður. Rað er ómótmælanlegt, að hóf- drykkjan er uppspretta ofdrykkjunnar, skólinn, sem allir drykkjumenn hafa lært í. Það er ómótmælanlegt, að allir of- i drykkjumenn hafa einhverntíma ver- ið hófdrykkjumenn, og að þeir hafa | að eins smátt og smátt orðið að of- drykkjumönnum. Rað er ómótmælanlegt, að ef ekki væri til nein hófdrykkja, þá væri ekki heldur til nein ofdrykkja. Það er ómótmælanlegt, að ef of- drykkjumaðurinn á að bæta ráð sitt, þá verður hann að forðast það, sem hefir gert hann að cfdrykkjumanni og heldur honum enn föstum við þann löst. Það er ómótmælanlegt, að ef of- drykkjumaðurinn heldur áfram að forðast þetta, þá verður honum bjargað. Það er ómótmælanlegt, að ef eg ætla að verða honum til góðrar fyrir- myndar í því skyni að fá hann til að bæta ráð sitt, þá verð eg sjálfur að vera bindindismaður. Það er ómótmælanlegt, að ef allir menn væru bindindismenn, þá væn enginn ofdrykkjumaður til og ekki heidur nein ofdrykkja. Það er ómótmælanlegt, að haldi menn áfram að drekka eins og þeir nú gera, þá eykst tala ofdrykkjumann- anna og ofdrykkjan heldur áfram. Hvað getur þá verið ómötmælan- legra en þetta, að það er skylda mín að vera bindindismaður? Og er það svo ekki ómótmæian- legt, að eg á að leitast við að fá alla félaga mína, vini og kunningja til að vera bindindismenn, til þess að þeir skuli aldrei leiðast út í ofdrykkju, enda þótt þeir séu hófdrykkjumenn sem stendur? (Hmbl. II., eftir Mskv.) Nokkur vanheilsu-ráð. 1. Að borða of mikið og of ótt. 2. Að gleypa í sig matinn og tyggia hann ekki almennilega. 3. Að drekka áfenga drykki. 4. Að vaka fram á nótt og fara seint á fætur. 5. Að hafa fötin þröng, svo að blóð- rásin heftist. 6. Að hreyfa sig ofh'tið. 7. Að vanrækja að þvo iíkamann nóg til þess, að svitaholurnar haldist opnar, 8. Að fara í skjóllaus spariföt úr hlýj- um hversdagsfötum. 9. Að svelta sig til þess að geta keypt sér stássleg föt. 10. Að mæða sig á óþörfum áhyggj- um og skapraunum. 11. Að taka inn meðul hvað lítið sem að manni gengur, og þó ekki sé nema ímynduð veiki. 12. Að hafa enga reglu á máltíðum. Eftir norsku blaði. Ef menn kjósa heldur heilsuráð, þá eru þau fólgin í því að forðast það, sem hér er ráðlagt.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.