Alþýðublaðið - 18.05.1963, Blaðsíða 2
j imatJOrsr: Giáll J. Astþórssor (áb* o» benedlkt Gröndal.—AöstoOanitstJóri
J ajörgviu GuCmuucisson - Fréttastjóri; Sigvaldi Hjálmarsson. — Símar:
; M 809 - 14 302 — 14 903. Auglýsingasími: 14 906 — Aðsetur: Alþýðuhúsið
i _ Fren-smiCja A'.þýOublaesins, Hverfisgötu 8-10 - Askrlftargjald kr. 65.00
i g mánuö_ 1 laLsaiiilu kr. 4 00 elnt. Otgefandi: AlþýSuflokkurinn
Þegar kommúnisfar
voru i ríkissfjórn
| KOIVlMÚNISTAR hafa nú aukið áróður sinn
; gegn divöl vaxnarliðsins í landinu en það gera þeir
fyrir hverjar kosningar. En auk þess endurtekur
, Þjóðviljinn dag eftir dag“ upphrópanir sínar um ár-
ás rfkisstj órnarinnar á lífskjör almennings og bæt-
j ir því við, að kommúnistar séu eini flokkurinn sem
| raunverulega beri hag alþýðunnar fyrir brjósti!
Umhyggja Þjóðviljans fyrir alþýðunni hljómar
; fagurlega. En skrif Þjóðviljans um kjör launþega
• eru lítt sannfærandi, er menn minnast frammistöðu
! kommúnista í vinstri stjórninni. Það stóð vissulega
j ekki á kommúnistum er þeir höfðu fengið ráðherra-
stóla að ráðast á alþýðuna. Fyrsta verk Hannibals
Váldimarssonar isem félagsmálaráðherra var að
gefa út bráðabirgðalög um bann við kauphækkun
um. Það var árið 1956. Ári síðar samdi Hannibal
önnur bráðabirgðalög, þ. e. um bann við verkfalli
f armanna. Áður en Hannibál gæti gefið þau lög út
hafði deilan um kjör farmanna verið leyst með
i frjálsum samningum. En það stóð ekki á Hannibal
eða kommúnistum yfirleitt að banna kauphækkan
ir og verkföll.
Það stóð heldur ekki á kommúnistum í vinstri
stjórninni að standa að álögum á almenning og
gengislækkunum. Vorið 1958 lagði vinstri stjórn-
in almennt yfirfærslugjald á allan keyptan og seld
an gjaldeyri en isú ráðstöfun jafngilti gengislækk-
un. Ráðherrar kommúnista samþykktu þessa ráð-
stöfun með glöðu geði. Lúðvík Jósepsson ráðherra
kommúnista í vinstri stjóminni gekk meirá að
segja svo langt sumarið 1958, er Dagsbrún átti í
kjaradeilu, að hann hét atvinnurekendum því; að
þeir fengju að hækka verð á framleiðsluvörum sín-
um sem svaraði kauphækkunum þeim, er Dags-
brún var að semja um. Lúðvík lofaði sem sagt at-
vinnurekendum því, að þeir fengju að taka fcaup-
hækkunina aftur. Þannig reyndust þeir Hannibal
og Lúðvík verkalýðnum, er þeir sátu í ríkisstjórn.
Þó má segja, að kommúnistar hafi gengið lengst,
er þeir samþykktu í flokksstjórn isinni haustið 1958.
að þeir skyldu ekki láta brottför hersins ráða úr-
slitum um aðild þeirra að ríkisstjórn. Að vísu lögðu
kommúnistar enga áherzlu á þetta ,,baráttumál“
sitt meðan þeir sátu í vinstri stjóminni. En með
umræddri samþykkt í miðstjóm sinni vörpuðu
þeir þessu máli sínu algerlega fyrir borð og á-
kváðu að meta ráðherrastóla meira en baráttu fyr-
ir brottför varnarliðsins.
Hins vegar hafa kommúnistar nú á ný tekið
upp öll sín gömlu baráttumál. Þeir em nú á ný á
móti hernum og eru aftur orðnir skeleggir baráttu
menn kauphækkana og verkfalla! Þeir eru líka ut-
an ríkisstjórnar.
HANNESÁHO
m
HAFNAR ERU MIKLAR fram-
kvæmdir í blágrrýtisbyrginu mikla
við Búsíaðavegr, skammt frá Golf-
skálanuni. Þar á að reisa nýjan
vatnsgeymi. miklu stærri og vild-
ugri en bann sem við höfum nolast
við til þessa, og öruggt er, að ekki
er undirstaðan slæm. Ég staðnæmd
ist þarna einn daginn og horfði á
VILDU VERK-
FALLSBANN
Framhald af 1. síðu.
kommúnista að halda kyrru fyrir.
Lúðvík Jósefsson reyndist ekki
neinn eftirbátur Hannibals í því
að gera ráðstafanir, er hlutu að
bitna á launþegum. í september
1958 var deila um kjör Dagsbrún-
ar. Hafði Lúðvík sem ráðherra
miklar áhyggjur af því, að atvinnu
rekstur mundi stöðvast vegna deil
unnar og mætti hann á mörgum
fundum með deiluaðilum. At-
vinnurekendur neituðu að fallast
á kauphækkanir nema þeir fengju
tryggingu fyrir því, að fullt tillit
yrði tekið til þeirra við verðlags-
ákvarðanir. Vildu atvinnurekend-
ur fá yfirlýsingu frá Lúðvík sem
viðskiptamálaráðherra að þeir
fengju að velta kauphækkuninni
yfir í vöruverðið.
Á fundi deiiuaðila með sátta-
semjara 21. september 1958 gaf
Lúðvík Jósepsson slíka yfirlýsingu.
Hann lofaði atvinnurekendum því
að þeir fengju að hækka verðlag
vegna kauphækkananna og eftir
að þeir höfðu fengið slíkt loforð
samþykktu þeir kauphækkun.
Með öðrum orðum: Lúðvík gaf at-
vinnurekendum loforð um, að þeir
mættu taka kauphækkunina aftur
af verkamönnum. ÞANNIG VAR
HUGUR LÚÐVÍKS TIL VERKA-
MANNA ÞEGAR HANN VAR
RÁOHERRA:
Þeir Lúðvík og Hannibal sýndu
það vel í vinstri stjórninni, að þeir
mátu ráðherrastólana meira en
„baráttumálin”. Þeir voru til-
búnir til þess að binda kaupið,
banna verkföll, taka kauphækkan-
ir af verkamönnum og samþykktu
gengislækkanir. Allt þetta voni
þeir tilbúnir að gera fyrir að fá
að sitja í ríkisstjórn.
Haustið 1958, er vinstri stjórnin
var að fara frá hélt Sósíalistaflokk
urinn fiokksstjórnarfund. Höfðu
kommúnistar þá mikinn áhuga á
því að vera áfram í ríkisstjóm,
annað hvort í vinstri stjóm á-
fram eða þá í stjórn með Sjálf-
stæðisflokknum sem einnig kom til
greina. Til þess að greiða fyrir
aðild sinni að ríkisstjóm gerði
flokksstjórnarfundurinn ályktun
með öllum greiddum atkvæðum
gegn 4 um það að ekki skyldi gera
brottför liersins að skilyrði fyrir
þátttöku í stjóm. ÞAR MEÐ
HÖFÐU KOMMÚNISTAR EINN-
IG FÓRNÁÐ HERMÁLINU FYR-
IR VON í RÁÐHERRASTÓLUM.
Nýtt vatnsból fyrir Reykvíkinga.
'Á’ Sprengingar og risavélar.
Gömlu mennirnir, sem hófu staríið'.
t ii>iiiifimiimmMm"""""""""""",""","l>"",","""""l",lllli(II"""",,»"""""IIIII(>-<l,ll,,l,,l>lllllll,,>«
loftpressu og pilt við bor, grafa í
blágrýtið til að undirbúa spreng-
ingar og ég fylgdist með því hvern
ig risavélar ýttu björgunum burt.
Mér er sagt, að þær gætu ýtt á
undan sér allt að átján smálestum.
ÞETTA BLÁGRÝTISSTÁL hefur
staðið opið árum saman. Ég man
gömlu mennina, sem sátu parna
ár eftir ár, vetur, sumar, vor og
haust, og hjuggu. Þeir réðust á
bergið, sprengdu kláppirnar,
hjuggu til grjótið í götur og bygg-
ingar. Þarna sat Bensi foamli á
Reyn, þarna sat Jóhann B. Snæ-
feld og kvað við raust eigin vísur
og stökk skellihlæjandi upp af
grjóthrúgunni ef hann sá til
manns.
ÞEIR IIÉLDU um steininn með
annarri hendinni en hjuggu með
hamri sínum ótt og títt. Þeir komu
snemma á morgnana, höfðu oftast
með sér bitann sinr. og nenntu
ekki heim í mat. Þeir njuggu upp
á akkorð, og Jóhann sagði við mig:
I „Ég geri það gott, lagsi, bara gott“.
Þá var liann á áttræðisaldri. Bensi
gamli var einhvers konar Bláskegg
ur, hann var miklu rólyndari en
Jóhann, en enginn skyldi gletlast
við hann eða hafa uppi kerskni.
Hann gat bitið frá sér í orði, svo
að undan blæddi.
ÞEIR HJUGGU árum saman og
þeir voru fleiri. Þeir fengu strengi
í handleggina, ríg í bakið, óþæg-
indi fyrir brjóstið, en hjuggu samt
og hjuggu — og það flögraði ekki
að þeim að gefast upp. Einn þeirra
tók andvarp og sló um leið. Steinn
inn valt úr greip hans, en höndin
var enn kreppt um sleggjuskaftið,
þegar læknirinn kom og sjúkra-
bíllinn.
JÁ, SVONA VORU ÞEIR. Svo
röltu þeir heim til sín á kvöidin,
hoknir í hnjáliðum, en ótrúlega
hraðfara, reru sjálfa sig áfram
með öxlunum. Þeir voru titilharð
ir, höfðu aidrei legið í kelerii við
sjálfa sig, aldrei diegið af sér,
aldrei gefizt upp, snýtt út úr sér
kvefi, jafnvel taki, veðurbarðir,
grátt -ryk í skeggi, augnabrúnum
og hári á sumrum í þurrki, en
krímóttir á rigningartímum. Þeir
svikust ekki um. Þeir voru ekki
augnaþjónar. Þeir unnu.
OG NÚ GRAFAST stáltennur
í blágrýtið. Nú ryðja risavélar
grjótinu burt. — Nú skal byggja
vatnsgeymi, mikið mannvirki,
vatnsból allra Reykvíkinga, vatns
ból fyrir framtíðina. Heill þeim,
sem hófu starfið. Heill Bensa á
Reyn. Heill Jóhanni Snæfeld.
Hannes á hornina.
Viðbúnaður...
Frh. af 16. síðu.
ar, og Kenýa African Democratic
Union, KADU, sem Ronald Ngala
stjórnar og Afríska alþýðuflokks-
ins, sem Paul Ngei stjórnar.
Búizt er við, að KANU muni
sigra. Kosningaúrslit verða ekki
kunn fyrr en 28. maí.
Mæðradagsblómin
Stórkostlegt úrval pottablóma. — Alltaf opið.
Gerið svo vel að líta irm í
Gróóurhús
Paul V. Michelsen
Hveragerði.
Hópferðir skólabarna
Athugið, að hópferðum skólabama er velkomið að skoða
gróðurhús mitt með leiðsögu kennara sinna og sjá blómin
og dýrin, apakötinn „Jobba“ og alla fuglana. -
Gróðurhús
Paul V. Michelsen
■ ■ : -y
Hveragerði.
RÚMAR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
KYNNIÐ YÐUR
MODEL 1963
Sími 24204
& co. P.O. BOX 1566 - REYK3AVIK
2 18; maí 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ