Alþýðublaðið - 18.05.1963, Side 3
RSIGU
Gordon Cooper tók örvandi
töflu áður en hann tók sjálfur að
sér hina flóknu stjóm á geimskip-
inu „Faith 7” á leiðinni niður í
gufuhvolfið í gærkvöldi. Ef hon-
um hefðu orðið á minnstu mistök
hefði hann brunnið til bana.
Læknir Coopers, dr. Charles
Berry, kveðst hafa sagt geimfar-
anum skömmu fyrir niðurferðina,
að hann ætti að taka nokkrar dex-
edrine-töflur áður en hann notaði
hemla-eldflaugamar til þess að
komast af braut umhverfis jörðu.
Dr. Berry gaf þessi fyrirmæli þeg-
ar ljóst var orðið, að tveir þriðju
lilutar sjálfstvritækianna störf-
uðu ekki vegna bilunar.
Cooper varð fyrsti bandaríski
geimfarinn, sem varð að skjóta
hemlaeldflaugunum með handafli
og hann varð einnig fvrsti geim-
farinn, sem varð að treysta á eigin
dómgreind í iendingunni og það
meira að segja eftir lengstu geim-
ferðina, sem nokkur bandarískur
geimfari hefur farið.
Það var vinur Coopers, John
Glenn geimfari, sem leiðbeindi
Cooper á niðurleiðinni, en einn
fyrri geimfara, Alan Shepliard,
kallaði niðurferðina sjaldgæft og
mikið afrek.
Skömmu eftir að Cooper hafði
verið tekinn um borð í bandaríska
skipið „Kerarsarge” hringdi Ken-
nedy forseti í hann og óskaði hon-
um til hamingiu með liina vel-
heppnuðu lendingu.
Cooper lenti eins og uppliaflega
var ráðgert 130 kílómetra suðaust-
ur af Mid\Vay kl. 23.24, en 1828
metrum nær „Kearsarge’ven fyrir-
rennari hans, Walter Schirra. Að
36 mínútum liðnum var skipið kom
ið þétt upp að geimhylkinu og
froskmenn festu flotholt við
„Faith 7” svo að geimhylkið sykki
ekki.
Nokkrum mínútum síðar gat
Cooper beðið skipherrann um
leyfi til þess að stíga um borð eins
og reglur mæla fyrir um. Þégar
„Faith 7” var vel fyrirkomið á
þilfari skipsins var geimfarið opn-
að og út steig Cooper, brosandi og
veifandi. Eftir skjóta læknisskoð-
un, sem lauk með því, að læknar
lýstu því yfir, að hann væri við
beztu hellsu, fékk yngsti geimfari
Bandaríkjanna sér góða máltíð og
gekk til náða til þess að hvílast út.
| Cooper varð að taka að sér
stjórnina á „Faith 7” eftir að hafa
verið 29 klukkustundir í geimn-
um og gert venjulegar æfingar.
Síðustu fimm tímana varð það
geimfarinn sjálfur, sem stjórnaði
geimskipinu. Þegar honum var
skvrt frá því, að hann yrði að kom
! ast sjálfur út af braut og inn í
gnfuhvolf jarðar með aðstoð hand-
stillingarinnar, svaraði Cooper að-
eins: Það er fínt.
Bilunin f sjálfstýritækjunum
varð til þess, að uppi var fótur og
fit á Kanaveralhöfða þar sem
tæknifræðingar, vísindamenn og
: fvrri geimfarar lögðust á eitt nm
! að finna lausn á gallanum. Við
notuðum hveria einustu bók um
peimferðir. sagði stjórnandi eeim-
ferðar Coopers, Walter Williams.
F.inn af yfirmönnum Mercnry-
tilrnvnarinnar, Christonher Kraft,
s<ur«i í dasr. að „Faith 7” hefði get-
að verið á lofti i 7 daga og hæsrt
væri n-l hrevta ný.iu Mereury-
e-eimhvlki með tilliti til slíkrar
lantrferðar, en ef sú ferð yrði far-
in vrði fiöenrra-daga meti Rússa
slerið víð. Dr. Kraft sagði, að búa
yr*i slíkt geimfar meiri hirgðnm
vat.ns og matar, stærri rafhlöðum
og öðrum hjálpartækjum.
! Hann lagði áherzlu á, að ekki
en Hann lagði áherziu á, að ekki
væri ætlunin að fara fleiri eins-
mannsferðir út í geiminn áður en
Gemini-tilraunin verður gerð, en
hún gerir ráð fyrir, að geimfari
með tveggja manna áhöfn verði
skotið á næsta ári. Við eigum að
vísu varageimhylki af Mercury-
gerð, þannig að undirbúa mætti
nýja geimferð eftir fimm, sex
mánuði, en ekki verður hægt að
taka afstöðu til þessa fyrr en unn-
ið hefur verið úr öllum upplýs-
ingum úr ferð Coopers, sagði
Kraft.
Meðan Cooper er um borð í
„Kearsarge” á leið til Hawaii segir
hann vísindamönnum frá reynslu
slnni. Þyrla mun flytja hann til
Hickham-flugvallar, þar sem kona
hans Trudy og dæturnar Camela
og Janita munu bjóða hann vel-
kominn, en þær eru þangað komn-
ar frá Texas. Mikil hátíðahöld
verða á Hawaii til þess að fagna
Cooper. Þvi næst mun Cooper
vera nokkrar klukkustundir í friði
og ró hjá fjölskyldunni áður en
hann heldur flugleiðis til Kana-
veralhöfða.
Sigurferð Coopers til Washing-
ton verður eins mikilfengleg og
för stjórnmálamanns. Hann kem-
ur með þotu til Andrews-flugvall-
ar á þriðjdaginn og þaðan fer hann
með þyrlu til svæðis, sem er
skammt frá Hvita húsinu í Was-
hington. Því næst ekur hann með
heiðursfylgd til forsetabústaðar-
ins, þar sem Kennedy forseti mun
bjóða hann velkominn.
KENNEDY MUN SÆMA
HANN HEIÐURSMERKI
CAPE Canaveral, 17. maí (NTB).
Kennedy, Bandarikjaforseti, mun
sæma Gordon Cooper, geimfara,
æ'^-.ta lieiðursmerki geímferða-
íf jóa-narinnar bandarísku og að
því loknu mun Cooper fara sigur
för um Götur Washington-borgar
ásamt heiðursverði úr hernum og
lúðrasveit.
Krústjov, forsætisráðherra Sov-
étríkjanna, sendi í dag Kennedy,
forseta, skeyti með innilegum
heillaóskum vegna velheppnaðrar
geimfarar Coopers. Segir Kriist-
jov, að Cooper hafi með för sinni
lagt fram skerf til könnunar geims
ins. „Sovétþjóðirnar senda hinum
hugrakka, ameríska geimtara
heiilaóskir“, segir í skeytinu.
En í scndingu á rússnesku í dag
sagði sovétútvarpið, að Bandaríkja
menn stæðu Rússum langt að baki,
bæði að því er varðaði ferðir um
hverfis jörðu, stærð geimfara og
r)áhvæmni í í,-amkvæmd þeirra
verkefna, sem tekin væru fyiir.
. Lowell, forstjóri í Jodrell Bank
rannsóknastöðiun’, sagði í dag, að
afrek Coopers hefði mjög mikla
vísindalega þýðingu.
Cooper korn aftur til jarðar frá
braut sinni umhverfis jörðu og
studdisit vt'ð sjánde;ldarhringinn
og stjörnurnar. — Honum tókst
þetta svo vel, að ekki skeikaði
nema fáum sekúndum á leiðinni
til jarðar frá því, sem verið liefði,
ef sjálfvirku tækin hefðu unnið
verkið.
HEILA
SPUN
EINS og skýrt var frá í blaðinu
í gær, var kært til rannsóknarlög
reglunnar mál vegna 8 ára drengs,
er kvaðst hafa orðið fyrir árás
13—14 ára gamalla pilta, sem
hefðu varpað að honum einhvers
konar sprengju með þeim aHeið-
ingum, að hann brenndist í and-
liti. Vakti mál þetta mun meiri
eftirtekt en ella, þar eð diengur-
inn hafði skýrt frá þvi nokkru
áður, að þessir sömu piltar hefðu
ráðist áhann og kveikt í buxuni
hans, svo að hann hlaut hruna-
sár af.
Nú hefur komið í ljós, að frá-
sögn drengsins um „árás“ þá, er
blaðið skýrði frá í gær, cr neila
spuni einn, og sannaðist það af
vitnisburði trésmiða, er voru við
I vinnu skammt frá þeim stað, er
j „atburðurinn" átti sér stað. Eftir
1 þeim vitnisburði að dæma, mun
j drengurinn hafa farið inn í mann
I lausan skúr, þar sem var cpinn
eldur. Mun hann hafa skvett olíu
; yfir eldinn og við það brennst í
1 andliti. Hefur hann orðið mjög
tvísaga, en. ekki viljað bcra til
baka framburð sinn um fyrri at-
burðinn.
ISLANDSSTJÓRN BÍÐUR
Framhald af 16. síðu
væri fyrir lítil ríki að gerast með-
limir EBE, svaraði Luns með því
að benda á dæmið frá febrúar
1961, er Hollendingar beittu neit-
unarvaldi við fyrirætlanir de
Gaulles og Adenauers um sam-
einingu Evrópu, og hins vegar er
Frakkar neituðu Bretum um inn-
göngu. Þessi dæmi sýndu, að á-
kvæðið um samróma ákvarðanir
slægi slíkan varnagla, að engin
hætta væri i því fólgin að vera
aðili. Afstaða bandalagsins sem
heildar væri alltaf skoðun þess að-
ilans, sem skemmst vildi ganga í
liverju máli, sbr. afstöðu banda-
lagsins til „Kennedy-hrings” um-
ræðnanna í Genf á vegum GATT.
Aðspurður kvaðst ráðherrann ekki
lelja Frakka áfjáðasta í að ganga
tií móts við aðra í því máli.
í ýmsum erlendum blöðum hef-
ur oft verið ymprað á því, að óvild
ríkti milli dr. Luns og de Gaulle
Frakklandsforseta. Var ráðherr-
jann spurður um þetta á blaða-
mannafundinum í gær, og sagði
jhann þá, að samskipti þeirra væru
öll hin kurteislegustu. Hann kvað
það nauðsynlegt, þegar menn fengj
ust við alþjóðamál, að láta þau
ekki hafa of mikil áhrif á sig per-
sónulega. Slíkt gæti komið í veg
fyrir hlutlægt mat á hlutunum.
) í sambandi við líkur á því, að
Bretar fengju aðild að EBE, sagði
ráðherrann, að líkurnar hefðu ekk
ert batnað, síðasti fundur út af
málinu hefði valdið miklum von-
brigðum. Engar horfur væru á því,
að -Frakkar breyttu hinni nei-
kvæðu afstöðu sinni. Auk þess
kæmi svo til óvissan, sem væntan
legar kosningar í Bretlandi sköp-
uðu. Hins vegar benti hann á, að
menn væru dauðlegir, og þessi mál
kvnnu að leysast.
„Njósnamál Þjóö-
viljans upplýst"
VÍSIR flettir í gær ofan af „njósna
máli” Þjóðviljans. Skýrir blaðið
frá því, að skýrslur þær, er Þjóð-
viljinn hefur undanfarið birt og
kallar „njósnaskýrslur” séu einka-
plögg, er maður að nafni Ásgeir
Magnússon hafi skrifað sér til
dundurs fyrir nokkrum árum. Hef-
ur maðurinn áhuga á ættfræði og
mun þar að finna skýringu þess,
að hann hefur skrifað umræddar
upplýsingar hjá sér um einstaka
! menn.
! Plöggunum var stolið úr íbúð
Ásgeirs og hefur hann nú kært
þann stuld til rannsóknarlögregl-
unnar. Daginn sem síðasta „njósna
skýrslan” birtist í Þjóðviljanum
9. mai gaf Ásgeir Magnússon svo-
hljóðandi yfirlýsingu:
„Gögn þau í Þjóðviljanum, sem
birzt hafa þar undanfarna daga
eru stolin frá mér. Þau eru nokk-
urra ára gömul og erú aðeins skrif-
uð mér til dundurs og minnis. Mun
stuldurinn verða kærður til rann-
sóknarlögreglunnar.
Reykjavík, 9. maí 1963”.
v
ÞJÓÐVILJINN hóf birtingu skjala
Ásgeirs Magnússonar 5. maí sl.
og sagði, að þau sönnuðu „njósn-
ir bandaríska sendiráðsins um ís-
lendinga”. Hefur nú- verið upp-
lýst, að kommúnistar hafa hér
gengið feti framar en nokkru
sinni fyrr í áróðri sinum. Þeir hafa
hér vísvitandi logið upp njósna-
sögum um íslendinga og banda-
ríska sendiráðið og þannig hafa
þeir ætlað að leiða athyglina frá
njósnum, sem hafa verið SANN-
AÐAR á kommúnista hér.
Þessi „kosningabomba” komm-
únista er nú sprungin í höndunum
á þeim og hefur sannað það, að
kommúnistar svífast einskis í bar-
áttú sinni.
v
BLAÐIÐ ræddi í gær við Loga
Einarsson, yfirsakadómara, en mál
þetta heyrir undir hann. Logi
| sagði, að málið væri í rannsókn,
og Ásgeir hefði verið yfirheyrður.
Annað vildi hann ekki segja.
v-
ÞÁ RÆDDI blaðið við Magnús
Kjartansson, ritstjóra Þjóðviljans.
Er hann var spurður hvað hann
ASGEIR MAGNUSSON
Vísis, sagði hann: „Þið getið lesið
allt um það í Þjóðviljanum á
vildi segja um fyrmefnda frétt morgun!” þ. e. í dag.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
18. maí 1963 3