Alþýðublaðið - 26.05.1963, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 26.05.1963, Qupperneq 4
INGÓLFS-CAFÉ Bingó í dag kl. 3 Meðal vinninga: Teak-kommóða — Svefnpoki — Bakpoki — 12 manna kaffistell o. fl. Borðpantanir í síma 12826. Frá Skólagörðum Reykjavíkur Böm, sem hafa í hyggju að starfa í skólagörð- unum í sumar, komi til innritunar í garðana mánudag og þriðjudag kl. 1—5 e. h. S'kólagarðarnir eru í Aldamótagörðum við Miklatorg, og Laugardal við Holtaveg. Öllum bömum ó aldrinum 9 til 13 ára heimil þátttaka. Þátttökugjald er krónur 200,00 og greiðist við innritxm. GARÐYRKJUSTJÓRI ' ' REYKJAVÍKUR ÚTBOÐ Tilboð óskast í efni og uppsetningu hitavatns- og hrein- lætistækja í Félagsheimilisbyggingu Egilsstaðakauptúns. Útboðsgagna má vitja í skrifstofu vora gegn kr. 300,00 skila try_ggingu. Innkaupastofnun ríkisins Ránargötu 18 Móíorvélstjóra- félag íslands heldur aðalfund að Bárugötu 11 laugardaginn 1. júní kl. 14. FUNDAREFNI: 1. Aðalfundur. 3. Samningar. Stjómin. Tilboð óskasf LJÓIER HUN GRY ÞJÓÐVILJINN sagði á dögunum, að komm- únistagrýlunni hefði verið sleppt lausri og ætti að vinna Alþýðubandalaginu tjón í kosningabar- áttunni. Tíminn hafði sem sé leyft sér að segja kommúnistum til syndanna, (og höfðingjunum á rússneska útibúinu rann heldur en ekki í skap. Hingað til hefur verið sama allt kjörtimabilið, hvort menn hafa lesið Tímann eða Þjóðviljann. En nú fara kosningarnar óðum í hönd, og þá er enginn annars bróðir í leik — jafnvel ekki við- bótarþingmaður kommúnista, Þórarinn Þórar- insson. Ásakanir Tímans í garð Alþýðubandalagsins hafa miklð til síns máls og munu raunar flestar gamalkunnar. Hitt kann vel að vera, að Þórarinn Þórarinsson sé hér að rjúfa gnð og sættir. For- ustumenn Alþýðubandalagsins hafa sennilega treyst því og trúað, að Framsóknarflokkurinn sæi þá í friði í kosningabaráttimni. En tilætlun- arsemi maddömunnar er löngum söm við sig. Nú vill Framsóknarfloltkurinn gjarna hremma at- kvæði af Alþýðubandalaginu. Hann er bæði ófyrir leitinn og eigingjam. Og þá er ekki um annað að ræða en Tíminn og Þjöðviljinn hárreytist með viðeigandi munnsöfnuði. Ófagur lestur.______________________________ ÁSAKANIR Tímans í garð Alþýðubandalags- ins reynast ekkert smáræði: Því er stjórnað af kommúnistum, og þeir eru ábyrgðarlausir í inn- anlandsmálum, uppboðsmenn, sem engan vanda leysa, en hafa í frammi hvers konar sýndar- mennsku. Og þeir eru sízt skárri, þegar sögunni víkur að utanríkismálum: Alþýðubandalagið er óþjóðlegur flokkur, háður framandi en viðsjár- verðu stórveldi, situr á svikráðum við frelsi okk- ar og lýðræði, afsakar harðstjórnina og kúgun- ina fyrir austan járntjald og gerist þannig sam- sekt valdhöfunum þar. Slíkar og þvílíkar eru syndir Alþýðubandalagsins. Og Tíminn gleymdi vitaskuld ekki að taka fram, að stefnuskrá Alþýðubandalagsins sé mark laust plagg. Hann tilfærði nokkur atriði hennar og útskýrði síðan, hvað væri raunverulega við átt. Þetta var ófagur lestur: Alþýðubandalagið siglir undir fölskum fána, þykist vera lysti- snekkja, en er í raun og veru ræningjaskip. Vondur félagsskapur. ALLT ÞETTA er vægðarlaus ádcila, en Alþýðu bandalagið á naumast annars von. Fengin reynsla sýnir og sannar, að þessar ádeilur Tímans hafa við rök að styðjast. Þórariun Þórarinsson hefur ekki búið kommúnistagrýluna til af mannvonzku sinni. Þetta er upptalning á ávirðingum Alþýðu- bandalagsins, en þær gera kommúnista óalandi og óferjandi í íslenzkum stjórnmálum. Hitt er harla undarlegt, að Framsóknarflokk- urinn skuli hafa staðið við hlið Alþýðubandalags- ins í ofstækisfullri en málefnalausri stjórnarand stöðu allt kjörtímabilið, ýtt undir ábyrgðarleysi kommúnista í innanlandsmáliun og þagað yfir þjóðhættulegri stefnu þeirra í utanríkismálum. Framsóknarflokknum virðist ekki hafa verið sjálf rátt eftir haustkosningar 1959. Nú vaknar hann allt í einu við vondan dramn, þegar líður að kosningum. Hann hefur verið í versta félags- skap, sem hugsast getur. Og þá laumast við- bótarþingmaður kommúnista yfir í fylkingu sinna manna að vara þá og þjóðina við ósköpunum. Bara skrípaleikur? ÞJÓÐVILJINN vcrður að gera sér það að góðu * að sæta þessarl meðferð af hálfu Framsóknar- flokksins. Alþýðubandalagið á ekki annað skiliff. Hirtingin er verðskulduff. Hitt gegnir furðu, ef vöndurinn klórar ekki Framsóknarflokknum í leiðinni. Það hlýtur að teljast mikið ábyrgðar- leysi að hafa verið í fóstbræðralagi við annan eins flokk og Alþýðubandalagið er aff dómi Tím- ans. Þess vegna dettur manni í hug, aff kannski sé þetta bara skrípaleikur til aö reyna að blekkja kjósendur. Framsóknarflokkurinn vill í kappi kosningabaráttunnar njóta fylgis þeirra lýffræð- issinna, sem stutt hafa hann undanfarin ár, og bæta jafnframt við sig atkvæðum frá Alþýðu- bandalaginu. Þá man Þórarinn Þórarinsson allt í einu eftir kommúnistagrýlunni og bendir á hana. „Ljót er hún Grýla, en gift er hún samt“ — segir þar. Flokkurinn, sem Tíminn ber þannig og skammar, hefur vakað og sofið í náffarfaðmi maddömunnar f jögur ár. Ætli Alþýðubandalagið og Framsóknarflokkurinn kynnu ekki að sættast eftir kosningar, ef þessir flokkar fengju sam- eiginlegan meirihluta? Þórarinn er Iéttur á fæti og fljótur í förum. Auk þess ætti Eysteinn að komast á skíðum yfir til kommúnista, ef hann vildi. — Herjólfur. Fyrir börnin í sveitina Gtallabuxur Peysur Mittisblússur Skyrtur Nærföt og sokkar Orðsending til alþýSuflokksmanna og annarra stuðnlngsmanna A-listans. Fjölmargir kjósendur Alþýðuflokksins dveljast nú erlendis að venju. Þeir stuðningsmenn flokksins, er kynnu að þekkja einhverja þeirra, eru eindregið beðnir að skrifa þeim hið fyrsta og hvetja þá til a® kjósa. A-LISTINN er listi Alþýðufiokksins í öllum kjördæmum. Utankjörstaðakosning erlendis fer fram hjá ræðismönnum og sendiráðum á eftirtöldum stöðum: Tilboð óskast í hvalveiðibátana Hval I og Hvai II, þar sem þeir liggja ketillausir við bryggju síldarverksmiðjunnar á Seyðisfirði. RÚDOLF Nánari upplýsingar í síma 11365. Tilboðum sé skilað í pósthólf 916, Reylcjavík, fyrir 10. júní n.k. Síldarverksmiðjur rfldsins. Laugavegi 95 Sími 23862. Bandaríkin: Washington; Chieago; Grand Forks, North Dakota; Minneapolis, Minnesóta; New York; Porland, Oregon; Seattle, Wash. Kanada: Toronto, Ontario, Vancouver, British Columbia, Winnipeg, Manitoba.. Noregur: Osló. Svíþjóð: Stokkhólmur. Sovétríkin: Moskva. Sambandslýðveldið Þýzkaland: Bonn, Lúbeck. Bretland: London, Ed- inburg-Leith, Grimsby. Danmörk: Kaupmannahöfn. Frakklandi; ■°arís. Ítalía: Genova. 4 26. maí 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.