Alþýðublaðið - 26.05.1963, Qupperneq 13

Alþýðublaðið - 26.05.1963, Qupperneq 13
INGU ÞARNA eru þær allar stilltar, dömurnar, sem kepptu um titlana Fe&ursta stúlka ís- lands 7 9fl3, otr Fegurðardrottn ing Reykjavíkur 1963, á föstu- dagskvöldið í Súlnasalnum í Hótel sögu. Frá vinstri: Theodora Þórðar óttir, Thelma Ingvarsdóttir, Jó- hanua Pálsdóttir, Sonja Egils- dóttir, María Ragnarsdóttir og Gunnhildur Ólafsdóttir. Því miður getum við ekki birt úrslitin í blaðinu í dag, þar sem fegurffarsamj^eppmn fór fram í gærkvöldi, en blað- ið fór í prentun fyrir kl. Ljósm. Alþýðubl. J. Vllberg. ALDREI Franh. af 3. síðu maður hefur getað veitt sér meira á síðari árum en fyrr. Nú getur maður valið um margar tegundir og gæðaflokka, hvort sem farið er í matvöru, vefnað ar- eða skóverzlun. Ég man þá tfma, þegar skömmtunin var að drepa fólk ið, og maður varð að halda á spöðunum af snerpu til þess, að matur og klæði hrykki til á fjölskylduna. Ég man þá tíma þegar ávext ir voru ófáanlegir nema rétt fyrir jólin. Jafnvel þurrkaðir á- vextir fengust ekki frekar en roðasteinar eða gull, og þá sjaldan þeir komu, voru þeir rifnir út samdægurs. Nú fæst allt þetta árið um kring, og enginn þarf að hrinda öffrum í biffröðum eft- ir nauffsynjavörum. Að vísu eru ávextir dýrir nú, en fólkið hefur efni á að kaupa þá, þaff virðist hafa efni á að kaupa allt sem því dettur í hug. Er þá ekki allt í lagi? Sumt hefur lækkað stórlega, þar á meffal matvörur, Fyrir nokkrum dögum keypti ég súr ar asíur til að hafa með kjöti. Ég kevpti eina krukku, og dró upp f jörutíu lirónur til að borga. En afgreiffslumaðurinn hristi höfuffiff og sagffi, að nú kost- affi krukkan ekki nema 16.30 í stað 36 króna áffur. Þetta er mikil Iækkun á matvöru. Ótrú lega mikil miðuð við ekki meira. magn en er í einui krukku. Nú, vöruvaliff. Ég get nefnt eitt dæmi, sem sannar hve það BETRA er mikið. Fyrir nokkru vóru hjá mér dönsk hjón, sem ég gekk meff í búffir m. a. Þegar við vorum að skoða i gluggana á matvöruverzlunum hrópaði konan upp yfir sig: Hún haföi aldrei séð þvílíkt úr val. Hún hafði aldrei séð jafn- mikið af búðingum, ávöxtum og matvörum yfirleitt. Hún varð bókstaflega veik, þegar hún sá, hvað íslenzkar húsmæff- ur höfffu úr að moða. Hún hafði aldrei kynnst þessu í Dan- mörku. Og að lokum keyþti hún fleiri pakka af köldum búðing- um, sem fæst mikið af hérna og eru einkar handhægir og ó- dýrir. Hún flutti þá með sér yfir hafiff til Danmerkur og sagðist ætla að sýna vinkonum sínum þar eitt lítið dæmi um þá paradís að ganga í búffir á íslandi. Þetta sagffi íslenzka húsmóð- ir, ein úr þeirri stétt, sem er fróffust allra um það, hvernig er að verzla á íslandi á árinu 1963, þegar kommúnistar blása í kaun, og framsóknarmenn berja lóminn yfir harðæri. NATO Framhald af 5. síðn. áhuga á því, að því vcrði ekki lýst yfir, að hún sé upphafið aff marghliða kjarnorkuherafia. í umræðunum verffur einnig drepiff á marghliða áætiunina, og þar gefst tækifæri til þess að gera ljósa grein fyrir við- horfi Norffmanna. Ástandiff er nú þannig, að Frakkar, Danir og Norffmenn eru eindregið and vígir hcnni. Bretar eru í raun- inni einnig andvígir henni, en geta ekki látiff það í ljós, þar eff núverandi stjórn teiur sig bundna af Nassau-tilkynning- unni. Stjórn Verkamannaflokks- ins verður aftur á móti ekki bimdin af Nassau-samningnum. Þar sem skoðanaágreiningur inn innan NATO er svona mik- ill, er erfitt aff sjá aff marghliða hepaflinn geti nokkurn tíma orðiff að veruleika. Vöruúrval t'ramhald af 3 siðu vefnaðarvöruverzlun. Haukur Jacobsen er búinn aff standa fyrir verzluninnl £ yfir 28 ár, en sjálf hefur verzlunin starf að síöan árið 1906. — Vöruúrvaliff hefur aldrei verið meira en núna. Það ei satt, sagffi Ilaukur, og um vöru gæðin þarf enginn að efast. Tollabreytihgin er eitt stærsta skref í framfaraátt, sem stig- ið hefur verið í verzlunarmál- um. A3 henni er stórbót. Nú eru vörurnar skemmti- legri en áður, það er meira fyrir hinn alinenna kaupauda. Þó er margt eftir til úrbóta, og er ekki að efa, að fullur viljl er fyrir hendi til að gera allt, sem hægt er til þess, að fullkomiff réttlætl geti ríkt í sambandi viff verzlunarmálin al- mennt. Satt er það, að gífurleg liöft hafa verið leyst, en þó hefur vefnaðarvaran einhvern leg- inn farið varhluta af þeirri los un að nokkru leytl. Til dæmis er bómullarvaran heft ennþá. Það þarf að gefa álagningu frjálsa. Að því ber að stefna. Ég er viss um, a'ð vöruverff hækkar ekki við þá ráðstöfun. Þá getur hagur kaupmanna orð ið betri, vegna hagstæffari vöru kaupa o. fl. Þetta þarf ekki að tákna neina vöruverðhækkun. Jú, vissulega er búið að gera margt, en þó er fleira eftir. Og þaff verðum viff aff miða við að bæta. F-ramkvæmdir Framhald af 1. síðu. - 1964 800 — 1965 800 — 1966 800 — Fjárfesting í mannvlrkjvm og byggingum hins opinbera er sem hér segir: 1957 672 millj. 1958 705 —■ 1959 741 — 1960 736 — 1961 687 — 1962 786 — 1963 980 — 1964 1210 — 1965 1210 — 1966 1210 — Alþýðublaðið vill undirstrika það, að hér er um sambærilegar tölur að ræða, þ. e. allar tölur eru á verðlagi ársloka 1962. Töl- urnar leiða það í ljós, að þegar í tíð núverandi ríkisstjórnar hafa framkvæmdir stóraukizt, en ráð- gerð er, samkvæmt framkvæmda- áætluninni enn meirl aukning. — Sýna þessar tölur bezt, hversu miklar blekkingar eru í áróðii stjórnarandstöðunnar um það, að framkvæmdaáætlunin boði sam- drátt. Hið rétta er, að aldrei hefiir verið lögð fram meiri uppbygg- ingaráætlun en einmitt framkv.- áætlunin. En forsenda jiess, a3 i unnt verði að halda þá áætlun, sem framkvæmdaáætlun ríkisstjórnar- innar felur í sér er sú, að unnt verði að halda áfram viðreisnar- stefnu ríkisstjórnarinnar. Krústsjov Frh. af 1. síffu. Castros forsætisráðherra, sem gefin var út í dag. Castro hefur dvalizt í Sovétríkjunum í tæpan mánuð. Þeir Krústjov og Castro segja i yfirlýsingunni, að þeir séu sam- mála um að Kúba fái aukna efna- hagsaðstoð frá Rússum. Rússar samþykkja að greiða hærra verö fyrir kúbanskan sykur, en verð sykurs á heimsmarkaðnum hefur hækkað. Einnig segjast þeir vera sam- mála um að leysa beri deilumál þjóða án styrjalda. Þetta er talið tákna fylgi Kúbubúa við Rússa £ deilum þeirra við Kínverja. Kínverjaofsókn- ir í Indónesíu (NTB—Reuter) Indónesíustjórn hefur bælt niður öldu mótmælaaffgerða gegn Kín- verjum og ofbeldisverk á Java, Súmötru og Borneó, að því er hin opinbera fréttastofa, Antara, skýrffi frá £ dag. Að sögn upplýsingamálaráð- herra Indónesíu, Ruslan Abdul- gani, er nú allt með kyrrum kjör- um á þeim svæðum þar sem mót- mælaaðgerðirnar gegn Kínverj- um hafa átt sér stað. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 26. maí 1963 |,3

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.