Alþýðublaðið - 21.08.1963, Síða 4
KRÚSTJOV forsætisráðherra
er lagður aftur af stað í ferðalag
— að þessu sinni til Júgóslavíu.
IÞetta er þriðja heimsókn hans
jþangað, og ef til vill er þessi heim-
sókn mikilvægari en báðar hinar.
Krústjov fór í fyrstu heimsókn
sína til Belgrad árið 1955, og var
markmíðið það, að binda enda á
einangrun Júgóslavíu frá valda-
blökk kommúnista. Einnig var
heimsóknin l'yrsta skrefið í þá átt,
að bæta íyrir hrottafenginn verkn-
að Stalins 1948, þegar hann gerði
Júgósiava útlæga úr herbúðum
kommúnista.
Nú eru líðin fimmtán ár síðan
-Júgóslavía var rekin úr Komin-
i'orm. Brottreksturinn var upphaf
fyrsta meiriliáttar klofningsins í
tieimi kommúnista. Júgóslavar
hafa farið gætilega í deilum Kín-
verja eg Rússa, sem eru jafnvel
enn meiri en deilurnar fyrir 15
árum.
Önnur heimsókn Krústjovs til
•Júgóslavíu var farin 1956. Þá
reyndi hann að stuðla enn frekar
að því, að færa samskipti Rússa
-og Jugóslava í eðlilegt horf. En
skömmu síðar brauzt út bylting í
Ungverjalandi og allt sótti í sama
Ihorfið aftur.
Þegar Tito Júgóslavíuforseti
fór í heimsókn til Moskvu í des-
ember í fyrra voru alúðleg sam-
skipti þjóðanna endurvakin. —
Þriðja heimsókn Krústjovs í Júgó
slavíu á enn að efla friðsamleg
samskipti Rússa og Júgóslava, og
jafnframt á að nota hana til þess
að veita Kínverjum ákúrur.
★ „ENDURSKOÐUNAR-
STEFNA.”
Kínverjar hafa veitzt harðlega
•að Júgóslövum og kalla stefnu
þeirra vestræna villutrú eða end-
urskoðunarstefnu. Þeir hafa jafn-
1 vel gengið skrefi lengra og lagt
endurskoðunarstefnu Júgóslava
og stefnu Rússa -um friðsamlega
sambúð að jöfnu og sakað Rússa
um frávik frá sönnum marxisma-
I lenínisma.
Kínverjar saka Júgóslava um
ögranir og „skemmdarverk á mál
staði heimskommúnismans.” Tito
sakar kínverka kommúnista um,
að stuðla að því, að þriðja heims-
styrjöldin skelli á.
1 í ræðu, sem Tito hélt í maí,
sagði hann, að Kínverjar hefðu
hvatt til einingar í alþjóðahreyf-
I ingu kommúnista til þess að unnt
yrði að undirbúa heimsbyltingu.
En eins og nú standa sakir, hefði
slík bylting í för með sér heims-
styrjöld og algera útrýmingu
miiljóna fólks, sagði Tito.
Margt bendir til þess, að Krúst-
jov muni nota heimsóknina til
harðvítugra árása á Kínverja og
í stefnu þeirra. Sést það ef til vill
bezt á því, að hugmyndafræðimað-
urinn Andropov, sem var einn af
fulltrúum Rússa í viðræðunum við
fulltrúa kínverska kommúnista-
flokksins um liugmyndaágreining
flokkanna, er með í förinni. Einnig
mun Krústjov reyna að afla stefnu
Rússa stuðning í Au-Evrópu.
★ SJÁLFSTÆÐ STEFNA.
En Ijóst er, að Júgóslavar vilja
ekki fórna sjálfstæðri stefnu sinni
í utanríkismálum. Greinilega þyk-
ir hafa komið fram, að ýmsir Jú-
góslavar eru lítt hrifnir af því, að
sótzt sé eftir vinfengi Rússa,
enda eru þeim fórnirnar, sem Stal-
in lagði á Júgóslava, enn í fersku
minni.
Tito marskálkur hefur orðið að
leggja mikla áherzlu ó fullvissan-
irnar um, að nánara samband við
alþjóðahreyfingu kommúnista
merki enga breytingu á sjálfstæðri
stefnu Júgóslava í utanríkismál-
um eða vinslit við Yesturlönd. —
Þessar fullvissanir voru ekki síð-
! ur ætlaðar fólki í Júgóslavíu en
| almenningsálitinu í heiminum.
Tito marskólkur á mikið í húfi
! að Krústjov og stefna hans verði
sigursæl. Hann mundi lenda í
miklum erfiðleikum, ef Krústjov
missti völdin eða ef Rússar tækju
á ný upp ósveigjanlega, staliniska
j stefnu. Tito rökstyður stefnu sína
' um nánara samband við Rússa á
þeim grundvelli, að Júgóslavar
geti eflt þau öfl í alþjóðahreyfingu
kommúnista, sem andvíg séu Kín-
verjum.
Af þessu má sjá, að Tito óttast
að í Moskva séu til sterk öfl, sem
fús séu að slaka nokkuð til
gagnvart Kínverjum og ganga
nokkuð til móts við kröfur vald-
hafana í Peking um meiri „ævin-
týramennsku” í utanríkismálum.
Ekki er talið ólíklegt, að fundur
miðstjórnar sovézka kommúnista-
flokksins í Moskva í júní og við-
ræður Kínverja og Rússa um hug-
myndaágreining hafi bætt aðstöðu
Titos, þar eð í Júgóslavíu töldu
margir fundi þessa prófstein á
stefnu Krústjovs og dómgreind
júgóslavneskra leiðtoga.
★ VARKÁRNI í BELGRAD.
Stjórnmálamenn í Belgrad hafa
vérið bjartsýnir með tilliti til
deilna Kínverja og Rússa. Þeir
hafa sagt sem svo, að Krústjov
muni standa af sér alla storma og
ekki slaka til gagnvart Kínverj-
um í grundvallaratriðum stefnu
sinnar um friðsamlega sambúð.
Júgóslavneskur stjórnmálamað-
ur sagði brezkum blaðamanni ný-
lega, að þótt margir Júgóslavar
tryðu því, að þeir hefðu fengið
Rússa á sitt mál, ættu þeir að hafa
lært það af reynslunni, að treysta
beri Rússum varlega. Eins og marg-
ir aðrir í Júgóslavíu taldi hann,
að Júgóslavar ættu að styðja
Krústjov nú, en hafa þetta samt
sem áður í huga.
Þrátt fyrir hin bættu samskipti
Júgóslava og Rússa telja stjórn-
málafréttaritarar óhugsandi, að
Júgóslavía muni aftur ganga í
ríkjablökk kommúnista. Júgóslav-
neskur embættismaður sagði í
sumar, að jafnvel þótt kommún-
istaflokkar Júgóslavíu og Sovét-
ríkjanna næðu algeru samkomul.
mundi þá enn sem fyrr greina á í
innanríkismálum, og Júgóslavar
mundu ekki ganga í Varsjárbanda-
lagið eða Comecon (efnahags-
bandalag austantjaldsríkjanna), —
þótt ekki væri útilokað, að Júgó-
slavar mundu gera samninga við
einstök ríki Comecon.
Júgóslavar hafa þegar gengið of
lahgt á eigin „leið til sósíalisma”
og hafa komið á ýmis konar tengsl
um við umheiminn. Bent er á, að
erlendir skemmtiferðamenn, sem
flykkjast til Júgóslavíu ár hvert,
en þeir koma flestir frá Vestur-
löndum, séu ekki ómerkilegustu
tengslin við umheiminn. 53%
verzlunar Júgóslavíu eru við
Vesturlönd, og í fyrra bægðu ban-
darískar umframbirgðir af hveiti
; frá alvarlegri hættu vegna
slæmrar uppskeru og óhagstæðs
greiðslujöfnuðar.
meðal þessara ríkja og eru einir
hinna „fimm stóru” í þeirra hópi
auk Indlands, Arabíska sambands
lýðveldisins, Ghana og Indónes-
íu. Þessi ríki. hafa beitt sér fyrir
„ósvikinni” friðsamlegri sambúð
og gera þau sér vonir um, að
heimsókn Krústjovs muni stuðla
að þessu.
Andstaða Kínverja gegn Moskvu
samningnum um stöðvun kjarn-
orkutilrauna hefur ekki mælzt vel
fyrir í Asíu Afríku og þvi
vonast Júgóslavar og Rússar tii
þess, að stefna þeirra muni bera
ávöxt í þessum heimshluta, m. a.
í sambandi við veitingu lána og
annarrar aðstoðar.
Tito hefur veitzt harðlega að
stefnu Kínverja í Asíu og Afríku
og fordæmt þá fyrir að æsa þjóðir
Asíu Afríku og rómönsku Ameríku
gegn þjóðum Evrópu og háþróuðu
þjóðunum. Hann gaf í skyn, að
Peking-stjórnin vildi stofna til
bandalags litaðra gegn hvítum og
allri Evrópu — bæði gegn komm-
únistaríkjum og ríkjum, sem ekki
aðhyllast kommúnisma — og
Bandaríkjunum.
Áhrifa Júgóslava gætir allmik-
ið í Asíu og Afríku, og hafa þeir
veitt aðstoð við ýmsar framkvæmd-
ir þar. Sennilegt er talið, að Rúss-
ar og Júgóslavar vonist til þess, að
þessi áhrif og aðstoð Júgóslava
muni vega upp á móti áhrifum
og aðstoð kínverskra kommún-
ista, sem einnig hafa haft sig
mikið í frammi í Asíu og Afríku
og berjast þar opinberlega gegn
Rússum.
j Tito sagði nýlega í ræðu, að
Kínverjar veittu ríkjum Asíu og
Afríku aðstoð — og væri ekkert
við það að athuga. En þeir gagn-
rýndu Júgóslava fyrir að gera slíkt
hið sama — jg við það væri nokk-
uð að athuga. — S.P.
KARTÖFLUSKORTUR
í SOVÉTRÍKJU
MOSKVA (NTB-AFP). Moskvu-
blaðið „Pravda“ hefur kvartað yf-
ir skorti á grænmeti og kartöfl-
um í Moskvu og öðrum stórborg-
um Sovétríkjanna. Blaðið, sem er
höfuðmálgagn sovézka kommún-
istaflokksins, fordæmdi galla þá,
sem eru ó skipan kaupa ó þess-
um vörum og bix-gðum.
„Pravda" segir, að 10. ágúst
hefðu ríkisfyrirtækin, sem hlut
eiga að máli ekki keypt meira en
14% hins áætlaða grænmetis-
magns, og aðeins 2% af kartöflu-
magn því, sem átti að hafa verið
keypt.
12. ágúst höfðu borizt til Moskvu
og Leningrad alls 66.100 lestir af
grænmeti, en í innkaupaáætlun
ríkisins, sem rennur út í byrjun
september er gert ráð fyrir 162.
600 lestum handa þessum tveim
borgum.
,,Pravda“ gagni’ýndi harðlega
galla á birgoaskipar'nni, seinan
flutning á grænmetí og léleg
vörugæði, sem biaðið segir
stafa af slælegu ,eftirliti.
„Pravda", segir að járnbrautar
vagnar þeir, sem flytja grænmeti,
hafi of langa viðdvöl á stöðvunum
og þeir séu losaðir með handafli
í stað þess að notast við vélar.
Ennfremur bendir blaðið á, að
fyrirhuguðum birgðamiðstöðvum í
rússneska sovétlýðveldinu, Kaza-
khstan og Uzbekistan hafi enn
ekki verið komið ó fót.
„Pravda“ segir, að neytendur á
tómat- og agúrkuræktarsvæðun-
um í Kákasus geti fengið nóg af
vörunni í verzlunum þar en ekki
sé flutt nógu mikið magn af græn
meti til Moskvu og annarra stór-
'borga.
JAFNVEL þótt þetta sé eldii abstraktmálverk. þá j
cr ég alls ekki hrifinn af því.
★ SAMKEPPNI I ASIU.
í heimsókn Krústjovs til Bel-
; grad nú í vikunni mun ugglaust
(Krúsíjoff og Tító eru báðir harðir andstæðiiígar afstaðan tíi hiutiausu ríkjanna í
Í , v , Asíu og Afríku bera á góma. Júgó-
aOStraKtUStaiV. 'slavar njóta mikillar virðingar
ALÞÝÐUBLAÐINU bárust í
gær mótmæli 'frá Verkfræðingafé-
Iagi íslands og Stéttarfélagi verk-
fræðinga vegna bráðabirgðalaga
ríkisstjórnarinnar til lausnar kjara
deilu verkfræðinga. Fara mótmæl-
in hér á eftir:
STJÓRN Verkfræðingafélags
íslands mótmælir liarðlega árás
þeirri á verkfræðingastéttina, er
felst í hinum nýju bráðabirgða-
lögum um svonefnda lausn á
kjaradeilu verkfræðinga, þar sem
almennur samningsréttur er tek-
inn af Stéttarfélagi verkfræðinga
og ráðgjafarverkfræðingar svipt-
ir rétti til að ákveða gjöld fyrir
þjónustu sína, en öðrum óskyldum
aðilum ætlað það verk.
Bráðabirgðalögin sýna skiln-
ingsleysi á þeirri staðreynd, að
tæknilegar framfarir eru hverju
þjóðfélagi nauðsynlegar, eigi það
að halda í horfinu. Getur enginn
gengið þess dulinn, að íslenzka
þjóðin er þar ó vegi stödd, að verk
menning er hér af skornum
skammti og á langt í land. Ber
því frekar að bæta aðstæður til
| eflingar hennar og laða til sín
færa menn á því sviði en að beita
valdboðum, er munu hafa þveröf-
ug áhrif.
Stjórn Verkfræðingafélags
íslands.
STJÓRN Stéttarfélags verk-
fræðinga mótmælir harðlega bráða
birgðalögum ríkisstjórnarinnar
dags. í dag um gerðardóm til þess
að ákveða kjör verkfræðinga hjá
öðrum en ríkinu og afnámi verk-
fallsréttarins í yfirstandandi
kjaradeilu verkfræðinga. Hér er
um að ræða harkalegustu árás á
verkfalls- og samningsrétt stéttar-
félags, sem starfar samkvæmt lög-
um nr. 80, 1938 um stéttarfélög
og vinnudeilui’. Þetta er gert á
sama tíma og samningaviðræður
standa yfir og von er á árangrl
af þeim. Stjórn Stéttarfélags verk
fræðinga telur afskipti ríkisvalds
ins af þessari deilu tilefnislausa
með öllu og krefst þess, að lög
þessi verði felld úr gildi.
Stjórn Stéttarfélags
verkfræðinga.
4 21. ágúst 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ