Alþýðublaðið - 21.08.1963, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 21.08.1963, Blaðsíða 10
Rítstjóri: ÖRN EIÐSSON KR hlaut lang- flesta meistara KR sigraði Fram með 5:2 - og S igurmöguleikar Fram þarmeð úr sögunni DRENGJAMEISTARAMÓT íslands í frjálsum íþróttum fór fram í Vestmannaeyjum um síð- ustu helgi. Þátttaka í mótinu var ekki mikil, aðeins 17 keppendur mættu til leiks og flestir þeirra voru ú.r Reykjavikurfélðgunum þremur, Ármanni, ÍR og KR. — Síðastnefnda félagið átti flesta þátttakendur og einnig þá beztu, því að KR-ingar hlutu 8 drengja- meistarana, en íþróttabandalag Akureyrar 2 og ÍR 1. Náðist allgóður árangur þrátt fyrir fremur slæmt veður, sér- staklega síðari daginn. Fjölhæfasti þátttakandi mótsins var Ólafur Guðmundsson, sem sigraði í tveim einstaklingsgrein- um og var með í boðhlaupssveit KR, sem sigraði í 4x100 m. boð- lhaupi. Alls hlaut Ólafur verð- laun í átta greinum, sem er frá- bært. Einar Gíslason, Halldór Guðbjö<rnsson og Guðmundur Guðmundsson sigruðu einnig í 2 greinum og voru í boðhlaups- t sveit KR. Stærsta tromp ÍR-inga, Skafti Þorgr msson gat aðeins tökið þátt í einni grein, 100 m. hlaupinu, en tognaði í þeirrl grein og gat ekki verið með í fleiri. Hér eru helztu úrslit: 100 m. hlaup. Keppendur 5. Einar Gíslason, KR 11,2 Skafti Þorgrímsson, ÍR 11,4 Ólafur Guðm. KR 11,4 Hástökk. Keppendur 7. Reynir Hjartarson, ÍBA 1,70 Ólafur Guðm., KR 1,66 /jb róttablaðið er komið út Ágústhefti íþróttablaðsins er nýkomið út. í blaðinu er fjöldi greina, greinar um utanferðir Vals og KR til Norðurlanda, þær rita Ægir Ferdinandsson um Vals ferðina og Sigurgeir Guðmanns- son um KR.-ferðina. Örn Eiðsson skrifar um keppnina gegn Vestur- Noregi og Meistaramót Norður- landa í frjálsum íþróttum, Hallur Símonarson skrifar grein um Stoke City og Matthews, auk þess ritar Þorsteinn Einarsson um norrænu sundkeppnina, mjög skemmtilegt viðtal er við Magnús J. Guðmundsson golfmeistara frá Akureyri, frá ÍSÍ, íþróttaannáll o. fl. Forsiðumynd er af Magnúsi J. Guðmundssyni. Hreiðar Júlíusson, ÍR Kúluvarp. Keppendur 5. Guðm. Guðm. KR Erl. Vald., ÍR Ingi Árnason, ÍBA Langstökk. Keppendur 6. Ólafur Guðm., KR Einar Gíslason, KR Ingi Árnason, ÍBA Spjótkast. Keppendur 7. Ingi Árnason, ÍBA Sig. Jónsson, HSH Ólafur Guðm. KR 800 m. hlaup. Keppendur 2. Halldór Guðbjörnsson, KR2,04,2 Þórður Guðm. Breiðablik 2,16,7 300 m. hlaup. Keppendur 3. 1,63 14,96 14,45 12,77 6,62 6,38 5,90 56,53 53,36 45,30 Einar Gíslason, KR 38,9 Ólafur Guðm. KR 39,2 Guðm. Sigursteinsson, UB 39,5 Þrístökk. Keppendur 4. Ól. Guðm. KR 12,59 Hreiðar Júlíusson, ÍR 12,12 Ingi Árnason, ÍBA 11,98 Kringlukast. Keppendur 6. Guðm. Guðm. KR 42,86 Erl. Vald. ÍR 41,95 Ól. Guðm. KR 39,89 1500 m. hlaup. Keppendur 2. Halldór Guðbj. KR 4:43,0 Þórður Guðm. Breiðabl. 5:24,6 Stangarstök. Keppendur 2. Hreiðar Júlíusson, ÍR 3,20 Valgarður Stefánsson, ÍBA 3,00 4x100 m. boðhlaup: 1 sveit frá KR 49,2 LEIKUR KR og Fram í fyrra- kvöld var einn hinn allri bezti leikur íslenzkra liða í lengri tíma. KR sigraði verðskuldað með fimm mörkum gegn 2. Að vísu er sá markamunur í það mesta, en allt um það var sigur KR í alla staði sanngjam. Lið KR er nú mun heilsteyptara en í byrjun mótsins, einkum er það þó framlínan, sem hefur nú á sér allt annan svip, hún er mun hreyfanlegri og hættu legri og nær nú oft á tíðum ágæt- um samleik. Allir leikmenn í fram línu KR voru vel með í leiknum, en burðarásarnir þessum árang- ursríka sóknarleik eru þó Ellert og Gunnar Guðmannsson, sem nú er upp á sitt allra bezta. Fram- | verðirnir Garðar og Sveinn standa ! líka vel fyrir sínu, Sveinn er mjög duglegur leikmaður og Garðar er ávallt hinn snjalli uppbyggjari, þótt hraðinn sé með minna móti. Aftasta vörnin er slappasti hluti liðsins, þó er Heimir í mikilli framför og hefur ekki 1 annan tíma varið betur í sumar en í þessum leik. Lið Fram átti dágóðan leik, ef frá er talinn leikur öftustu varn- arinnar, sem var með fádæm- um lélegur og vanhugsaður, enda kostaði hann líka liðið 3 mörk. Hvað eftir annað léku KR-ingar í gegnum miðjuna til Gunnars Felixsonar, sem oftast var óvald- aður sökum sérkennilegrar stað- setningar miðvarðar Fram, Hall- dórs. Framverðir liðsins, Björn og Hrannar voru beztu menn Fram í leik þessum, einkum var Björn eljusamur, þó á stundum hann væri full ákafur og hætti sér of framarlega. Framlínan var nú nokkuð breytt frá fyrri leikjum. Grétar lék nú miðframherja í stað Baldvins. Yfirleitt var leikur framlínunnar nokkuð tilviljana- kenndur framan af, en batnaði þó er á leið. 1:0. í byrjun átti Fram heldur meir í leiknum og fengu þeir Baldur Scheving og Hallgrímur þá dágóð , ; tækifæri, einkum þó Baldur, en mistókst báðum. Smám saman ná KR-ingar sér á strik og á 14. mín. á Garðar þrumuskot í þverslá af !um 30 m. færi. Gunnar Felixson | skorar svo fyrsta markið á 20 | mínútu, er hann fær sendingu upp miðjuna frá Ellert og er einn og óáreittur með markmanninn ein- an eftir. Gunnar skoraði með góðu skoti, sem Geir kom að vísu hendi á, en án þess þó að dyggði til bjargar. Þetta mark má skrifa á sérkennilega staðsetningu vam- ar Fram. 2:0. Á 29. mín. fær Baldur Scheving enn eitt tækifærið, Bjöm sendir 1 1VI ivnuvo. UUJlUBi Æ Ul. ........ ö .» ..*—. *. .... í> “.. * ...... . ... ....... * .... ... . ..J. Jl... ... . . knöttinn inn á vítateig KR. Grét- ar leggur knöttinn fyrir fætur Baldurs skammt fyrir utan mark- teig, en Baldur sér lítið fyrir og afgreiddi þessa ágætu sendingu með himinháu skoti yfir. Þetta var mjög afdrifaríkt fyrir Fram, þarna var þó tækifæri til að jafna og hefði jafntefli á þessari stund vafa lítið breytt miklu. En í stað þess auka KR-ingar enn við forskot sitt og skora á næstu mínutu 2. mark sitt. Var þar að verki Gunnar Felixson, er fékk sendingu frá nafna sínum Guðmannssyni, en sá hafði fengið knöttinn nokkuð óvænt inn á vítateig Fram eftir mistök Framvarnarinnar. Fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik. 2:1. í byrjun seinni hálfleiks sækja Framarar af mun meiri hörku en áður og liggur þá talsvert á KR. Skall oft hurð nærri hælum og bjargaði Heimir m. a. ágætu skoti frá Birni úr aukaspyrnu rétt utan vítateigs. Grétar skorar fyrir Fram á 15. mín. með skalla af stuttu færi úr fyrirgjöf Hallgríms. 3:1. Ekki stóð þó á því, að Vestur- bæingarnir svöruðu fyrir sig, því aðeins liðu 2 mínútur þar til að knötturinn lá í neti Fram. Var þar enn einu sinni að verki miðfram- herjinn marksæli, Gunnar Felix- son, sem var einn og óáreittur með markvörð Fram. Fékk Gunn- ar sendingu frá Sigurþóri, en var þá vafalítið rangstæður, þó dóm- ari og línuvörður væru á annarri skóðun. 4:1. Eftir því sem líður á hálfleik- inn verða sóknarlotur KR æ tíð- ari, þannig kemst Gunnar Felix- son enn einu sinni inn fyrir, en Hrannari tekst að bjarga á síð- ustu stundu horn. Þetta var þó aðeins gálgafrestur, því aðeins mínútu síðar skallar Sigurþór í netið af stuttu færi. * i 4:2 og g önguferff. Á 34. mínútu liáifleiksins skor- ar Grétar úr sendingu frá Birni Helgasyni.' Sendi Björn knöttinn inn fyrir vörn KR. en þar var þá kominn Grétar miðframherji Fram einn og óvaldaður (og vafalítið rangstæður), sem skoraði af stuttu færi. KR-ingar mótmæltu úrskurði dómarans, er taldi mark- ið réttilega skorað. Hörðust voru þó mótmæli markvarðarins Heim- is, sem hirti knöttinn úr netinu og spyrnti honum út af vellinum. Þótti dómaranum að vonum fram koma þessi vítaverð, kallaði hann markvörðinn til sín og var það um 30-40 m. gönguferð að ræða, og krafðist þess, að hann bæði línuvörðinn, Einar Hjartarson, af sökunar. Gerði hann það ekki yrði honum vikið af leikvangi. Var Heimir nokkuð tregur til að leggja upp í aðra píslargöngu, nú út að hliðarlínu, en lét þó tilleiðast fyrir eindregin tilmæli og góða hjálp félaga sinna. Fremur er það leiðinlegt, þegar menn hafa ekki Framhald á 12. síðu. 10 21. ágúst 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.