Alþýðublaðið - 21.08.1963, Side 7
HIN SlOAN
Tannskemmdir óþekktar
VÍSINDAMENN hafa nú fundið
lítið samfélag manna, þar sem
tannsjúkdómar eru algjörlega ó-
þekktir. Þar þjáist með öðrum orð
um enginn af tannpinu. Þetta er
í þorpinu Angoram í Norð-austur
Nýju Gíneu. íbúar Angoram eru
110 að tölu og mjög frumstæðir í
háttum.
Angoram er lítil þyrping strá-
kofa á þökkum krókódílafljótsins
Sepik. íbúarnir eru ekki ýkja
langt frá mannætustiginu. Þeir
ganga með blóm í hári og bein í
nösum. Og þeir hafa allir með tölu
heilar tennur fram á elliár.
David Barnes, tannlæknir, for-
stöðumaður einnar deildarinnar í
Heilbrigðismálaráðuneyti Ást-
rölsku Nýju-Gíneu var nýlega á
ferð í þorpi þessu. Hann komst svo
að orði um ástandið þar: „íbúar
Angoram lifa á grjónum, rótum,
Leikur Keeler
CHRISTINE KEELER er hætt
við að leika hlutverk sjálfs sín í
kvikmyndinni „Sagan af Christ-
ine Keeler“, sem áformað er að
byrja á í Danmörku 28. ágúst næst
komandi. í hennar stnð hefur ensk
leikkona, Yvonne Buchingham,
sem er 25 ára að aldri, verið val-
in í hlutverkið. Myndin að ofan
er af Yvonne
Yvonne sagði við blaðamenn
fyrir skemmstu, þegar hún gérði
nppskátt um þessi áform: „Ég geri
ráð fyrir, að margir álasi mér fyr-
ir að fara að flækja mér í Keeler-
lineykslið. En ég sé ekki neina
ástæðu til slíkra athugasemda.
Margar leikkonur hafa leikið lif
andi fyrirmyndir, sem höfðu miklu
meira að skammast sín fyrir en
Christine Keeler.“
fiski, krókódílum og snákum. Og
svo eru tennur þeirra sterkar að
þeir láta sig ekki raga um að bíta
börk af trjám og draga tappa úr
flöskum með tennurnar að vopni.
Fyrr á þessu ári var Barnes tann
læknir, sem er 45 ára gamall,
sæmdur doktorsnafnbót við Háskól
ann í Queensland fyrir átta ára
rannsóknir á tönnum og tannsjúk-
dómum í Nýju Gínéu.
Nú hefur Barnes verið boðið til
Michigan háskóla í Bandaríkjun-
um, þar sem hann mun bera bæk-
ur sínar saman við þarlenda starfs
bræður sína. — „Ég mun ræða
niðurstöður rannsókna minna við
bandaríska tannlækna, segir Barn
es. Það er grunur minn, að efni
eins og cobalt og molybdenum
valdi því að tannskemmdir þekkj
ast ekki í Angoram. í Ameríkuför
inni mun ég rannsaka þetta nán-
ar”.
SMÆIKI-
— Jæja, litla mín. Var ekki
skrítiS að koma í kirkju í fyrsta
sinn?
— Jú, en það skrítnasta var að
mamma sagði ekki orð allan tím-
ann.
★
í GÖMLU skáldsögunum kyssti
hetjan ástkonu sína á síðustu blað
síðu. Nú kyssast þau á kápunni.
„MÉR finnst nú tími til kominn,
að hún dóttir okkar giftist", sagði
konan við mann sinn.
„Ég tel nú skynsamlegast, að
hún bíði með það, þangað til hún
finnur þann rétta“ svaraði bóndi
hennar.
„Bíða þess rétta?" hrópaði kon
an æst. „Ég gerði það ekki og ég
sé enga ástæðu til að dóttir mín
geri það nokkuð frekar".
Morð á
stúlkubarni
HRÆÐILEGT morð á 6
ára frömlu stúlkubarni fyllir
Stokkhólmsbúa skelfingu
þessa dagana. Telpan Berit
Glesing var barin með grjóti
til ðauðs í skemmtigarði ein-
um í útjaðri Stokkhólms fyr-
ir síðustu helgi. Ekki er vit-
að um ástæður morðsins, en
ekki virðist um kynferðis-
glæp að ræða eins og haldið
var í fyrstu. Enn hefur ekki
hafzt upp á árásarmanninum
en lýsing sjónarvotta á útliti
hans mun vera fyrir hendi.
HIN GÖMLU KYNNI GLEYMAST EI: Það er ekki nokkur vafi á því, að þessi danshljóm-*
sveit, sem við sjáum hér á myndinni er skipuð færustu hljóðfæraleikurum, sem nokkru sinni
hafa myndað eina hljómsveit.
Hér höfum við Ted Heath á básúnu, Joe Loss á fiðlu, Edmundo Ros með bongóbumburnar, —
og um stjórnina sér Jim Davidson og taktsprotinn hans við þetta tækifæri var borðhnífur.
Án gamans ber þess að geta, að hljómlistarmennirnir hér á myndinni, sem á sínum tíma voru
þeir frægustu í heimi á sínu sviði, komu saman fyrir skömmu til kveðjusamsætis höldnu í tilefni
af burtför Jims Davidson, sem nú er 60 ára og á förum frá Bretlandi til síns gamla heimalands,
Ástralíu.
Eftir að hafa snætt saman ákváðu gömlu garparnir að knýja einhverja tóna úr þeim hljóð-
færum, sem til taks voru, — auðvitað til heiðurs Jim. Um árangurinn eru fréttaskeytin fáorð, —
en allavega voru þetta frægir menn og hljómsveitin stór.
Hér sjáum við þá (talið frá vinstri til hægri): Jim Davidson, David Ede, Joe, Kenny Ball, Bill
Shepherd, Ted Heath, Ray Ellington, Acker Blik, Viktor Silvester, Ken Machintosh, Edmundo Ros,
Bob Miller, Jack Payne og Eric Winstone.
Hreinsanir í
undirheimum
LÖGREGLAN í Japan hefur nú
hafizt handa um að hreinsa til í
uridirheimum borgarinnar Tokio
fyrir Olympíuleikana 1964. Yfir
9000 lögreglumenn hafa tekið þátt
í skyndiherförum gegn glæpa-
mönnum nú nýverið. Á þremur
dögum handtóku lögreglumenn-
imir um 1500 bófa hér og þar í
landinu og gerðu upptæk 400
vopn, þar á meðal riffla, hnífa og
fleira. í Tókíó einni voru hand-
teknir 121 glæpamaður. Síðan grip
ið var til aðgerða gegn glæpa-
mönnum í júní síðastliðum hefur
1579 glæpamönnum verið stung
ið inn í Tókíó.
m
Miðvikudagur 21. ágúst
Hinn 16 ára gamli Jean Mare-
chal, sem vinnur hjá vínsölufyrir-
tæki í Nancy í Frakklandi, lagði
sig til svefns í stórri vínámu
vegna þess, að hann var ákaflega
syfjaður.
Þegar hann vaknaði aftur var
honum tafarlaust ekið til sjúkra-
húss. Hann þjáðist nefnilega a£
alveg óvenjulega illkynjuðum
timburmönnum. Hið vínmengaða
loft, sem hann svaf í, hafði haft
þessi áhrif á hann.
8.00
12.00
13.00
15.00
18.30
19.20
20.00
20,15:
20.35
21.00
21.15
21.30
21.45
22.00
21.10
22.30
23.35
8,30 Fréttir. —
HIN SlÐAN
Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Tónleikar.
8.35 Tónl. — 10.10 Veðurfregnir).
Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar).
„Við vinnuna": Tónleikar.
Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk. — Tónleikar. 16.30 Veðurfr. —•
Tónleikar. 17.00 Fréttir. — Tónleikar).
Lög úr söngleikjum. — 18.50 Tilkynningar.
Veðurfregnir. — 19.30 Fréttir.
Alfons Bauer leikur á sítar, Carol Kraus jóðlar o. fl. listamenr*
skemmta með lögum úr Ölpunum.
Fyrsta bílferð norður Springisands (Einar Magnússon, kenn-
ari).
Lög um sálina og sumarið. — íslenzkir listamenn flytja.
Sveinn Bergsveinsson les frumortan Ijóðaflokk.
Fatasía í c-moll, K.475 eftir Mozart. — Wilhelm Kempff leik-
ur á píanó.
„Mælirinn fullur“ smásaga eftir Catherine Mansfield (Ragn-
heiður Jónsdóttir þýðir og les).
Ballettþættir úr óperunum „Ótello" og „Aida“ eftir Verdi. —-
Sinfóníuhljómsveit Berlínarútvarpsins leikur. Ferenc Frieay
stjórnar.
Fréttir og veðurfregnir.
Kvöldsagan: „Dularilmur" eftir Kelley Roos; IV. (Halldóra
Gunnarsdóttir biaðamaður þýðir og les).
Næturhljómleikar: Frá tónlistarhátíðinni í Prag í maí s. 1.
„Asrael" — sinfónía eftir Josef Suk. Tékkneska filharmoníu-
sveitin leikur. Valclav Neumann stjórnar.
Dagskrárlok.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 21. ágúst 1963 J