Alþýðublaðið - 21.08.1963, Side 14
FLUG
19.8 til Grimsby, Hamborgar
og Rotterdam.
Flugfélag íslands h.f.
Gullfaxi fer til Glasgow og K-
hafnar kl. 08.00 í dag. Vænt-
anleg aftur til Rvíkur kl. 22.40
í kvöld. Skýfaxi fer til Osló,
og Khafnar kl. 08.30 í dag.
Væntanleg aftur til Rvíkur kl.
21.40. Innanlandsflug: í dag
er áætlað að fljúga til Akur-
eyrar (3 ferðir), Hellu, Egils-
staða, Fagurhólsmýrar, Horna-
fjarðar, Vmeyja (2 ferðir) og
ísafjarðar. Á morgun er aætiað
að fljúga til Akureyrar (3 ferð-
ir), Vmeyja (2 ferðir), Kópa-
skers, Þórshafnar Egilsstaöa
og ísafjarðar.
L,oftleiðir h.f.
Eiríkur rauði er væntanlegur
fró New York kl. 08.00. Fer
til Luxemborgar kl. 09.30. Kem-
ur til baka frá Luxemborg kl.
24.00. Fer til New York kl. 01.
30. Þorfinnur karlsefni er
væntanlegur frá New York kl.
10.00. Fer til Gautaborgar, K-
hafnar og Stafangurs kl. 11.30.
Leifur Eiríksson er væntanleg-
ur frá New York kl. 12.00.
Fer til Osló og Helsingfors kl.
13.30. Snorri Sturluson er
væntanlegur frá Stafangri, K-
höfn og Gautaborg kl. 22.00.
Fér til New York kl. 23.30.
S&ÍP {
Skipaútgerð’ ríkisins.
Heklti etr væ.ii.anltg t,il K-
hafnar í fyrramálið frá Berg-
en. Esja er ó Austfjörðum á
norðurleið. Herjólfur fer frá
Rvík kl. 21.00 í kvöld til Vm-
ékja. Þyrill var 22 sjóm. suður
af Dalatanga á hádegi í gær á
leið til Weaste Englandi.
Skjaldbreið er á Vestfjörðum.
Herðubreið er væntanleg til
Kópaskers í dag á suðuijeið.
Baldur fer frá Rvík í dag til
Hvammsfjarðar- og Gilsfjarðar
hafna.
Skipadeild S.Í.S.
Hvassafell fór í gær frá Lenin
grad til Rvíkur Arnarfell er í
Rvík. Jökulfell fer væntanlega
í dag frá Camden áleiðis til
Reyðarfjarðar. Dísarfell fór á
hádegi í gær frá Seyðisfirði til
Finnlands. Litlafell losar olíu
á Norðurlandshöfnum. Helga-
fell fór 7. þ.m. frá Trapani til
Noregs. Hamrafell fer væntan
lega í dag frá Palermo til 3at-
umi. Stapafell fór í gær frá
Wheast til Rvíkur.
Jöklar h.f.
Drangajökull fór frá Rvík 15.8
til Camden og Gloucester.
Langjökull etf' í Hafnarfirði.
Vatnajökull fór frá Hafnarfirði
Eimskipafélag Reykjavíknr h.f.
Katla er í Walcom. Askja er
1 Gravana.
Hafskip h.f.
Laxá er í Manchester. Rangá
fór í gær frá Bohus til Vent-
spils.
Séra Garðar Þorsteinsson í
Hafnarfirði verður fjarverandi
n.k. 3 vikur. Séra Bragi Frið-
riksson þjónar fyrir hann á
meðan og verður til viðtals í
skrúðhúsi kirkjunnar miðviku
daga og föstudaga kl. 6-7.
SI. laugarcjag opniberuðu trú-
lofun sína Guðbjörg Guðmunds
dóttir fóstra Langholtsvegi 202
og Sigurður Einarsson iðn-
nemi Hólmgarði 1.
□
Skrifstofa orlofsnefndar hús-
mæðra, Aðalstræti 4 (uppi) tek-
ur á móti umsóknum um orlofs-
dvalir alla virka daga nema
laugardaga frá kl. 2—5. —
Sími 20248.
□
L~ SÖFN 1
Borgarbókasafn Reykjavíknr
sími 12308. Aðalsafn Þingholts-
stræti 29A. Útlánsdeildin er op-
in 2-10 alla virka daga nema
laugardaga 1-4. Lesstofan er op-
in alla virka daga kl. 10-10
nema laugardaga kl. 10-4. Úti-
búið Hólmgarði 34 opið 5-7 alla
daga nema laugardaga. Útibúið
Hofsvallagötu 16 opið 5.30-7.30
alla virka daga nema laugar
daga. Útibúið við Sólheima 27
opið 4-7 alla virka daga nema
laugardaga.
Listasafn Einars Jónssonar er
opið daglega frá kl. 1.30-3.30.
Landsbókasafnið. Lestrarsalur
er opinn alla virka daga kl.
10-12, 13-19 og 20-22 nema
laugardaga kl. 10-12 og 13-19.
Útlán alla virka daga kl. 13-15.
Bókasafn Dagsbrúnar er opið
föstudaga kl. 8-10 e.h., laugar-
daga kl. 4-7 e.h.
Tæknibókasafn IMSÍ er opið
alla virka daga nema laugar-
daga kl. 13-19. •
Þjóðminjasafnið er opið dag-
lega frá kl. 1.30-4.
Listasafn ríkisins er opið kl.
1.30-4.
Ásgrímssafn Bergstaðastræti 74
er opið alla daga í júlí og ágúst
nema laugardaga frá kl. 1.30-4.
Árbæjarsafnið er opið á hverj-
um degi kl. 2-6 nema mánudaga,
á sunnudögum frá kl. 2-7. Veit-
ingar í Dillonshúsi á sama tíma
SYNDIÐ 200 METRANA
| LÆKHAR 1
Slysavarðstofan í Heilsuvernd-
arstöðinni er opin allan sólar-
hringin. — Næturlæknir kl.
18.00-08.00. Sími 15030.
Neyðarvaktin sími 11510 hvem
virkan dag nema laugardaga.
14 21. ágúst 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
c.úl ■■ii.-v. v - - ÖiöAJatKi'Njft
Sjötugur í dag:
Þórarinn Guðmundsson
frá Sólvangi
Þórarinn Guðmundsson frá
Sólvangi á Eyrarbakka er 70 ára
í dag. — Eg vildi í því sambandi
senda honum afmæliskveðju til
Akureyrar, þar sem hann dvelur
nú hjá dóttur sinni um stundar-
sakir, að Helga-magra-stræti 17.
Þórarinn er Strandamaður og
því fjölkunnugur, að minnsta
kosti fjölvirkur. Hann hefur lagt
gjörva hönd á margt um dagsli
og komizt vel frá sínum verkefn-
um. Hann hefur jafnan verið hlað
inn störfum, bæði vegna eigin lífs
baráttu og vegna félagsstarfa ým-
is konar fyrir sveitunga sína og
aðra. Þar á meðal í hreppsnefnd
Eyrarbakkahrepps.
Mér er að sjálfsögðu kunnugast
æviskeið Þórarins, eftir að hann
fluttist til Eyrarbakka 1933. Síð-
an höfum við verið kunningjar,
vinir og samstarfsmenn og ég hefi
því betur lært að meta kosti
hans, sem ég hef kynnzt honum
nánar. Starfsvilja hans og starfs-
gleði, sem hann á í ríkum mæli,
mörgum öðrum fremur.
Þórarinn er fæddur að Finn-
bogastöðum í Árneshreppi á
Ströndum 21. ágúst 1893, sonur
hjónanna Guðmundar Guðmunds-
sonar oddvita og bónda og Þuríð-
ar Eiríksdóttur.
Á Finnbogastöðum hefur föður-
ætt Þórarins búið í fimm ættliði,
og víst hefði hann viljað festa þar
byggð til frambúðar. Örlög réðu
þó, og til annarrar áttar var snú-
ið. Vegur hans lá til Suðurlands
— að ströndinni, — þar sem hann
skapaði sér skilyrði til búskapar
á þeim tímum, sem flestum þótti
ófýsilegt að hefja þar starf, ekki
sízt við landbúskap.
Snemma hóf Þórarinn að stunda
hákarlaiegur með föður sínum.
Þá var róið á oþnum skipum um
hávetur og verið þrjá-fjóra sólar-
hringa í legu. Það var kaldsamt
starf við frumstæð skilyrði, og
ekki á allra færi, að búa við slíkt.
Engin vistarvera í skipinu, þar
sem hægt var að hvílast hvað þá
hita kaffi eða elda mat.
vegaði jarðyrkjutæki, kenndi plæg i
ingar, gekkst fyrir stofnun bún-1
aðarfélags í sveit sinni og var líf
ið og sálin í félagsmálum ungs
fólks_ ásamt syskinum sínum og
öðru ungu fólki.
Vorið 1929 réðst Þórarinn ráðs
maður að búinu í Gunnarsholti,
að tilhlutun Sigurðar Sigurðsson
ar, sem þá var orðinn búnaðar-
máiustjóri.
í Gunnarsholti var þá verið að
byggja upp sandgræðslustöð und-
ir stjórn þeirra Sigurðar og Gunn
laugs Kristmundssonar hins kunna
frumherja sandgræðslu hér á
landi. Þar var Þórarinn næstu 4
árin og gætti bús fyrir sandgræðsl
una.
Búskaparhættir þarna voru ekki
að skapi Þórarins. Bústofninn ein-
göngu geldneyti, sem gáfu búinu
lítinn arð. Sauðkind mátti ekki
sjást í því landi. Það hafði þó ver
ið aðalbústofninn á æskuheimili
hans og á Ströndum yfirleitt. Við
brigðin urðu því ærið mikil.
Haustið 1932 giftist Þórarinn
Ingiríði Guðmundsdóttur ættaðri
flcó Htei'.ðri í Rangárvallasýslu,
hún hafði dvalist með íoreldrum
sínum á Eyrarbakka um allmörg
ár.
Ári síðar flytjast þau til Eyrar-
bakka.
Á þeim árum var ekki margra^
kosta völ um atvinnu, hvorki hér
né annars staðar, þá var kreppa í
\andi og lítið um framkvæmda-
möguleika.
Það var því áreiðanlega þör£
mikillar bjartsýni og áræðis til
þess að stofnsetja nýbýli á órækt-
uðum mýrarfláka fyrir ofan Eyr-
arbakka byggja allt að nýju, íbúð-
ar- og peningshús og hefja rækt-
un við þau skilyrði, sem þá voru
fyrir hendi, um hjálpartæki og
fjárhagslega fyrirgreiðslu var þá
vart hægt að tala samanborið við
það sem nú er.
Þessi bjartsýni og þetta áræði
höfðu þó þessi hjón og byggðu
sinn „Sólvang" þarna í sundur-
grafinni mómýrinni. Þar hafa þau
búið síðan eða fram á sl. vor, við
vaxandi gengi og bættan hag.
Ekki hafði Þórarinn lengi dval
ið hér, þegar farið var að leita
til hans ef hjálpa þurfti gripum
í nauð og hefur svo jafnan verið
síðan og komið að góðu, enda á
Þórarinn við það mörg spor og
margra þakklæti.
Framh. á 11. síðn
Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar
Hugur Þórarins stóð frekar til
búskapar en sjósóknar og réðst
hann því strax og kostur var á til
búnaðarnáms að Hólum. Þá var
Sigurður Sigurðsson síðar búnað-
armáiastjóri skólastjóri þar. Þór-
arinn telur sig eiga mikið að
þakka skólavist að Hólum, — og
allri leiðsögn Sigurðar. Enda
urðu þeir upp frá því góðir vin-
ir, og Þórarinn síðar starfsmaður
hjá Búnaðarfélagi íslands, að til-
lögum Sigurðar, eftir að hann var
orðinn búnaðarmálastjóri.
Til marks um það, hve erfitt
var að komast um landið að vetri
til á þessum árum, er það, að
frostaveturinn mikla 1918, hófst
skólastarf á Hólum ekki fyrr en
eftir nýár, en það tók Þórarinn
12 daga að fara gangandi frá
Finnbogastöðum að Hólum í frost
hörkum allt að 32 stigum og oft
í blindbyl. Þetta var ekki talin
nema manndómsraun og ekki tal
ið eftir sér í þá daga, til þess að
geta aflað sér þekkingar við nám
í góðum skóla.
Eftir að skólavist lauk, gerðist
Þórarinn athafnasamur um land-
búnaðarnýjungar á Ströndum, út-
Jóhann Bernhard
Öldugötu 33,
verður jarðsunginn fimmtudaginn 22. ágúst kl. 3, s. d.
Athöfnin fer fram frá Dómkirkjunni.
Svava Þorbjarnardóttir og dætor.
Móðir okkar,
Amalía Rögnvaldsdóttir
frá Uppsölum lézt í sjúkrahúsi ísafjarðar þriðjudaginn 20. ágúst.
Fyrir hönd okkar systkinanna.
Hrefna Samúclsdóttir Tynes.
Eiginmaður minn,
Karl Gísli Gíslason
verkstjóri, Meðalholti 17,
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju kl. 3 e. h. fimmtudaginn 22.
ágúst. Blóm afþökkuð en þeim, sem vildu minnast hans, er bent
á Háteigskirkju.
Fyrir hönd vandamanna
Nanna Einarsdóttir.