Lögrétta - 01.07.1934, Page 5
105
LÖGRJETTA
106
gyðinglegu sagnir, á að kenna fólkinu forn-
ar germanskar, norrænar sagnir. Það á ekki
að kenna fólki drauma um hatur og her-
skáa messiasartrú, heldur á að kenna mönn-
um trú á drengskap og frelsi, eins og þetta
kemur fram í norrænum, germönskum sög-
um, frá Óðni, um forn æfintýri til Meistara
Eekeharts og Walters von der Vogelweide.
Það er eitt af stórfeldustu viðfangsefnum
okkar aldar, að veita þrá og þeli hinnar
norrænu sálar form og framrás í þýskri
kirkju.
Hin nýja germanska kirkja á ekki að
hafa krossinn fyrir merki sitt og hún á
að hætta að predika um undirgefni og þræl-
dóm og um það guðs lamb, sem burt ber
heimsins syndir. Hún á að predika um hinn
eldlega anda og um hetj uskapinn, hún á að
flæma burtu Jesúítastílinn, hún á að boða
kraft kærleikans og hreínleika kynstofnsins,
og sannan frið, en ekki þann boðskap,
sem undir yfirskyni heimsfriðarins sáir
sæði úlfúðar og ófriðar. Hún á fyrst og
fremst að leggja áherslu á kærleikann og
á kraft hans og höfðingskap, því að Jesú
var höfðingi og dó eins og' höfðingi, fórn-
aði sjer eins og höfðingi.
Á þessu stutta yfirliti um langan kafla
i riti Rosenbergs má sjá nokkuð trúar- og
kirkj umálaskoðanir hans, og eitthvaö í
þessa átt hugsar fjöldi Þjóðverja. Samband
])essara kirkjumálahugsana og þjóðernis-
kenninganna sjest í öðrum kafla, í sama riti
hans. Þjóð er dáin og glötuö, segir hann
þar, þegar hún er hætt að finna einingu í
yfirliti um sögu sína og prófun á fram-
tíðarvilja sínum. Slík eining gildír einnig
um þýska sögu og þýsk verðmæti. Út 'frá
þessari hugsun leitar hann einnig í trú sinni
aftur í germanska og norræna fornöld, m.
a. aftur í óðinstrúna. Eitt form Óðins er
dáið, segir hann, sá Óðinn, æðstur margra
goða, sem var ímynd og átrúnaður kynslóð-
ar, sem trúði á náttúrusymbólik. En sá Óð-
inn, sem er eilíf spegilmynd sálrænna frum-
krafta hins norræna manns, hann lifir í
dag, eins og fyrir 5000 árum. í honum sam-
einaðist: drengskapur og hetjuskapur, óður,
þ. e. listin, verndun rjettlætisins og hin ei-
lífa leit að vitsku. llann er óánægður og
síieitandi um alla heima, til þess að skilja
eðli og örlög verundarinnar. Hann fórnar
auga sínu til þess að öðlast hina æðstu
vitsku. Hann er ímynd hinnar norrænu, sí-
leitandi og verðandi sálar, sem ekki getur
látið sjer nægja, að hvílast sjálfum glöð í
Jahve eða staðgengli hans. Norræn eða
germönsk á að vera undirstaða lífsins og
trúarinnar.
Stærsta skíp heímsíns
Stóru farþegaskipin, sem fara yfir Atlants.
hafið, eru einhverjar mestu undrasmíðar
verkvísindanna, fljótandi furðuverk, sem
engin æfintýri hefur dreymt um. Skipafje-
’ögin keppast um það að gera þessi skip sem
stærst og fegurst og glæsilegust, svo að
kappið um þetta er orðið að ofurkappi, sem
ýmsum lítst illa á. Nú sem stendur eru það
])ýsk skip, sem eiga hraðametið í sig'lingum
yfir Atlanshafið, en Bretar og* Frakkar eru
jui að keppast um smíði stærsta skipsins og
vænta þess, að vinna einnig í hraðakeppn-
inni. Smíði stærsta skips Breta, og stærsta
skips heimsins, er nú að verða lokið, svo að
það verði flotfært.
Það er 73 þús. smálestir, 1018 fet (ensk)
á lengd, en 236 fet á hæð milli kjalar og
sigluhúns. í skipinu eru að sjálfsögðu mikl-
ar og öflugar vjelar. Á því eru fjórar skrúf-
ur, hver um sig knúin af sjálfstæðum vjel-
um. Það er tii marks um það, hversu stór
og öflug bákn þessar vjelar eru, að stærstu
hjólin eru 200 smálestir að þyngd, en olíu-
geymslur skipsins, sem eru 50, taka 8 þús.
smálestir. Auk þessara vjela eru í skipinu
margvíslegar aðrar vjelar, til ljósa, hitunar
og ýmiskonar starfrækslu og' verður þetta
stærsta aflstöð, sem til er á floti, eða nægi-
leg til þess að fullnægja ljósaþörfum borg-
ai', sem væri meira en fjórum sinnum stærri
en Reykjavík. í skipinu eru tugir þúsunda
af ljósaperum og' bjöllum.
Þetta geisimikla rúm í skrokki skipsinr
er notað á margvíslegan hátt. í skipinu eru
11 þiljur, eða 11 hæðir og ganga 22 lyftur
upp og ofan um þessar hæðir, 11 farþega-
lyftur, 10 vörulyftur og 1 lyfta fyrir vjela-